Til bakaPrenta
Mannvirkja- og veitunefnd - 19

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
27.09.2023 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Elís Pétur Elísson varaformaður, Pálína Margeirsdóttir aðalmaður, Árni Þórhallur Helgason varamaður, Svanur Freyr Árnason embættismaður.
Fundargerð ritaði: Svanur Freyr Árnason, Sviðsstjóri framkvæmdasviðs
Bryngeir Ágúst Margeirsson mætti ekki og ekki fékkst varamaður í hans stað.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2305071 - Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 2024
Lagt fram bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2024, annars vegar rekstur málaflokka í A hluta og hins vegar rekstur sjóða í A hluta. Mannvirka- og veitunefnd felur sviðsstjóra og formanni að vinna launaáætlun áfram og bera undir nefnd.
2. 2308173 - Erindi Jaspis ágúst 2023
Vísað frá bæjarráði til fjárhagsáætlunargerðar 2024, erindi Jaspis félags eldriborgara á Stövarfirði. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024
3. 2309152 - Gjaldskrá fráveitu 2024
Gjaldskrá fráveitu fyrir árið 2024 lögð fram til umræðu. Lagt fyrir að nýju.
4. 2309155 - Gjaldskrá hitaveitu 2024
Gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2024 lögð fram til umfjöllunar. Lagt fyrir að nýju.
5. 2309167 - Gjaldskrá vatnsveitu 2024
Gjaldskrá vatnsveitu 2024 lögð fram til umfjöllunar. Lagt fyrir að nýju.
6. 2309099 - Gjaldskrá fjarvarmaveita 2024
Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2024 lögð fram til umfjöllunar ásamt minnisblaði fjármálastjóra. Lagt fyrir að nýju.
7. 2309129 - Samráðsfundir vegna endurskoðunar á vinnureglum vetrarþjónustu
Samráðsfundir vegna endurskoðunar á vinnureglum vetrarþjónustu. Sviðsstjóra falið að mæta fyrir hönd Fjarðabyggðar.
8. 2303230 - Framkvæmdasvið verkefni 2023
Sviðsstjóri fer yfir hönnun og kostnaðaráætlun fyrir Tröllaveginn í Neskaupstað. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir að fara í framkvæmdina við Tröllaveg og vísar fjármögnunni til bæjarráðs samkvæmt meðfylgjandi minnisblaði.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00 

Til bakaPrenta