| |
1. 2204062 - Rekstur málaflokka 2022 - TRÚNAÐARMÁL | Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit yfir rekstur Fjarðabyggðar fyrstu sex mánuði ársins 2022, auk deildayfirlits fyrir sama tímabil. | | |
|
2. 2205271 - Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023 - 2026 | Lagt fram minnisblað og tillögur fjármálastjóra um tekju- og gjaldaforsendur fjárhagsáætlunar ársins 2023 og 3ja ára áætlunar fyrir árin 2024-2026. Vísað til áframhaldandi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023 og tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs. | | |
|
3. 2002002 - Álagning vatnsgjalds - breytt aðferð álagningar | Framlögð samantekt fjármálastjóra á hugmyndum um breytingu á álagningu vatnsgjalds í Fjarðabyggð frá 2020. Bæjarráð samþykkir að hefja vinnu við breytingu á framsetningu álagningar á vatnsgjaldi þar sem horft verður til stærðar eigna í sveitarfélaginu í stað verðmætis. Fjármálastjóra falið að hefja þá vinnu í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar 2023. | | |
|
4. 2208075 - Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2021 | Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2021 lagður fram til undirritunar. Ársreikningurinn hefur þegar verið samþykktur í samstæðureikningi Fjarðabyggðar. | | |
|
5. 2208018 - Grenndarkynning Hrauntún 3-5 og 7-13 raðhúsarlóð | Grenndarkynning vegna breytinga á lóðum Hrauntúni 1-9 á Breiðdalsvík lögð fram til samþykktar. Bæjarráð samþykkir grendarkynninguna. | | | Gestir | Umhverfis- og skipulagsfulltrúi - 00:00 | |
|
6. 2208086 - Bréf frá íbúasamtökum Stöðvarfjarðar | Lagt fram erindi frá íbúasamtökum Stöðvarfjarðar. Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til umfjöllunar í mannvirkja og veitunefnd. | | |
|
7. 2207037 - Breyting á eldisfyrirkomulagi Fiskeldis Austfjarða í Fáskrúðsfirði | Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn vegna tilkynningar Fiskeldis Austfjarða hf. á breytingu á eldisfyrirkomulagi í Fáskrúðsfirði. Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að ganga frá umsögn í samræmi við fyrri umsagnir sveitarfélagsins. | | | Gestir | Atvinnu- og þróunarstjóri - 00:00 | |
|
8. 2004159 - Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa | Skráningar í heilsueflingu 65 ára og eldri hófust mánudaginn 8. ágúst og hafa 130 manns skráð sig. Upphaflega var fjárhagslegt samþykki fyrir 80 manns í verkefninu. Deildarstjóri óskar þess vegna eftir auka fjármagni til verkefnisins til að mæta aukinni eftirspurn og samkomulag liggur fyrir við Janus heilsueflingu varðandi það. Bæjarráð fagnar þessum mikla áhuga á verkefninu og samþykkir að veita 1.735.000 kr. til verkefnsins af liðnum óráðstafað. | | |
|
9. 2207002 - Íslandsdagar 23. til 26. september Gravelines | Gert er ráð fyrir að bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar sæki hátíðahöld þessa árs, ásamt fulltrúa frá skipulagsnefnd Franskra daga. | programme délégations 2022.pdf | | |
|
10. 2103191 - Málefni brothættra byggða | Bæjarráð samþykkir að Stefán Þór Eysteinsson taki sæti Eydísar Ásbjörnsdóttur í starfshópi um verkefnið Brothættar byggðir á Stöðvarfirði. | | Bæjarráð Fjarðabyggðar sendir fyrir hönd bæjarstjórnar og íbúa Fjarðabyggðar hugheilar samúðarkveðjur til sveitarstjórnar og íbúa Húnabyggðar vegna þeirra hörmungaratburða sem áttu sér stað í samfélaginu á Blönduósi sunnudaginn 21.ágúst sl. Hugur okkar er með ykkur öllum og sérstaklega þeim sem eiga hvað mest um sárt að binda vegna þessa. Megi allar góðar vættir fylgja ykkur og styrkja vegna þessa. Hlýjar kveðjur að austan
| |
|