Til bakaPrenta
Bæjarráð - 825

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
04.12.2023 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Þórður Vilberg Guðmundsson, forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2203199 - Tjaldsvæði 2022
Framlagt minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra varðandi sölu tjaldsvæðanna í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsfulltrúa er falið að fara í nauðsynlega skipulagsvinnu varðandi málið, og samhliða því verði stjórnsýslu- og þjónustusviði falið að gera drög að auglýsingu svæðanna.
2. 2311225 - Viljayfirlýsing HÍ og Hallormsstaðaskóla um uppbyggingu Háskólanáms
Formaður stjórnar Hallormsstaðaskóla kynnti nýgert samkomulag Hallormsstaðaskóla og Háskóla Íslands varðandi uppbyggingu háskólanáms við Hallormsstaðaskóla. Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar áformum um nám á háskólastigi í Skapandi sjálfbærni við Hallormsstaðaskóla.
3. 2312011 - Íbúafundir í janúar 2024
Í janúar 2024 verða haldnir íbúafundir í byggðakjörnum Fjarðabyggðar, dagsetningar fundanna verða auglýstar í næstu viku. Bæjarstjóra falið að halda áfram vinnu við undirbúning fundanna.
4. 2210016 - Frágangur á Haga
Umræða um frágang við Haga á Reyðarfirði þar sem starfsmannaþorp Alcoa stóð. Frágangur á svæðinu verði tekið upp með forsvarsmönnum Alcoa.
5. 2303120 - Breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga - í samráðsgátt
Umræða um breytingar sem boðaðar hafa verið á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Bæjarstjóra falið að vinna drög að umsögn og leggja fyrir fulltrúa í bæjarráði.
6. 2311193 - Til umsagnar 509. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Velferðarnefnd Alþingis hefur sent til umsagnar mál nr. 509 "Húsnæðisstefna fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024-2028."

Framlagt og kynnt.
7. 2311197 - Til umsagnar 82. mál "Uppbygging Suðurfjarðarvegar".
Umhverfis- og samgöngunefnd hefur sent til umsagnar mál nr. 82 "Uppbygging Suðurfjarðarvegar".

Bæjarráð vísar í umsögn sína um samgönguáætlun og felur bæjarstjóra að senda hana aftur inn til nefndarinnar varðandi þetta mál.
9. 2302093 - Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2023
Fundargerð 65. fundar stjórnar samtaka orkusveitarfélaga lögð fram til kynningar
10. 2311224 - Fundargerðir stjórnar Austurbrúar
Fundargerð 144. fundar stjórnar Austurbrúar lögð fram til kynningar.
11. 2311224 - Fundargerðir stjórnar SSA
Fundargerð 15. fundar stjórnar SSA lögð fram til kynningar
Fundargerðir til kynningar
8. 2301183 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 938. fundar sambands Íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:40 

Til bakaPrenta