Til bakaPrenta
Bæjarráð - 821

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
06.11.2023 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2305061 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2024
Umræða um fjárhagsáætlun 2024 í kjölfar fyrri umræðu í bæjarstjórn 2.11.2023.
Bæjarráð samþykkir að síðari umræða um fjárhagsáætlun 2024 og áætlun 2025 til 2027 verði 30. nóvember nk.
2. 2311037 - Útsvar 2024
Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars árið 2024 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,74 % af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Bæjarráð samþykkir að álagningarhlutfall útsvars árið 2024 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,74 % af útsvarsstofni í Fjarðabyggð og vísar til bæjarstjórnar staðfestingu hlutfalls.
3. 2309181 - Starfshópur fræðslumála 2023
Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að erindisbréfi starfshóps um fræðslumál.
Bæjarráð staðfestir erindisbréfið og felur bæjarstjóra að undirrita.
Erindisbréf starfshóps í fræðslumálum fjarðabyggðar 2023.pdf
4. 2209031 - Yfirlýsing vegna kaupréttar
Framlagt minnisblað um kaupskyldu að Hafnargötu 6 á Reyðarfirði.
Fram lagt og kynnt.
5. 2311011 - Barnvænt sveitarfélag yfirlýsing
Framlögð til kynningar yfirlýsing sveitarfélaga sem eru þátttakendur í verkefninu barnvæn sveitarfélög.
Yfirlýsing bæjarstjóra SAMÞYKKT.pdf
6. 2311024 - Beiðni um afnot af nýja íþróttahúsi 2024
Framlögð beiðni Þorrablótsnefndar Reyðarfjarðar um afnot af Íþróttahúsinu á Reyðarfirði fyrir þorrablót 2024.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk gegn afnotum af íþróttahúsinu fyrir Þorrablót Reyðfirðinga.
7. 2309160 - Gjaldskrá leikskóla 2024
Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir leikskólagjöld á árinu 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2024.
Minnisblað - gjaldskrá leikskólanna 2024.pdf
8. 2309153 - Gjaldskrá frístundaheimila
Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá fyrir frístundaheimili í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2024.
Gjaldskrá frístundaheimila 2024.pdf
9. 2309166 - Gjaldskrá tónlistarskóla 2024
Vísað frá fræðslunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá tónlistarskóla árið 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2024.
Minnisblað.pdf
10. 2309164 - Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2024
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá skipulags- og byggingarmála árið 2024. Allir gjaldliðir gjaldskrárinnar hafa verið hækkaðir um 5,8%.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2024.
11. 2309155 - Gjaldskrá hitaveitu 2024
Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá hitaveitu árið 2024.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og tekur ný gjaldskrá gildi þann 1. janúar 2024.
12. 2301183 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2023
Fundargerð 936. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 936.pdf
14. 2011203 - Stjórnkerfisnefnd 2020-2023
Bæjarráð sem stjórnkerfisnefnd fjallar um breytingar á stjórnkerfi Fjarðabyggðar.
Fundargerðir til staðfestingar
13. 2310028F - Fræðslunefnd - 132
Fundargerð fræðslunefndar frá 31. október lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
13.1. 2305048 - Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024
13.2. 2309160 - Gjaldskrá leikskóla 2024
13.3. 2309181 - Starfshópur fræðslumála 2023
13.4. 2310143 - Íslenska æskulýðsrannsóknin 2023
13.5. 2210143 - Samskiptastefna 2022-2026
13.6. 2310057 - Frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, 238. mál.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta