Til bakaPrenta
Bæjarráð - 797

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
02.05.2023 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2301106 - Búsetuúrræði-Trúnaðarmál
Framlagt sem trúnaðarmál minnisblað um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að unnið verði áfram að málinu á grundvelli minnisblaðs.
2. 2303238 - Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023
Framlögð drög að ráðningabréfi Deloitte vegna stöðuúttektar á stjórnsýslu Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið og felur bæjarstjóra undirritun þess.
3. 2304306 - Vegna kæru á hljóðmön - krafa um endurgreiðslu málskostnaðar.
Framlagt bréf vegna kröfu um endurgreiðslu málskostnaðar.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
4. 2103191 - Málefni brothættra byggða
Verkefnastjóri brothættra byggða fór yfir verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður.
 
Gestir
Valbjörg Ösp Árnadóttir Waren - 00:00
5. 2304207 - Suðurlandsvegur við Breiðamerkurlón
Framlagt til kynningar erindi Guðmundar G. Norðdhal vegna Suðurlandsvegar við Breiðamerkurlón
6. 2304217 - Erindi vegna stöðu skjalasafns Norðfjarðar
Framlagt til kynningar erindi Áslaugar Lárusdóttur vegna Skjalasafns Norðfjarðar.
Á fjárfestingaráætlun ársins er gert ráð fyrir lokaáfanga byggingar skjalasafnsins að Þiljuvöllum á Norðfirði og hillir undir flutning skjalasafnsins í varanlegt húsnæði.
Vísað til stjórnar Menningarstofu og Safnastofnunar.
7. 2304247 - Aðalfundarboð 2023 - Olíusamlagið
Framlagt fundarboð vegna aðalfundar Olíusamlags Útvegsmanna í Neskaupstað sem haldinn er 5. maí.
Bæjarráð samþykkir að fela Stefáni Þór Eysteinssyni formanni bæjarráðs að fara með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.
8. 2304258 - Til umsagnar 945. mál um kosningalög frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis sent til umsagnar frumvarp til laga um kosningalög o.fl., 945. mál. Umsagnarfrestur er til 10. maí nk.
Vísað til formanns yfirkjörstjórnar Fjarðabyggðar.
9. 2108027 - Þróun hafnarsvæða
Framlagt sem trúnaðarmál.
10. 2302095 - Umsókn um stofnframlög á árinu 2023
Framlagðar til staðfestingar 3 umsóknir Fjarðabyggðar til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um stofnframlög f.h. Brákar íbúðafélags hses vegna byggingar 12 íbúða á Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði. Jafnframt er lagt til að Fjarðabyggð samþykki veitingu stofnframlaganna í samræmi við minnisblað.
Bæjarráð samþykkir að veita umbeðið stofnframlag og umsókn til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
11. 2304053 - Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga 21.apríl 2023
Fundargerð aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga lögð fram til kynningar.
12. 2304286 - Skólavegur 70A Fáskrúðsfirði - sala lóðarréttinda
Framlögð beiðni frá Minjavernd um heimild til að selja lóðarréttindi vegna Skólavegar 70A og gerð nýs lóðarleigusamnings.
Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
13. 2011203 - Stjórnkerfisnefnd 2020-2023
Bæjarráð sem stjórnkerfisnefnd tekur til umfjöllunar tillögur bæjarstjóra að breytingum á stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir tillögur bæjarstjóra og felur honum úrvinnslu tillögunnar. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
14. 2304288 - Ráðning sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs
Framlögð tillaga bæjarstjóra um starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs.
Bæjarstjóri leggur til að Svani Frey Árnasyni verði falið starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs til eins árs.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra.
15. 2304231 - Viðauki um samning um kaup á malbikunarþjónustu
Vísað frá mannvirkja- og veitunefnd sem trúnaðarmáli viðauka við samning um malbikunarstöð frá 25.2.2020 vegna efnistöku í Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
16. 2210143 - Samskiptastefna 2022-2026
Framlögð minnisblöð upplýsingafulltrúa varðandi stefnu innri samskipta og samskipta-og vefstefnu Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir stefnur fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar. Stefnur verði settar til árs til að byrja með og endurskoðaðar að þeim tíma liðnum.
17. 2304304 - Yfirtaka á gjafasjóðum vegna Hulduhlíðar
Ragnar Sigurðsson vék af fundi við umfjöllu og afgreiðslu dagskrárliðar.
Framlagður tölvupóstur frá Góðvinum Hulduhlíðar þar sem óskað er eftir að félagið yfirtaki gjafasjóði Hulduhlíðar sem eru í fórum Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir að afhenda sjóðina Góðvinum Hulduhlíðar til ráðstöfunar.
Fundargerðir til kynningar
18. 2304305 - Fundagerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands 2023
Fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands lögð fram til kynningar.
Málefni Reykjavíkurflugvallar
Ályktun
Fjarðabyggð lýsir yfir þungum áhyggjum vegna ákvörðunar Innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu í Skerjafirði. Með ákvörðuninni er samkomulag ríkisins og Reykjavíkurborgar frá 2019 haft að engu þar sem forsenda þess var að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar þar til nýr flugvöllur er tilbúinn til notkunar. Reykjavíkurflugvöllur sinnir mikilvægu hlutverk og er lífæð landsbyggðanna. Með uppbyggingu í Skerjafirði er vegið að framtíð og öryggi landsbyggðanna gagnvart sjúkraflugi og nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sem og aðgengi almennings, atvinnulífi og stjórnsýslu að mikilvægum innviðum. Fjarðabyggð skorar á borgarstjórn og Innviðaráðherra að fresta ákvörðuninni þar til að sú vinna sem lagt var upp með í fyrrgreindu samkomulagi sé lokið og framtíðarlausn innanlandsflugs tryggð.

Þuríður Lillý Sigurðardóttir leggur fram eftirfarandi ályktun.
Fjarðabyggð ítrekar, sem áður, mikilvægi þess að standa vörð um Reykjavíkurflugvöll. Flugvöllurinn er mikilvægur hlekkur í tryggum samgöngum fyrir landsbyggðina og tenging hennar við höfuðborgina. Það er bæði öryggis- og hagsmunamál að völlurinn getið þjónað þeim fjölbreyttu hlutverkum sem honum eru ætluð. Hann er mikilvægur hlekkur þegar litið er til sjúkraflugs, aðgengi almennings að innviðum og uppbyggingu ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Reykjavík er höfuðborg okkar allra, hún hefur skipulagsvald yfir Skerjafirði og ætti aldrei að stofna rekstaröryggi Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri í hættu meðan honum hefur ekki verið fundin önnur staðsetning.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30 

Til bakaPrenta