Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 302

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
09.10.2023 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Eydís Ásbjörnsdóttir varamaður, Einar Hafþór Heiðarsson aðalmaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2305073 - Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2024
Farið yfir stöðuna við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024. Verkefnastjóra hafna falið að taka saman helstu áherslur í minnisblaði sem mun fylgja fjárhagsáætlun.
2. 2309151 - Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2024
Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna lögð fram til umræðu. Hafnarstjórn samþykkir að gjaldskrá taki mið af verðlagsbreytingum og launavísitölu þar sem við á. Verkefnastjóra hafna falið að ganga frá gjaldskrá í samræmi við samþykkt hafnarstjórnar.
3. 2310043 - Ný olíulögn á Bræðslubryggju, Eskifirði
Lögð fram ósk Mannvits, fyrir hönd Gallons ehf., um leyfi til að endurnýja olíulögn við athafnasvæði Eskju á Eskifirði þar sem eldri lögn er ónýt. Hafnarstjórn samþykkir lagningu nýrrar olíulagnar en áréttar að framkvæmdaaðili hagi framkvæmd þannig að hún raski ekki annarri starfsemi á höfninni.
4. 2309225 - Hafnafundur 2023
Boðun á Hafnafund 2023 sem haldinn verður 20. október í Hafnarfirði
5. 2310041 - Samstarfsfundir Hafnasambands Íslands og Fiskistofu
Lagt fram til kynningar bréf Hafnasambands Íslands til allra aðildarhafna varðandi samstarfsfundi Hafnasambands Íslands og Fiskistofu
Fundargerðir til kynningar
6. 2301196 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
Lögð fram til kynningar fundargerð 456. fundar Hafnasambands Íslands
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til bakaPrenta