| |
| 1. 2510108 - Uppbygging fyrsta áfanga Íslenska stríðsárasafnsins | Framlögð niðurstaða verðkönnunar vegna uppsteypu sökkla, platna og veggja í I. áfanga Íslenska stríðsárasafnsins. Stjórn samþykkir að tilboði lægstbjóðanda verði tekið, Launafl ehf. sem var undir kostnaðaráætlun. Stjórn leggur áherslu á að tímamörk verkþáttarins standi en þau eru í maí 2026. Vísað áfram til bæjarráðs. | | Niðurstaða verðkönnunar I. áfangi.pdf | | |
|
| 2. 2601050 - Reglur um listamann Fjarðabyggðar og listaverk | Lögð fram tillaga að uppfærðum reglum um listaverk og listamann Fjarðabyggðar. Stjórn samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og felur forstöðumanni og bæjarritara að uppfæra þær til samræmis við umræður á fundinum og vísar þeim til staðfestingar bæjarráðs. | | Minnisblað - breytingar á listaverkareglum og reglum um listamann Fjarðabyggðar..pdf | | |
|
| 3. 2602064 - Reglur um menningarstyrki | Fjallað um reglur um úthlutun menningarstyrkja og fyrirkomulag þeirra en styrkveitingar tvöfaldast á milli ára. Framlögð drög að reglum. Stjórn lýst vel á reglurnar og felur forstöðumanni og bæjarritara að uppfæra þær til samræmis við umræður á fundinum. Vísað til næsta fundar stjórnar. | | Minnisblað -.pdf | | |
|
| 4. 2211009 - Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar | Fjallað um endurskoðun menningarstefnu Fjarðabyggðar. Stjórn samþykkir tillögur að verklagi við endurskoðun menningarstefnunnar. Forstöðumaður leiðir verkefnið og leggur fyrir stjórn upplýsingar um framgang vinnunnar. | | Minnisblað - endurskoðun menningarstefnu Fjarðabyggðar.pdf | | |
|
| 5. 2602053 - Verkefni menningarstofu 2026 | Farið yfir verkefni menningarstofu á komandi ári, lista- og menningarhátiðina innsævi og áherslur í menningarstarfi. Stjórn fór yfir verkefnin. | | |
|
| 6. 2510141 - Umsóknir í Safnasjóð 2025 | Framlagðar niðurstöður úthlutunar safnasjóðs úr aðalúthlutun fyrir árið 2026. Öndvegisstyrkur að fjárhæð 3,5 til þriggja ára var veittur vegna verkefnisins sameining safna Fjarðabyggðar og ársstyrkur að fjárhæð 2 m.kr. vegna eftirfylgni með athugasemdum safnaráðs, viðbragðsætlanir og neyðarkistur. Vísað til úrvinnslu hjá menningarstofu. | | Safnaráð 23. janúar tilkynning um öndvegisstyrk.pdf | | Safnaráð 23. janúar tilkynning um ársstyrk.pdf | | |
|
| 7. 2511096 - Reglulegur stuðningur við Sinfóníuhljómsveit Austurlands | Fjallað um málefni Sinfóníuhljómsveitar Austurlands, samstarf og fjármögnun til verkefna hennar. Stjórn fól forstöðumanni að útfæra ramma að samkomulagi um árlegt framlag til þriggja ára til eflingar starfs Sinfóníuhljómsveitar Austurlands. Stjórn samþykkir tillögu forstöðumanns um árlegt fast framlag að fjárhæð 1 m.kr. til þriggja ára og felur honum að útfæra samkomulagið og bæjarstjóra undirritun þess. | | |
|