Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 19

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
21.02.2023 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Jóhanna Guðný Halldórsdóttir varamaður, Ingunn Eir Andrésdóttir varamaður, Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Aron Leví Beck, umhverfis- og skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 1703117 - 735 - Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði
Deiliskipulag Skíðasvæðisins í Oddsskarði til samþykktar og svör við athugasemdum sem bárust á aulýsingatíma. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur svarað athugasemdum og vísar deiliskipulaginu til samþykktar í bæjarstjórn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að senda skipulagið til skipulagsstofnunar og í auglýsingu í B tíðindum eftir samþykki bæjarstjórnar.
1860-055-GRE-01-V06-Greinargerð og umhverfisskýrsla fyrir Dsk Oddsskarð.pdf
1860-055-TEK-01-V05-Deiliskipulag_Oddsskard-Uppdráttur.pdf
viðbrögð við athugasemdum.pdf
2. 2302063 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Starmýri 13
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Starmýri 13, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
3. 2302110 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðareyri 6
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Búðareyri 6, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
4. 2302111 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Búðargata 4
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Búðatrgötu 4, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
5. 2302049 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bleiksárhlíð 15
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Bleiksárhlíð 15, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
6. 2302056 - Umsókn um lóð Borgarnaust 5
Umsókn um lóð að Borgarnaust 5, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
7. 2302057 - Umsókn um lóð Blómsturvellir 31
Umsókn um lóð að Blómsturvöllum 31, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að hefja vinnu við grenndarkynningu.
8. 2302054 - Erindi frá íbúum við Búðaveg 24
Erindi frá íbúum við Búðaveg 34 á Fáskrúðsfirði vegna hávaðamengunar við húsið. Umhverfis- og skipulagsnefnd lýsir yfir áhyggjum á að forsendur byggingarleyfis séu brostnar. Fyrir liggur úrbótaáætlun sem gerð var af Eflu að beiðni Loðnuvinnslunar, umhverfis- og skipulagsnefnd beinir því til Loðnuvinnslunar að hefja umsóknarferli fyrir úrbætur strax.

Viðbótarbókun Heimis Snæs Gylfasonar og Ingunnar Eir Andrésdóttir, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Jóhönnu Guðnýar Halldórsdóttir, fulltrúa Fjarðalistans: gerð er alvarleg athugasemd við seinagang HAUST á málinu og samkiptaleysi við umhverfis- og skipulagsnefnd og óskað er eftir betri samskiptum hér eftir í alvarlegum málum sem þessum.





Hávaðamengun við Búðaveg 24 (002).pdf
230131 min-006-v1_motvargisadgerdir.pdf
9. 2302016 - Umsókn um breytingar á lóð við Búðareyri 29b á Reyðarfirði
Vísað frá Bæjarráði til nefndarinnar umsókn ABC bygginga um breytingar á lóðinni að Búðareyri 29 b.

Bæjarráð óskar eftir því við umhverfis- og skipulagsnefnd að málið fari til frekari úrvinnslu áður en það fer til grenndarkynningar og afgreiðslu.

Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera samning er varðar stöðuleyfi til þriggja ára möguleika á endurnýjun fyrir starfsmannabústað við Búðareyri 29b.
Umsókn um breytingar á lóð við Búðareyri 29b á Reyðarfirði.pdf
Úr reglugerð um hollustuhætti.pdf
Budareyri 29B.pdf
10. 2302098 - Umsagnarbeiðni vegna Leafless Apartment Breiðdalsvík
Umsagnarbeiðni vegna Leafless Apartment Breiðdalsvík. Umhverfis- og skipulagsnefnd bendir á að skv. almennum skilmálum fyrir landflokkinn íbúðabyggð í aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040 er tekið fram:

"Á íbúðarsvæðum er ekki gert ráð fyrir nýjum leyfum fyrir gistingu í flokki II, III og IV skv. rg. 1277/2016".

Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að skrifa umsögn þess efnis.
Nákvæm teikning af húsnæði (PDF) 14.2.2023 13.39.22.pdf
Umsagnarbeiðni-2023008807.pdf
11. 2301094 - Aðalskipulag br. skógrækt
Aðalskipulag Fjarðabyggðar. Breyting á skilmálum landflokksins Landbúnaðarland vegna stærðar á skógrækt. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tillöguna á vinnslustigi og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráði.
12. 2302141 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Grímseyri 2
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Grímseyri 2, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
13. 2302139 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Grímseyri 4
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Grímseyri 4, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
14. 2302145 - Vegna söfnunarstöðvar
Erindi frá Íbúasamtökum Fáskrúðsfirðinga vegna söfnunarstöðvar. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar erindið og vísar í niðurstöður 18. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar.
Söfnunarstöðvar.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta