Til bakaPrenta
Bæjarráð - 844

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
22.04.2024 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2403184 - Samningur Norðfjarðarflugvöll - árleg yfirferð
Fjallað um rekstur Norðfjarðarflugvallar og samstarf Isavia og Fjarðabyggðar um rekstur hans.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fylgja eftir samkomulagi við Isavia um rekstur Norðfjarðarflugvallar svo hann þjóni hlutverki sínu sem sjúkraflugvöllur áfram. Tæplega eitt hundrað sjúkraflug fóru um flugvöllin á síðasta ári.
2. 2402258 - Úrsögn úr undirkjörstjórn á Reyðarfirði
Skipan fulltrúa i undirkjörstjórn á Reyðarfirði í stað Aðalheiðar Vilbergsdóttur sem sagði sig úr stjórninni og sem formaður.
Bæjarráð samþykkir að skipa Láru Björnsdóttur sem aðalmann og Andrea Borgþórsdóttir tekur við formennsku. Vísað til bæjarstjórnar.
3. 2404142 - Landsmót Harmonikkuunnenda sumar 2025
Framlagt erindi Félags harmonikkuunnenda þar sem kynnt er áform um að Landsmót Harmonikkuunnenda sumar 2025 verði haldið í íþróttahúsinu á Reyðarfirði. Óskað er eftir styrk til mótshaldsins.
Bæjarráð tekur vel í beiðni félagsins og leggur fram íþróttahúsið sem mótstað og felur upplýsingfulltrúa að vera í samskiptum við félagið um útfærslu þegar nær líður viðburði.
Tölvupóstur um landsmót harmonikkuunnenda.pdf
4. 2404123 - Uppbygging hleðsluinnviða í Fjarðabyggð
Framlagt bréf frá Orku Náttúrunnar um uppbyggingu hleðsluinnviða.
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að ræða við fulltrúa félagsins.
Vísað til skipulags- og framkvæmdanefndar.
5. 2404001 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugerði 18
Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til stækkun lóðarinnar Brekkugerði um 15 metra til austurs.
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar.
730 Brekkugerði 18 LB.pdf
6. 2207125 - Breiðablik þjónustuíbúðir aldraðra - ástand húsnæðis
Framlögð tillaga að svari til HAUST vegna Breiðabliks.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að svari og felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að svara heilbrigðiseftirliti á grundvelli umræðna á fundinum ásamt því að funda með íbúum í Breiðabliki. Svarinu jafnframt vísað til starfshóps um nýtingu fasteigna í eigu Fjarðabyggðar.
 
Gestir
Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs - 00:00
7. 2305266 - Slökkvilið Fjarðabyggðar - málefni
Farið yfir málefni slökkviliðs.
 
Gestir
Aðalvarðstjóri - 00:00
Slökkviliðsstjóri - 00:00
8. 2404122 - Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands hf. 2024
Framlagt aðalfundarboð Sparisjóðs Austurlands hf. fyrir árið 2024 en fundurinn verður haldinn 30. apríl nk. kl. 14:00.
Bæjarráð samþykkir að fela Jónu Árnýju Þórðardóttur bæjarstjóra að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinn.
Fundarboð til hluthafa.pdf
9. 2308105 - Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024
Framlagt yfirlit yfir stöðu verkefna vegna áfangastaða ferðamanna.
 
Gestir
Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs - 00:00
10. 2009034 - Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Kynntar niðurstöður útboðs ofanflóðavarna í Nes- og Bakkagiljum.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með niðurstöður útboðsins og að framkvæmdir geti hafist og leggur áherslu á að þær hefjist með vorinu.
11. 2404109 - Hringferð Neytandasamtakanna
Neytendasamtökin er á hringferð um landið og óska fundar með bæjarfulltrúm miðvikudag 8. maí.
Bæjarráð samþykkir að funda með samtökunum.
Fundur 8.maí kl.12.pdf
12. 2305139 - Umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga um vindorkuskýrsluna
Framlögð til kynningar umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um áform um breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun.
Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um áform um breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun.pdf
13. 2307081 - Stjórnsýslukæra
Framlagður til kynningar úrskurður innviðaráðuneytisins vegna kæru landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði vegna ágangs sauðfjár.
Úrskurður í máli nr. IRN23111065 (1).pdf
14. 2404161 - Til umsagnar 900.mál
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun (virkjunarkostir í vindorku), 900. mál.
Bæjarstjóra falið að útbúa drög að umsögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
Til umsagnar 900.mál.pdf
15. 2404162 - Til umsagnar 899.mál
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi, 899. mál.
Bæjarstjóra falið að útbúa drög að umsögn og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
Til umsagnar 899.mál.pdf
16. 2311224 - Fundargerðir Austurbrúar og SSA
Fundargerð 148. og 149. fundar stjórnar Austurbrúar lögð fram til kynningar
148.-stjornarfundur-Austurbruar-220324.pdf
149.-stjornarfundur-Austurbruar-160424.pdf
17. 2311224 - Fundargerðir Austurbrúar og SSA
Fundargerð 19. og 20. fundar stjórnar SSA lögð fram til kynningar
19.-fundur-SSA-220324.pdf
20.-fundur-SSA-160424-.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
18. 2404010F - Fjölskyldunefnd - 3
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 15. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
18.1. 2403229 - Aðstoðuleysi í Oddskarði
18.2. 2404038 - Beiðni um styrk til reksturs Bjarmahlíðar
18.3. 2404090 - Landshlutafundur
18.4. 2403230 - Einangrun og kynding í Fjarðabyggðarhöllina
18.5. 2404011 - Reglur Fjarðabyggðar um þjónustuíbúðir fyrir eldra fólk
18.6. 2404072 - Kuldaboli 2024
18.7. 2404071 - Fundaáætlun fjölskyldunefnd vor 2024
19. 2404015F - Skipulags- og framkvæmdanefnd - 7
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 17. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
19.1. 2303218 - Lóðarmál við Hjallaleiru 13 til 19
19.2. 2404135 - Mógerði 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
19.3. 2404086 - Bakkabakki 2b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
19.4. 2403188 - Brekkugata 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
19.5. 2402155 - Bakkavegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
19.6. 2404075 - Austurvegur 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
19.7. 2404002 - Svarthamrar - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
19.8. 2402175 - Sæbakki 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
19.9. 2402273 - Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði
19.10. 2403082 - Aðalskipulag óverulegbreyting á aðalskipulagi Stöðvarfjörður tjaldsvæði
19.11. 2404001 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugerði 18
19.12. 2302213 - Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
19.13. 2404096 - Breyting á samþykkt um fiðurfé
19.14. 2402159 - Drög að breytingum á reglum um stöðuleyfi lausafjármuna
19.15. 2404108 - Óskum eftir að fá að setja bekk við Barkinn á Reyðarfirði
19.16. 2404097 - IMaR 2024 ráðstefnan
19.17. 2403204 - Umsagnarbeiðni um stækkun á athafna- og hafnasvæði Djúpavogs
19.18. 2403283 - Saman gegn sóun - tækifæri til að hafa áhrif á nýja stefnu um úrgangsforvarnir
19.19. 2404083 - Vor í Fjarðabyggð - bæklingur
20. 2404014F - Starfshópur um nýtingu mannvirkja í rekstri Fjarðabyggðar - 1
Fundargerð starfshóps um nýtingu mannvirkja í eigu Fjarðabyggðar frá 16. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarráð staðfestir fundargerðina og vísar henni til kynningar í fjölskyldunefnd og skipulags- og framkvæmdanefnd.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta