Til bakaPrenta
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 264

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
29.06.2020 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Jón Björn Hákonarson formaður, Ívar Dan Arnarson varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Esther Ösp Gunnarsdóttir aðalmaður, Kamma Dögg Gísladóttir aðalmaður, Árni Björn Guðmundarson áheyrnarfulltrúi, Marinó Stefánsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Valur Sveinsson, Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2006135 - 7.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði á vegum Fiskeldis Austfjarða hf. - beiðni um umsögn
Fiskeldi Austfjarða hf. hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu 7.000 tonna framleiðslu á laxi í Stöðvarfirði, Fjarðabyggð.
Samkvæmt 10. gr. laga nr. 106/2000 óskar Skipulagsstofnun eftir umsögn um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar í samræmi við 24. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum. Meðfylgjandi er frummatsskýrsla um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar auk viðauka. Kynnt tilkynning um beiðni á umsögn vegna frummatsskýrslu. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi forsendur og felur atvinnu- og þróunarstjóra að taka saman gögn fyrir umsögn í samstarfi við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og leggja fyrir nefndina.
 
Gestir
Valgeir Ægir Ingólfsson - 16:00
2. 2006076 - Fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði
Lögð fram ósk varðandi umsögn um fiskeldi í Viðfirði og Hellisfirði.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur áður sett fram nýtingaráætlun og ályktanir fyrir sveitarfélagið um uppbyggingu fiskeldis í Fjarðabyggð sem eina af stoðum atvinnulífs. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd er sammála þeirri stefnu sem þar hefur verið framsett og felur bæjarritara að svara erindinu í samræmi við það.
 
Gestir
Valgeir Ægir Ingólfsson - 16:18
3. 2003017 - Framkvæmdasvið verkefni 2020
Lagt fyrir minnisblað framkvæmdasviðs varðandi framkvæmdir ársins 2020.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi framkvæmdir og samþykkir að haldið verði áfram með þau verkefni sem eru á áætlun ársins. Gerð og afgreiðslu viðauka er vísað til bæjarráðs.
4. 1906142 - Skólavegur framkvæmdir 2019
Sviðstjóri framkvæmdasviðs fór yfir stöðu framkvæmda við Skólaveg og verkefna sem því tengjast.
Verið er að vinna við heimtaugar og frágang í ystu botnlöngunum ásamt því að undirbúningur fyrir lagningu malbiks er að hefjast, sem áætlað er að verði um 10 júlí nk.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur áherslu á að vinna við frágang götunnar fyrir malbik hefjist sem fyrst. Jafnframt að þess verði gætt að rykbinda götuna á meðan malbik er ekki komið á hana.
5. 2006083 - Snjómokstur í Fjarðabyggð
Sviðstjóri framkvæmdasviðs leggur fram minnisblað varðandi kostnað og skipulag á snjómokstri síðusta þriggja ára.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi umhald og framkvæmd snjómoksturs í sveitarfélaginu og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að vinna málið áfram í samræmi við umræður og leggja fyrir nefndina.
6. 2004112 - Uppbygging íþróttahúss á Reyðarfirði
Tillaga starfshóps um nýtt íþróttahús á Reyðarfirði liggur fyrir ásamt frumáætlun frá Mannvit vegna þess. Bæjarráð hefur óskað eftir umsögn frá Eigna-skipulags- og umhverfisnefnd vegna þessa.

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd ræddi tillöguna og gögnin og telur rétt að farið verði í jarðvegsframkvæmdir nú í júlí vegna byggingarinnar meðan grunnskólinn er í sumarfríi og þeim lokið áður en hann hefst að nýju og byggingasvæðið þá afgirt til að hægt sé að halda áfram í framkvæmdum á því án þess að trufla skólahald. Þá verði samhliða farið í endanlega hönnun hússins og frekari undirbúning byggingarinnar og verkinu skipt í mismunandi verkþætti sem boðnir verði út samhliða gangi verksins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar máli að nýju til bæjarráðs.
7. 2006091 - 740 Naustahvammur 64, óveruleg breyting á deiliskipulagi
Gera þarf óverulega breytingu á deiliskipulagi Naust 1 vegna nýrrar lóðar við Naustahvamm 64.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að gera óverulega breytingu á deiliskipulagi Naust 1 og felur sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að vinna málið.
8. 2006138 - 735 Eskifjarðarhöfn - Framkvæmdaleyfi, stækkun
Umsókn um framkvæmdarleyfi frá Fjarðabyggðarhöfnum vegna stækkunar Eskifjarðarhafnar.
Fyrir liggur álit Skipulagsstofnunar um að framkvæmdin sé ekki háð umhverfismati.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkvæmdina fyrir sitt leyti og felur sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að gefa út framkvæmdaleyfi vegna stækkunar Eskifjarðarhafnar.
9. 2006032 - 750 Búðavegur 35 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Umsókn frá Rafael.ehf um vegna gerðar þriggja íbúða að Búðarvegi 35 á Fáskrúðsfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir áformin fyrir sitt leyti og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagsviðs frágang málsins.
10. 2006014 - 730 Öldugata 3 - byggingarleyfi, íbúðarhús
Umsókn frá Gunnari Th. Gunnarssyni um byggingaleyfi við Öldugötu 3 á Reyðarfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingarleyfi fyrir sitt leyti og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
11. 2006137 - 740 Tandrastaðir - byggingarleyfi, vatnstankur
Fyrir liggur umsókn Fjarðabyggðar vegna byggingar vatnstanks við vatnsveitu á Tandrastöðum í Norðfirði.

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
12. 2006113 - 755 Hólaland 22 - byggingarleyfi, breytt aðkoma að lóð
Umsókn frá Páli Grétari Steingrímssyni vegna breytingar á aðkomu að Hólalandi 22 á Stöðvarfirði.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að færa aðkomu að Hólalandi 22 þannig að hún verði frá Borgargerði og aðkomu frá Hólalandi verði lokað. Sviðstjóra umhverfis- og skipulagssvið falið að ganga frá málinu.
13. 2006143 - 735 Lambeyrarbraut 3 - byggingarleyfi, endurgerð þaks
Umsókn frá Leifi Már Leifssyni vegna endurgerðar á þaki að Lambeyrarbraut 3 ásamt öðrum lagfæringum á húseigninni.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykktir áformin og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
14. 2006119 - 750 Tunguholt - byggingarleyfi, breytt notkun
Umsókn frá Björgu Friðmarsdóttur um breytta notkun á Tunguholti í Fáskrúðsfirði. Sótt er um að breyta notkun hússins úr gistiheimili í íbúðarhús.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytta notkun hússins og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
15. 2006066 - 730 Bakkagerði 8 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Umsókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Bakkagerði 8 á Reyðarfirði.

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamning og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
16. 2001078 - 730 Óseyri 2 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Umsókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Óseyri 2 á Reyðarfirði.

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur áður tekið fyrir umsókn Olíudreifingar um endurnýjun lóðarleigusamnings að Óseyri 2 á Reyðarfirði. Fyrir liggur að breyting hefur átt sér stað á skipulagi svæðisins og gert er ráð fyrir íbúðarbyggð að Óseyri því getur eigna-, skipulgas- og umhverfisnefnd ekki samþykkt endurnýjun á lóðaleigusamningi Óseyrar 2.
17. 2006011 - 740 Hafnarbraut 24 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Umsókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Hafnarbrautar 24 á Norðfirði.

Eigna- skipulags- og umhverfissvið samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamning og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
18. 2006107 - 730 Mánagata 19 - umsókn um stækkun lóðar
Framlögð umsókn frá Jóni Ólafi Eiðssyni um endurnýjun á lóðaleigusamningi Mánagötu 19 og jafnframt sótt um stækkun lóðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra umhverfis- og skipulagssvið að gefa út nýjan lóðarleigusamning með stækkun lóðar.
19. 2004075 - 730 Heiðarvegur 10 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Umsókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Heiðarvegur 10 á Reyðarfirði.

Eigna- skipulags- og umhverfissvið samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamning og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
20. 2005084 - 735 Bleiksárhlíð 57 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Umsókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Bleiksárhlíð 57 á Eskifirði.

Eigna- skipulags- og umhverfissvið samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamning og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
21. 1904001 - 740 Hafnarbraut 22 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
msókn um endurnýjun lóðaleigusamnings vegna Hafnarbraut 22 á Norðfirði.

Eigna- skipulags- og umhverfissvið samþykkir endurnýjun á lóðaleigusamning og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs frágang málsins.
22. 1907058 - Egilsbraut 4 - skjalasafn
Farið yfir stöðu mála vegna uppbyggingar skjalageymslu Fjarðabyggðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að fara yfir málið í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju.
23. 1705065 - Umsókn um styrk til fornleifaskráningar í Vöðlavík, á Krossanesi og Útsveit
Áframhaldandi fornleifaskráning á Gerpissvæðinu erindi frá Hjörleifi Guttormssyni á fornleifaskráningu á jörðum í Vöðlavík´. Sótt er um 750.000kr í styrk vegna verkefnisins, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að veit styrkinn og felur sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að ganga frá styrk beiðninni.
24. 2006092 - Hálendi Austurlands - ályktun aðalfundar Landverndar 2020
Ályktun aðalfundar Landverndar 2020 um vernd hálendis Austurlands lögð fram til kynningar
25. 2006116 - Gerð hjólabrautar í Neskaupstað
Lagt fyrir erindi frá áhugahópi um fjallahjólreiðar er varðar gerð hjólastígs ofan Strandgötu 62 á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar tekur jákvætt í erindið og felur sviðstjóra framkvæmdasviðs að ræða við hópinn um málið vegna annarar nýtingar svæðisins og leggja fyrir nefndina að nýju.
26. 2002144 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2020
Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2020 lögð fram til kynningar
Almenn mál - umsagnir og vísanir
27. 1908022 - Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar
Vísað til umsagnar eigna-, skipulags og umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og fræðslunefndar minnisblaði framkvæmdasviðs varðandi viðgerð á sundlauginni á Reyðarfirði. Að því loknu verður málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd mælir með við bæjarráð að farið verði í að dúkleggja sundlaugina á Reyðarfirði sem er varanlegasta lausnin á viðhaldi hennar en um leið getur gólfið ekki farið yfir sundlaugina aftur. Nefnin telur að í slíka aðgerð væri hægt að ráðst á vorönn 2021 og kenna sundnámskeið það vor í húsinu, íþróttakennsla væri þá leyst með öðrum hætti vor og haust það ár þar til nýtt íþróttahús á Reyðarfirði væri komið í gagnið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45 

Til bakaPrenta