Til bakaPrenta
Stjórn menningarstofu - 11

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
11.11.2024 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Jón Björn Hákonarson formaður, Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm varaformaður, Arndís Bára Pétursdóttir aðalmaður, Gunnar Jónsson embættismaður, Jóhann Ágúst Jóhannsson embættismaður, Þórhildur Tinna Sigurðardóttir embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2206071 - Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Vísað frá öldungaráði til stjórn menningarstofu til kynningar á niðurstöðu og athugasemdum ráðsins að útfærslu á skipulagi lóðar og húsnæðis Íslenska stríðsárasafnsins. Jafnframt rætt um áfangaskiptingu uppbyggingar safnsins og kostnað þess.
Stjórn fór yfir drög að áfangaskiptingu framkvæmda og óskar eftir upplýsingum um kostnað við áfanga framkvæmdanna auk þess að fá tilboð í gerð bogaskemma sem áformað er að reisa að svæðinu.
AK2402_A01 Stridsarasafn_Yfirlitsmynd_A3_500.pdf
2. 2411048 - Safnasjóður 2024 - umsóknir og styrkveitingar
Verkefnastjóri menningarmála kynnti þrjár umsóknir um styrki í safnasjóð sem unnar hafa verið og sótt hefur verið um í sjóðinn frá Sjóminjasafni Austurlands í samstarfi við söfnin í Fjarðabyggð. Jafnframt greint frá umsóknum í uppbyggingarsjóð.
3. 2401039 - Verkefni menningarstofu 2024
Forstöðumaður fór yfir verkefni sem eru á döfinni næstu misseri ásamt þeim verkefnum sem unnið hefur verið að síðustu vikur. Dagskráin næstu vikur og fram að jólum er að mótast og verður mikið af viðburðum á vegum menningarstofunnar sem verður fjölbreytt.
Stjórnin fagnar viðburðarríkri dagskrá sem er framundan og ánægju með viðburði haustsins.
4. 2402019 - Erindi varðandi styrk til fornleifarannsókna í Stöðvarfirði
Vísað frá bæjarráði til stjórnar menningarstofu beiðni Félags um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði um fjárstuðning á árinu 2025. Stjórn hefur lagt til óbreytt framlag á árinu 2025 til framhalds rannsóknanna.
Tölvupóstur um styrk til fornleifarannsókna.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:45 

Til bakaPrenta