| |
| 1. 2205097 - Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023 | Fræðslustjóri gerði grein fyrir niðurstöðu vinnu við gerð launaáætlunar fyrir árið 2023 í fræðslumálum. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra áframhaldandi vinnu við launaáætlun þannig að hún spegli sem best kennsluúthlutunarlíkön sveitarfélagsins. | | |
|
| 2. 2209113 - Gjaldskrá tónlistarskóla Fjarðabyggðar 2023 | | Til umræðu var gjaldskrá tónlistarskóla. Frekari umræðu frestað til næsta fundar. | | |
|
| 3. 2209161 - Gjaldskrá leikskóla 2023 | | Til umræðu var gjaldskrá leikskóla. Frekari umræðu frestað til næsta fundar. | | |
|
| 4. 2209166 - Gjaldskrá húsnæðis Grunnskóla 2023 | | Til umræðu var gjaldskrá á húsnæði grunnskóla. Frekari umræðu frestað til næsta fundar. | | |
|
| 5. 2209105 - Sundlaug á Reyðarfirði og sundkennsla | | Framlagt bréf um sundkennslu í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Í áætlunum stjórnenda Grunnskóla Reyðarfjarðar er gert ráð fyrir sundi eftir áramót en þá er ráðgert að viðgerð á sundlauginni verði lokið. | | |
|
| 6. 2209175 - Erindi leikskólastjóranna um vinnutíma | | Framlagt bréf leikskólastjóra í Fjarðabyggð um vinnutíma leikskólanna. Fræðslunefnd vísar bréfinu til vinnu við gerð aðgerðaráætlunar í fræðslu- og frístundastefnu. Fjarðabyggðar 2023-2025. | | |
|
| 7. 2207054 - Íslenska æskulýðsrannsóknin - Fjarðabyggð | | Sviðsstjóri fjölskyldusviðs dróg saman helstu niðurstöður úr íslensku æskulýðsrannsókninni í Fjarðabyggð. Fræðslunefnd hvetur starfshóp um aðgerðaráætlun til þriggja ára í fræðslu- og frístundamálum að nýta efni úr rannsókninni sem og úr öðrum rannsóknum svo sem Skólapúlsinum og Ungu fólki. | | Íslenska æskulýðsrannsóknin - Fjarðabyggð.pdf | | |
|
| 8. 1808078 - Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð | | Fyrir liggur erindisbréf sviðsstjóra fjölskyldusviðs fyrir starfshóp um aðgerðaráætlun fræðslu- og frístundastefnu fyrir árin 2023-2025. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf. | | |
|