Til bakaPrenta
Bæjarráð - 930

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
09.02.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2601169 - Samgönguáætlun 2026 til 2040 auk fimm ára aðgerðaráætlunar til umsagnar, 322. mál
Framlögð drög að umsögn Fjarðabyggðar um samgönguáætlun 2026 til 2040 ásamt aðgerðaráætlun til næstu fimm ára.
Bæjarráð samþykkir umsögnina og felur bæjarstjóra að senda hana.
Fulltrúi Fjarðalistans styður í meginatriðum efni umsagnar Fjarðabyggðar um samgönguáætlun.
Fulltrúi Fjarðalistans tekur þó fram að hann styður ekki þá viðbótartillögu sem sett er fram í umsögninni um aðra samþætta lausn í jarðgangamálum að svo stöddu, þar sem sú framsetning sé til þess fallin að skapa óþarfa óvissu og rugla umræðuna um þá forgangsröðun jarðgangaverkefna sem þegar liggur fyrir.
Að mati fulltrúa Fjarðalistans er mikilvægt að umsögn sveitarfélagsins sendi skýr og samræmd skilaboð um þá áætlun sem liggur fyrir.
322. mál frá nefndar- og greiningarsviði.pdf
Umsögn 2026_Fjarðabyggð_Samgönguáætlun.pdf
2. 2509181 - Veikindalaun 2025
Framlagt minnisblað sviðsstjóra mannauðs- og umbótasviðs vegna veikindalauna fyrir síðari hluta ársins 2025.
Bæjarráð vísar kostnaði vegna veikindalaun til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025.
3. 2601258 - Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Umræða um drög að frumvarpi til laga um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.
Bæjarstjóra falið að skila inn umsögn.
Drög að frumvarpi vegna flutnings eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna.pdf
4. 2602047 - Tillögur um einföldun á regluverk um verkefni sveitarfélaga
Framlögð könnun um verkefni sveitarfélaga sem hefur verið lögð fram í samráðsgátt.
Bæjarráð vísar erindi til nefnda sveitarfélagsins til umsagna.
Samráðsgátt _ Mál_ S-27_2026.pdf
5. 2602006 - Umsókn um stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum
Opnað hefur verði fyrir umsóknir um stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðun hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Vísað til bæjarstjóra til skoðunar.
Opnar verður fyrir umsóknir um stofnframlög 5. febrúar 2026.pdf
6. 2601178 - Fiskeldissjóður - umsóknir 2026
Farið yfir umsóknir um í Fiskieldissjóð.
Vísað til áframhaldandi vinnu hjá sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs.
Fréttatilkynning opnun umsókna 2026.pdf
 
Gestir
Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs - 00:00
7. 2602060 - "Hafðu áhrif - Taktu þátt". Átaksverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Framlagður til kynningar tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem hvatt er til þáttöku einstaklinga til að bjóða sig fram til sveitarstjórna en átakið miðaðar að því að styrkja lýðræði á sveitarstjórnarstigi.
Hafðu áhrif - taktu þátt.pdf
8. 2602019 - Landsþings sambandsins 23.-25.09.26
Framlagt erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga en landsþing sambandsins verður haldið á Akureyri 23.-25. september 2026.
Tölvupóstur sambandsins um Landsþingið 2026.pdf
9. 2601212 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 992.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta