Til bakaPrenta
Bæjarráð - 860

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
26.08.2024 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2403158 - Rekstur málaflokka 2024
Lagt fram yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - júní 2024 auk yfirlits yfir skatttekjur og launakostnað janúar - júlí 2024. Einnig lagt fram samandregið yfirlit yfir reksturinn fyrstu 6 mánuði ársins.
 
Gestir
Deildarstjóri fjármálasviðs - 00:00
Fjármálastjóri - 00:00
2. 2408088 - Árshlutareikningur Fjarðabyggðar og stofnana 30.6. 2024
Lagður fram árshlutareikningur fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2024. Árshlutareikningurinn er án endurskoðunnar og tekur mið af stöðu bókhalds 30.6. júní 2024.
Árshlutareikningur 30.06.24.pdf
 
Gestir
Deildarstjóri fjármálasviðs - 00:00
Fjármálastjóri - 00:00
3. 2404213 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025
Farið yfir forsendur fjárhagsáætlunar og undibúnings úthlutnar ramma fyrir árið 2025.
Bæjarráð samþykkir forsendur að tillögum um rammaúthlutun fyrir deildir og svið fyrir árið 2025. Úthlutun ramma tekin fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
Ný þjóðhagsspá Hagstofu og forsendur (sumar 2024).pdf
Þjóðhagsspá í júní 2024.pdf
 
Gestir
Deildarstjóri fjármálasviðs - 00:00
Fjármálastjóri - 00:00
4. 2306063 - Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Framlagt svar landeigenda að Óseyri í Stöðvarfirði vegna afgreiðslu erindis þeirra um ágangsfé í landi þeirra.
Bæjarráð samþykkir að haft verði samband við fjáreigendur sem líkindi eru til að eigi féð og þeim gefinn kostur á að smala féð og þeim veittur andmælafrestur.
Tölvupóstur landeigenda Óseyrar 22.08.2024.pdf
Tölvupóstur landeigenda Óseyrar 21.08.2024.pdf
Tölvupóstur landeigenda Óseyrar 20.08.2024.pdf
Beiðni um smölun 10.8.24 (1).pdf
Tölvupóstur 23 24 25.pdf
5. 2407007 - Ágangsfé í landi Áreyja
Fjallað um ágang sauðfjár í landi Áreyja í framhaldi af samþykkt bæjarráðs frá 12. ágúst.
Búið er að ræða við hlutaðeigandi aðila og beðið viðbragða. Frestað til næsta fundar bæjarráðs.
6. 2408089 - Stjórnsýslukæra vegna ágangsfjár í landi Óseyrar
Framlagt erindi innviðaráðuneytisins vegna stjórnsýslukæru landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði.
Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi ráðuneytisins.
Tölvupóstur innviðaráðuneytis.pdf
Stjórnsýslukæra landeigenda Óseyrar vegna ágangsmáls.pdf
7. 2405120 - Byggingarleyfi Búðareyri 10
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að tilfærslu á lóðarmörkum við Búðareyri 10 á Reyðarfirði um 7,5m til vesturs en lóðin mun stækka sem því nemur.
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðarinnar og felur skipulagsfulltrúa að kynnt nálægum fasteignaeigendum.
Budareyri_10-BREYTING.pdf
8. 2408096 - Endurnýjun körfubíls
Framlagt minnisblað slökkviliðsstjóra um endurnýjun á körfbíl slökkviliðs en hann er frá árinu 1991 og er fyrirliggjandi viðhald á bílnum sem óvissa er um hversu mikil yrði.
Bæjarráð samþykkir að gert verði tilboð í körfubíl.
9. 2011203 - Stjórnkerfisnefnd 2020-2024
Fjallað um stjórnkerfi Fjarðabyggðar.
Fundargerðir til staðfestingar
10. 2408009F - Skipulags- og framkvæmdanefnd - 14
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. ágúst fram lögð til umfjöllunar og afgreiðslu.
10.1. 2407040 - Byggingarleyfi Heiðarvegur 11 bílskúr
10.2. 2406117 - Byggingarleyfi Móbakki 16
10.3. 2408038 - Byggingarleyfi Búðareyri 25
10.4. 2407070 - Umsókn um byggingarleyfi Búðareyri 29
10.5. 2402003 - Áhrif skerðingar á orku til fjarvarmaveita
10.6. 2407053 - Beiðni um umsögn vegna starfsleyfisumsóknar - Efnismóttaka og landfylling Mjóeyrarhöfn
10.7. 2302013 - Deiliskipulag Balinn, Stöðvarfirði
10.8. 2408002 - Ársskýrsla HAUST 2024
10.9. 2407095 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 28.
10.10. 2405120 - Tilfærsla á lóðarmörkum Búðareyri 10
Samúðarkveðjur vegna atburða í Neskaupstað.
Bæjarráð þakkar hlýjar kveðjur sem borist hafa sveitarfélaginu vegna þeirra hörmulegu atburða sem hafa orðið í Fjarðabyggð síðustu daga.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta