| |
1. 2205271 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026 | Gerð grein fyrir stöðu við vinnu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar. Fundir bæjarstjóra og fjármálastjóra með formönnum nefnda og sviðsstjórum verða í vikunni og í þar næstu viku mæta þeir á fund bæjarráðs.
| Reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023.pdf | | |
|
2. 2209209 - Fasteignir í eigu Fjarðabyggðar | Lögð fram greinargerð um stöðu á sölu eigna Fjarðabyggðar samkvæmt samþykktum bæjarstjórnar, ásamt tillögu að sölu og söluaðferð 3ja eigna að auki. Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og felur fjármálastjóra að vinna málið áfram.
| | |
|
3. 2209216 - Foktjón í september 2022 | Farið yfir tjón á mannvirkjum og eignum vegna ofsaveðurs sem gekk yfir Fjarðabyggð 25. og 26. september. Unnið verður að viðgerðum og uppgjörum tengdum tjónum. | | |
|
4. 2209219 - Ársfundur jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2022 | Framlagt ársfundarboð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudag 12. október kl. 16:00. Bæjarráð felur bæjarstjóra Fjarðabyggðar, Jóni Birni Hákonarsyni að fara með umboð sveitarfélagsins á ársfundinum. | Boð á ársfund Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.pdf | | |
|
5. 2209222 - Umsókn um styrk vegna fornleifarannsókna í Stöð Stöðvarfirði | Framlögð beiðni Félags áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði um fjárstyrk til rannsókna. Bæjarráð lýsir ánægju með störf áhugafólksins og styður við verkefnið með svipuðum hætti og undanfarin ár. Leitað verður leiða til að finna fleiri stuðningsaðila að verkefninu. Vísað til stjórnar menningar- og safnastofnunar. | Umsókn frá Björgvin Valur Guðmundsson.pdf | | |
|
6. 2209228 - Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar | Fram lagt erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar um tækifæri barna til áhrifa og ungmennaráð. Bæjarráð vísar erindi til nefnda sveitarfélagsins til umfjöllunar.
| Erindi_frá_UNICEF_til_Fjarðabyggðar.pdf | | |
|
7. 2209105 - Sundlaug á Reyðarfirði og sundkennsla | Framlagt bréf skólastjórnenda við Grunnskóla Reyðarfjarðar vegna afgreiðslu bæjarráðs á bréfi um sundlaug á Reyðarfirði og sundkennslu. Fjárveiting til aksturs barna í sundkennslu er áætlaður á árinu 2022 með sama hætti og var í áætlun ársins 2021. Lagt fram til kynningar.
| | |
|
8. 2209243 - Uppbygging smáhúsahverfafrístundahúsa í Fjarðabyggð | Framlagður tölvupóstur frá Árnýju Hafborgu Hálfdánardóttur þar sem óskað er eftir fundi með bæjarstjóra og bæjarstjórn vegna uppbyggingar á smáhýsahverfi/frístundahúsum í Fjarðabyggð. Bæjarráð fagnar áformum og felur bæjarstjóra að ræða við málsaðila.
| | |
|
9. 2209128 - Vettvangsferð til Danmerkur á vegum Íslandsstofu vegna vindorkumála. | Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Fjarðabyggðar í vettvangsferð til Danmerkur á vegum Íslandsstofu vegna vindorkumála verði tveir. Bæjarstjóra og formanni bæjarráðs falið að velja fulltrúa til ferðarinnar. | | |
|
10. 2208114 - Tillögur umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um nýtingu vindorku. | Framlögð drög að svari við erindi starfshóps um til nýtingu vindorku. Bæjarráð samþykkir drög að umsögn með uppfærslu sem samþykkt var á fundi.
| | |
|
11. 2209201 - Umsókn um lóð Hlíðarbrekka 1-7 | Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Reisugils ehf um lóðirnar að Hlíðarbrekku 1,3,5, og 7 á Fáskrúðsfirði. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðanna.
| | |
|
12. 2209220 - Umsókn um lóð Hafnarbraut 40 | Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Hrafnshóls EHF um lóð að Hafnarbraut 40, í Neskaupstað. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar og afturkallar þar með úthlutun lóðarinnar til Fjarðabyggðar f.h. Brákar íbúðarfélags hses. | | |
|
| |
14. 2209027F - Fræðslunefnd - 115 | Fundargerð 115. fundar fræðslunefndar frá 28. september lögð fram til afgreiðslu. | 14.1. 2205097 - Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023 | 14.2. 2209113 - Gjaldskrá tónlistarskóla Fjarðabyggðar 2023 | 14.3. 2209161 - Gjaldskrá leikskóla 2023 | 14.4. 2209166 - Gjaldskrá húsnæðis Grunnskóla 2023 | 14.5. 2209105 - Sundlaug á Reyðarfirði og sundkennsla | 14.6. 2209175 - Erindi leikskólastjóranna um vinnutíma | 14.7. 2207054 - Íslenska æskulýðsrannsóknin - Fjarðabyggð | 14.8. 1808078 - Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð | | |
|
15. 2209026F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 105 | Fundargerð 105. fundar íþrótta- og tómstundanefndar lögð fram til afgreiðslu. | 15.1. 2209208 - Launaáætlun íþróttamannvirkja 2023 | | |
|
16. 2209024F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 8 | Fundargerð 8. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 27. september lögð fram til afgreiðslu. | 16.1. 2208083 - Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2023 | 16.2. 2209218 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi | 16.3. 2205208 - 740 Melagata 12 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi | 16.4. 2209220 - Umsókn um lóð Hafnarbraut 40 | 16.5. 2209201 - Umsókn um lóðir Hlíðarbrekka 1-3-5-7 | 16.6. 2209200 - Umsókn um stöðuleyfi | 16.7. 2209217 - Umferðaröryggi - Gatnamót Stekks og Kvíabrekku | 16.8. 2208118 - Fugladauði | 16.9. 2209189 - Ný staðsetning gámasvæða | 16.10. 2209151 - Geymslusvæði Eskju á Eskifirði | 16.11. 2209110 - Lystigarðurinn í Neskaupstað | 16.12. 2209158 - Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2023 | 16.13. 2209170 - Gjaldskrá hunda og kattahald 2023 | 16.14. 2209117 - Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2023 | 16.15. 2202061 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2022 | 16.16. 2209010F - Fjallskilanefnd - 2 | | |
|
17. 2209022F - Mannvirkja- og veitunefnd - 5 | Fundargerð 5. fundar mannvirkja- og veitunefndar frá 26. september lögð fram til afgreiðslu. | 17.1. 2208082 - Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023 | | |
|
18. 2209018F - Félagsmálanefnd - 157 | Fundargerð 157. fundar félagsmálanefndar frá 20. september lögð fram til afgreiðslu. | 18.1. 2209130 - Samstarfssamningur milli Fjarðabyggðar og Múlaþings við Aflið | 18.2. 2208080 - Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2023 | | |
|
| |
13. 2202112 - Barnaverndarnefnd 2022 | Framlögð fundargerð barnaverndarnefndar nr. 157. frá 6. september til afgreiðslu. | | |
|