Til bakaPrenta
Menningar- og nýsköpunarnefnd - 28

Haldinn í Molanum fundarherbergi 3,
22.06.2020 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Magni Þór Harðarson formaður, Höskuldur Björgúlfsson varamaður, Elva Bára Indriðadóttir aðalmaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Anna Þórhildur Kristmundsdóttir aðalmaður, Gunnlaugur Sverrisson embættismaður, Valgeir Ægir Ingólfsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnlaugur Sverrisson, 


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2004009 - Ferðamálastefna Fjarðabyggðar 2020 - 2021
Ferðmálastefna hefur verið lögð fram í öllum fastanefndum. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir ferðamálastefnu og vísar henni til umfjöllunar og staðfestingar í bæjarstjórn.
2. 2004044 - Starfshópur um tjaldsvæði
Lagðar fram fundargerðir og niðurstaða starfshóps um fyrirkomulag tjaldsvæðanna í Fjarðabyggð. Starfshópurinn telur að leggja beri áherslu á að hefja framkvæmdir á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík. Framkvæmdum á Eskifirði yrði flýtt eins og kostur er í framhaldi. Fyrirhugaðar ofanflóðaframkvæmdir í Neskaupstað kalla á að tjaldsvæðið verði flutt. Leitað verður samkomulags við Ofanflóðasjóð um sambærilegt tjaldsvæði við Strandgötu 62, vestan við byggðina. Lagt er til að framkvæmdir hefjist á árinu 2021. Bæjarráð vísar tillögum starfshópsins til menningar- og nýsköpunarnefndar til áframhaldandi vinnslu. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir tillögur starfshópsins og vísar þeim til vinnu við starfs- og fjárhagsátælun ársins 2021.
3. 2005044 - Markaðsátak og sýnileiki 2020
Lagt fram minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra og upplýsingafulltrúa um lykil að Fjarðabyggð sem er útfærsla á verkefni tengt stuðningi við ferðaþjónustu. Gefnir verða út afsláttarmiðar í sundlaugar og söfn sem ferðaþjónustuaðilar framselja viðskiptavinum.
Bæjarráð hefur samþykkt tillögu sem fram kemur í minnisblaðinu. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála útfærslu á verkefninu.
Minnisblað ÞVG og VÆI undirritað.pdf
4. 2006101 - Staða landbúnaðar í Fjarðabyggð
Umræður um núverandi stöðu landbúnaðar í Fjarðabyggð og hvernig sveitarfélagið getur stuðlað að aukningu í landbúnaði og stutt við frekari uppbyggingu greinarinnar á svæðinu. Menningar- og nýsköpunarnefnd Óskar eftir að atvinnu- og þróunarstjóri taki saman minnisblað um stöðu landbúnaðar í Fjarðabyggð og leggi fram í nefndinni um miðjan ágúst.
5. 2006097 - Menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar 2020
Lögð fram drög forstöðumanns menningarstofu að menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar 2020. Nánari dagsetningar munu liggja fyrir fyrstu vikuna í júlí.
Menningar og listahátíð FB - Minnisblað fundur 22 júní.pdf
 
Gestir
Forstöðumaður menningarstofu - 17:40
6. 2006102 - Atvinnuþing í Fjarðabyggð
Tillaga formanns um að halda atvinnuþing í Fjarðabyggð í haust. Umræður um útfærslu og framkvæmd. Menningar- og nýsköpunarnefnd sammála að stefna að því að halda atvinnuþing í haust. Nánara fyrirkomulag tekið fyrir á næsta fundi nefndarinnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00 

Til bakaPrenta