Til bakaPrenta
Bæjarráð - 857

Haldinn í fjarfundi,
22.07.2024 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Gunnar Jónsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2403158 - Rekstur málaflokka 2024
Lagt fram yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - maí 2024 auk yfirlits yfir skatttekjur og launakostnað janúar - júní 2024. Einnig lagt fram samadregið yfirlit yfir reksturinn fyrstu 5 mánuði ársins.
Rekstrarreikningur 05-2024.pdf
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
2. 2404213 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
Tekin umræða um gjaldskrár ársins 2025 og forsendur í nýrri þjóðhagsspá sem birt var í sumar. Vísað til frekari umræðu í tengslum við fjárhagsáætlun 2025.
Ný þjóðhagsspá Hagstofu og forsendur (sumar 2024).pdf
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
3. 2407033 - Samningur við Orkusöluna um breytingu á viðskiptakjörum
Framlögð drög að samningi Orkusölunnar og Fjarðabyggðar um breytingu á viðskiptakjörum Fjarðabyggðar fram til ársloka 31.12.2026.
Bæjarráð samþykkir samninginn ásamt samningum fyrir Fjarabyggðahafnir og Hitaveitu Fjarðabyggðar og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
4. 2402003 - Áhrif skerðingar á orku til fjarvarmaveita
Lögð fram samantekt fjármálastjóra á auknum orkukostnaði vegna skerðingar á raforku til fjarvarmaveita janúar - maí 2024 ásamt tillögu um breytingar á fjárhagsáætlun ársins.
Bæjarráð vísar auknum orkukostnaði vegna skerðingar á raforku til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2024. Bæjarráð samþykkir jafnframt að viðræður verði teknar upp við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið varðandi rekstur fjarvarmaveitna.
Samantekt um kostnað vegna skerðingar á raforku.pdf
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
5. 2310060 - Hleðslustöðvar gjaldskrá og samningur um þjónustu
Lögð fram drög að gjaldskrá fyrir selda raforku í gegnum rafhleðslustöðvar Fjarðabyggðar ásamt drögum að samningi við EONE ehf. um afnot af hugbúnaðarlausn fyrirtækisins til aðgangsstýringar að stöðvunum og innheimtu gjalda.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá sem taki gildi frá og með 1. ágúst 2024 ásamt samningi um þjónustu vegna stöðvanna við Eone ehf. Bæjarstjóra falið að undirrita gjaldskrá og samning.
6. 2407009 - Tilboð um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara
Tekið fyrir að nýju erindi frá Fjarskiptasjóði þar sem sveitarfélögum er gefinn kostur á að sækja um styrk til að ljúka lagningu ljósleiðara til allra lögheimila utan markaðssvæða í þéttbýli. Frekari upplýsingar sjóðsins um framkvæmd og útfærslur rædd.
Bæjarráð samþykkir að auglýst verði eftir áhugasömum aðilum til að taka að sér lagningu ljósleiðara í þéttbýli Fjarðabyggðar gegn styrk frá Fjarskiptasjóði sbr. auglýsingu háskóla,- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins, https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2024/07/02/Ljosleidaravaeding-landsins-klarist-innan-thriggja-ara/
7. 2407007 - Ágangsfé í landi Áreyja
Framlagt mat verkefnastjóra umhverfismála á ágangi sauðfjár í landi Áreyja.
Bæjarráð felur bæjarritara að ræða við landeigendur og upplýsa um niðurstöðu mats verkefnastjóra umhverfismála.
Ágangsfé í skógræktarlandi Áreyja.pdf
8. 2209245 - Franskir dagar 2024
Framlögð drög að dagskrá vegna heimsóknar fulltrúa vinabæjarins Gravelines ásamt yfirliti um fulltrúana.
Bæjarfulltrúar taka þátt í mótttöku fulltrúa vinabæjarins í samvinnu við upplýsingafulltrúa.
Information delegation from Gravelines.pdf
9. 2407002 - Ráðstefna Almannavarna 2024
Framlagt boð frá Almannavarnarsviði ríkislögreglustjóra um almannavarnarráðstefnu sem haldinn verður 31. október 2024.
Bæjarráð samþykkir að Jón Björn Hákonarson fari fyrir hönd Fjarðabyggðar.
10. 2407086 - Erindi vegna úrskurðar í máli nr. IRN23111065
Framlagt erindi frá innviðaráðuneyti þar sem óskað er upplýsinga um viðbrögð við úrskurði ráðuneytisins frá 18. apríl 2023 varðandi smölun ágangsfjár. Lögð fram drög að svari.
Bæjarráð samþykkir tillögu að svari og felur bæjarritara að svara erindi ráðuneytisins.
IRN24070064.pdf
11. 2407066 - Erindi vegna ágangsmála búfjár
Framlögð til kynningar samantekt forráðamanna fésbókarsíðu um ágangsmál búfjár.
14. 2406060 - Drög að flokkun fimm virkjunarkosta
Í samráðsgátt stjórnvalda er að nýju komin til samráðs drög að flokkun fimm vikjanakosta þar á meðal Hamarsvirkjun sem þegar hefur verið veitt umsögnum um.
https://island.is/samradsgatt/mal/3778. Umsagnarfrestur er til 27. september nk.
Bæjarráð mun taka málið fyrir að nýju áður en umsagnarfresti lýkur.
Umsögn Fjarðabyggðar vegna mats á Hamarsvirkjun.pdf
Almenn mál - umsagnir og vísanir
12. 2407085 - Drög að breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla - Umsagnarferli
Á Samráðsgátt liggja fyrir drög að breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla. Umsagnarfrestur er til 15.ágúst næstkomandi.
Bæjarráð felur hafnarstjóra í samráði við hafnarstjórn að yfirfara drögin og veita umsögn vegna málsins.
Reglugerð 0745-2016 (null).pdf
Rg.. 12. br. á rg. nr. 745 2016 um vigtun og skráningu sjávarafla samráðsgátt.pdf
13. 2407092 - Skipun stýrihóps vegna breytinga á eftirliti
Framlagt til kynningar bréf frá Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi vegna áformaðra breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sem eru viðamiklar.
Bréf frá SHÍ.pdf
Fundargerðir til kynningar
15. 2403087 - Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024
Framlögð til kynningar fundargerð samtaka orkusveitarfélaga nr. 73
Fundargerð Samtaka orkusveitarfélaga - nr 73 undirrituð.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:10 

Til bakaPrenta