Til bakaPrenta
Bæjarráð - 763

Haldinn í Molanum fundarherbergi 3,
05.09.2022 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Birgir Jónsson varamaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2205271 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026
Lögð fram tillaga að úthlutun ramma fyrir A hluta Fjarðabyggðar til vinnslu í nefndum vegna ársins 2023, ásamt áætlun um sjóðsstreymi auk umfjöllunar fjármálastjóra um tillöguna og áætlaðan rekstur Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir framlagðan fjárhagsramma áætlunar 2023 og felur bæjarstjóra að gefa þá út til nefnda.
2. 2208172 - Stytting vinnuvikunar hjá Slökkvilið Fjarðabyggðar
Framlagt minnisblað slökkvistjóra varðandi útfærslur á styttingu vinnuvikunar hjá Slökkviliði Fjarðabyggðar.
Lagt fram til kynningar.
3. 2209011 - Samningur um undirbúningsvinnu vegna þróunarfélags - Trúnaðarmál
Lögð fram sem trúnaðarmál drög að samningi við KPMG um vinnu að skilgreiningu og undibúningi að stofnun þróunarfélags um grænan orkugarð í Fjarðabyggð ásamt tillögu að verkefnalýsingu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að samningi og leggja hann fyrir bæjarráð til staðfestingar.
4. 2209018 - Björgunarhringir við vötn í Fjarðabyggð
Framlagður tölvupóstur frá Slysavarnardeildinni Hafdísi um uppsetningu björgunarhringja við vötn í Fjarðabyggð.
Vísað til mannvirkja- og veitunefndar til úrvinnslu.
Bréf Slysavarnardeildar Hafdísar - björgunarhringir við vötn.pdf
5. 2208175 - Fjallskilasamþykkt SSA
Framlagt bréf Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um endurskoðun fjallskilasamþykktar en hún hefur tekið breytingum frá því sem hún var upphaflega afgreidd í gegnum landbúnaðarnefnd og eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Fjallskilasamþykkt hefur ekki fengið formlega afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarráð vísar fjallskilasamþykktinni til umfjöllunar fjallskilanefndar og umhverfis- og skipulagsnefndar.
Fjallskilasamþykkt_bréf_sveitarfélög.pdf
6. 2209030 - Endurskoðun samnings um sjúkraflutninga í Fjarðabyggð
Fram lögð til kynningar kröfulýsing vegna sjúkraflutninga og minnisblað sem
trúnaðarmál vegna endurskoðun samnings um sjúkraflutninga í Fjarðabyggð við Heilbrigðisstofnun Austurlands.
7. 2209031 - Yfirlýsing vegna kaupréttar
Umræða tekin um yfirlýsingu og forkaupsréttarákvæði samnings um Hafnargötu 6 á Reyðarfirði sem er orðin virk.
Bæjarráð samþykkir að virkja forkaupsréttarákvæði og felur bæjarstjóra að hefja viðræður við eigenda fasteignarinnar.
Fundargerðir til kynningar
8. 2201106 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022
Fundargerð 912. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 912.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta