Til bakaPrenta
Fjölskyldunefnd - 37

Haldinn í Búðareyri 2 fundarherbergi 2,
01.09.2025 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Birgir Jónsson varaformaður, Tinna Hrönn Smáradóttir aðalmaður, Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Laufey Þórðardóttir embættismaður, Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir , Líneik Anna Sævarsdóttir .
Fundargerð ritaði: Laufey Þórðardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2406046 - Farsældarráð Austurlands
Nína Hrönn Gunnarsdóttir kynnir vinnu við og undirbúning farsældaráðs Austurlands.
 
Gestir
Nína Hrönn Gunnarsdóttir - 00:00
2. 2303098 - Nýr vefur fyrir Fjarðabyggð
Upplýsingafulltrúi kynnir nýja heimasíðu Fjarðabyggðar. Stefnt er að því að setja hana í loftið 9. september næstkomandi.
 
Gestir
Haraldur H Líndal - 00:00
3. 2508176 - Reglur um frístundaheimili í Fjarðabyggð
Uppfærðar reglur um frístundaheimili Fjarðabyggðar lagðar fyrir fjölskyldunefnd. Fjölskyldunefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leiti og vísar áfram til bæjarráðs.
4. 2501156 - Samningur við Píeta samtökin
Lagt er fram erindi frá Píeta samtökunum þar sem óskað er eftir endurskoðun samnings vegna aukinnar þarfar og eftirspurnar. Bæjarráð hefur samþykkt að hækka árlegt framlag til Píeta úr 700.000 kr. í 1.500.000 kr. á þessu ári.
5. 2508172 - Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar
Lögð eru fram drög að reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar vegna barnaverndarmála. Fjölskyldunefnd samþykkir þessar reglur fyrir sitt leiti og víum áfram til bæjaráðs.
6. 2508082 - Fundaáætlun fjölskyldunefndar haust 2025
Fundaáætlun fjölskyldunefndar haust 2025 lögð fyrir fjölskyldunefnd til samþykktar. Fjölskyldynefnd samþykkir framlagða fundaáætlun.
7. 2508205 - Sex mánaða yfirlit fjölskyldusviðs
Sex mánaða rekstraryfirlit Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar kynnt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til bakaPrenta