| |
1. 2503070 - Lögbýlisumsókn Blávík | Framlögð endurnýjuð beiðni um umsögn vegna lögbýlisumsóknar. Skipulags- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhuguð áform og felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að gera umsögn.
| | |
|
2. 2009034 - Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður | Vísað frá bæjarráði til skipulags- og frakvæmdanefndar minnisblaði Verkís vegna endurskoðunar á hönnun ofanflóðamannvirkja í Nes- og Bakkagilum á Norðfirði, keiluraðir. Skipulags- og framkvæmdanefnd lýst vel á tillögu um að fjölga keilum. | | |
|
4. 2506016 - Styrkur til að þróa viðskiptaáætlun og orkuskiptaplan | Styrkur til að þróa viðskiptaáætlun og orkuskiptaplan. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vera í sambandi við verkefnastjóra Eyglóar. | | |
|
5. 2506018 - Byggingarleyfi Skorrastaðir 3E | Umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarhús við Skorrastaði 3E. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Framkvæmdin er ekki talin hafa grenndaráhrif og erindinu vísað til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. | | |
|
6. 2506037 - Skipulag skógræktar í landinu | Skipulag skógræktar í landinu. Skipualgs- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna og tekur undir mikilvægi þess að vernda þurfi íslenska náttúru. | Skipulag_skograektar_Fjardabyggd.pdf | | |
|
7. 2505170 - Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2026 | Önnur umræða um starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdasviðs fyrir árið 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar yfirferð sviðstjóra. | | |
|
8. 2410182 - Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun | Lögð fyrir lýsing og tillaga á vinnslustigi um breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 sem felur í sér breytt ákvæði fyrir reit AT-301 á Reyðarfirði þar sem rýmkaðar eru heimildir fyrir íbúðir og þjónustu á hluta reitsins. Skipulags= og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að kynna gögnin í samræmi við ákvæði skipulagslaga og vísar erindinu í bæjarstjórn. | A1723-001-U02 Íbúðir á athafnasvæði AT-301.pdf | | |
|
| |
3. 2502155 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2025 | Fundargerð 185. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna. | 185.fundargerðHeilbrigðisnefndar.pdf | | |
|