| |
1. 1808078 - Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð | Fræðslunefnd og íþrótta- og tómstundanefnd Fjarðabyggðar ákváðu að funda sameiginlega um fyrirliggjandi drög að áherslum í fræðslu- og frístundamálum Fjarðabyggðar fyrir árin 2023-2025. Drögin eru unnin af starfshópi sem skipaður var til verksins, en í honum sitja þrír fulltrúar fræðslunefndar og þrír fulltrúar íþrótta- og tómstundanefndar ásamt þremur starfsmönnum nefndanna. Að baki draga að áherslum liggur hugmyndavinna sem unnin var af starfsfólki fræðslu- og frístundastofnana í Fjarðabyggð, Fjarðaforeldrum, fulltrúum íþróttafélaga í Fjarðabyggð, fulltrúm eldriborgara og ungmennaráði. Drögin voru lögð fram til kynningar og rædd. Ákveðið að hafa opinn fund 9. janúar á Fáskrúðsfirði þar sem áherslur yrðu kynntar og hægt að gera athugasemdir og halda í kjölfarið sameiginlegan fund hjá nefndunum 11. janúar. | | |
|
2. 2211066 - Rekstrarkostnaður grunnskóla sveitarfélaga árið 2021 | Lagt fram til kynningar rekstrarupplýsingar grunnskóla fyrir árið 2021. | | |
|
3. 2210162 - Starfsáætlanir og skólanámskrár 2022-2023 | Skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar kynnti starfsáætlun og skólanámskrá skólans fyrir skólaárið 2022-2023 og svaraði spurningum nefndarfólks. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi starfsáætlun og skólanámskrá og þakkar skólastjóra fyrir greinargóð svör og upplýsandi kynningu. | | |
|
4. 2212085 - Fundaáætlun fræðslunefndar vorið 2023 | Fyrir liggja drög að fundaáætlun fræðslunefndar fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2023. Fræðslunefnd samþykkir fundaáætlunina. | | |
|