Til bakaPrenta
Félagsmálanefnd - 166

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
05.06.2023 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir formaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Barbara Izabela Kubielas aðalmaður, Tinna Hrönn Smáradóttir aðalmaður, Ásmundur Páll Hjaltason varamaður, Laufey Þórðardóttir embættismaður, Inga Rún Beck Sigfúsdóttir embættismaður.
Fundargerð ritaði: Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, Stjórnandi barnaverndar og félagsþjónustu


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2305070 - Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2024
Sviðstjóri Fjölskyldusviðs fer yfir Starfs-og fjárhagsáætlun 2024. Vísað til áframhaldandi vinnu í félagsmálanefnd.
2. 2211109 - Viðauki í barnavernd.
Lögð fram beiðni um viðauka vegna barns með fjölþættan vanda. Félagsmálanefnd samþykkir að vísa beiðninni til bæjarráðs.
3. 2305145 - Jafnréttisstefna 2023-2026
Lagðar fram tillögur að breytingum á jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2023-2026.
4. 2305238 - Umdæmiráð barnaverndar-landsbyggðin
Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir mál sem lagt hefur verið fyrir Umdæmisráð barnaverndar.
5. 2210143 - Samskiptastefna 2022-2026
Vísað frá bæjarstjórn til umfjöllunar fagnefnda drögum að samskipta- og vefstefnu Fjarðabyggðar ásamt stefnu um innri samskipti.
Félagsmálanefnd áréttar mikilvægi þess að einstaka stofnanir innan sveitarfélagsins hafi ákveðið sjálfstæði til að miðla upplýsingum hér eftir sem hingað til.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30 

Til bakaPrenta