Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 16

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
24.01.2023 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Esther Ösp Gunnarsdóttir varaformaður, Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Aron Leví Beck, Skipulags- og umhverfisfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2301089 - Hjallanes 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hjallanes 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
01-730-011-Aðaluppdrættir.pdf
2. 2301146 - Hraun 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
ALCOA sækir um byggingaráform og byggingar leyfi vegna viðgerð á núverandi gólfum í kerskálum (byggingar 321). Gólf á milli bita eru brotin niður og endursteypt með 50 mm þykkari gólfum, breyttri steinsteypugerð og járnbendingu. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
3. 2301159 - Umsókn um lóð Búðareyri 10
Umsókn Heilbrigðisstofnun Austurlands um lóð að Búðareyri 10, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera breytingar á deiliskipulagi og vinna málið áfram. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni þegar deiliskipulagsvinnu er lokið og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
dsk miðbær Rfj.pdf
dsk miðbær Rfj skilmálar.pdf
4. 2211007 - Deiliskipulagsvinna: Sjávargötureiturinn, Reyðarfirði
Deiliskipulagsvinna: Sjávargötureiturinn, Reyðarfirði (Nesbraut 3). Kynning á framvindu verkefnis. Málið hefur verið kynnt.
A1633-001-U01 Sjávargötureitur.pdf
5. 2301161 - Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis að Bökkum 3, Neskaupstað
Breyting á deiliskipulagi íbúðarsvæðis að Bökkum 3, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að breyta deiliskipulagi.
Minnisblað v. breyting dsk íbúðarsvæðis að Bökkum 3.pdf
skilmálar Deiliskipulag íbúðarsvæðis að Bökkum 3, Neskaupstað.pdf
Deiliskipulag íbúðarsvæðis að Bökkum 3, Neskaupstað.pdf
6. 2301019 - Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur kynning á stöðu verkefnis
Deiliskipulag austurhluta Breiðdalsvíkur (Selnes) kynning á stöðu verkefnis og niðurstöðum kynningarfunds skipulags- og umhverfisfulltrúa sem haldinn var á Breiðdalsvík 19.01.2023. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og vísar erindinu í bæjarráð.
DSK Selnes 01.pdf
7. 2301138 - Umsókn um lóð fyrir bílastæði Strandgata 58
Umsókn um lóð fyrir bílastæði Strandgötu 58, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun lóðar og vísar til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.
8. 2201189 - Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði
Deiliskipulag, Dalur athafnasvæði til samþykktar í auglýsingu. Skipulags- og umhverfisfulltrúi kynnti fyrirhugaða lokun á aflögðum vatnsholum innan marka deiliskipulags sem um ræðir. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið í auglýsingu.
1860-095-TEK-01-V03-Deiliskipulag athafnarsvæðis ESK_2D-Breyting-A2 Uppdráttur.pdf
9. 2301094 - Aðalskipulag br. skógrækt
Aðalskipulag Fjarðabyggðar. Breyting á skilmálum landflokksins Landbúnaðarland vegna stærðar á skógrækt. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að farið verði í bretingu á skilmálum vegna skógræktar á landbúnaðarsvæði í Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2020-2040.

"Skógrækt er þó ekki heimil á góðu akuryrkjulandi, nema um skjólbelti sé að ræða, né heldur á svæðum sem njóta verndar vegna jarðminja, vistkerfa eða menningarminja.“

Verður að

"Skógrækt er þó ekki heimil á góðu ræktunarlandi, nema um skjólbelti sé að ræða, né heldur á svæðum sem njóta verndar vegna jarðminja, vistkerfa eða menningarminja.“
Minnisblað v. br.skógrækt.pdf
10. 2301160 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sólbakki 3
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Sólbakka 3, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
760 Sólbakki 3 LB.pdf
11. 2301132 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðavegur 59
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Búðaveg 59, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
750 Búðavegur 59 LB.pdf
12. 2301153 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðgarður 9
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Miðgarð 9, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
710 Miðgarður 9 LB.pdf
13. 2301099 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hjallavegur 3
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Hjallaveg 3, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
730 Hjallavegur 3 LB.pdf
14. 2301128 - Lausar lóðir í Fjarðabyggð
Nýtt skjal fyrir lausar lóðir í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna og samþykkir nýtt skjal fyrir lausar lóðir í Fjarðabyggð og að það verði birt á vefsíðu Fjarðabyggðar.
15. 2301166 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Ásvegur 28
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Ásveg 28, Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
17. 2301177 - Selhella - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Selhella - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
Sauna og gestahús 230115 (2).pdf
18. 2301179 - Hljóðmælingar Búðaveg 24
Hljóðmælingar Búðaveg 24 lög fram til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir að fá að fylgjast með framgangi mála er varðar úrbætur og aðhald sem Heilbrigðisnefnd hefur krafið Loðnuvinnsluna um.
221223 hljóðmælingar skýrsla mannvit.pdf
Fundargerðir til kynningar
16. 2301174 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023
171. fundargerð Heilbrigðisnefndar Austurlands. Kynnt
171. fundargerð Heilbrigðisnefndar.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til bakaPrenta