Til bakaPrenta
Fræðslunefnd - 132

Haldinn í fjarfundi,
31.10.2023 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Birgir Jónsson formaður, Salóme Rut Harðardóttir varaformaður, Sigurjón Rúnarsson aðalmaður, Birta Sæmundsdóttir varamaður, Jóhanna Sigfúsdóttir , Gerður Ósk Oddsdóttir áheyrnarfulltrúi, Ásta K. Guðmundsd. Michelsen áheyrnarfulltrúi, Laufey Þórðardóttir embættismaður, Anna Marín Þórarinsdóttir embættismaður.
Fundargerð ritaði: Anna Marín Þórarinsdóttir, Stjórnandi fræðsumála og skólaþjónustur


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2305048 - Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024
Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 var kynnt fyrir fræðslunefnd.
2. 2309160 - Gjaldskrá leikskóla 2024
Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá leikskóla fyrir árið 2024.Í tillögunni er gert ráð fyrir 7,7% hækkun á dvalargjöldum og 4,9% hækkun á fæðisgjaldi frá árinu 2023. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
3. 2309181 - Starfshópur fræðslumála 2023
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu kynnti erindisbréf um skipan starfshóps fræðslumála sem hefur það verkefni að móta stefnu og aðgerðaráætlun um breytingu á núverandi rekstrar- og stjórnunarfyrirkomulagi leik-, grunn- og tónlistarskóla Fjarðabyggðar, með það fyrir augum að bæta faglegt starf og auka rekstrarlega samlegð.
Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf og vísar til bæjarráðs.
4. 2310143 - Íslenska æskulýðsrannsóknin 2023
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu lagði fram til kynningar niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.
5. 2210143 - Samskiptastefna 2022-2026
Drög að samskipta- og vefstefnu Fjarðabyggðar ásamt stefnu um innri samskipti voru tekin fyrir á fundi fræðslunefndar eftir að óskað var eftir umsögn frá leik-, grunn- og tónlistarskólum.
Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu var falið að koma athugasemdum á framfæri.
Fræðslunefnd samþykkir stefnuna að öðru leiti.
Almenn mál - umsagnir og vísanir
6. 2310057 - Frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, 238. mál.
Frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu nr. 238 var kynnt. Fræðslunefnd fagnar frumvarpinu og ítrekar mikilvægi þess að stofnunin þjóni öllu landinu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00 

Til bakaPrenta