Til bakaPrenta
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 3

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
20.09.2022 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Pálína Margeirsdóttir formaður, Birta Sæmundsdóttir varaformaður, Bjarki Ingason aðalmaður, Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm aðalmaður, Benedikt Jónsson aðalmaður, Gunnar Jónsson embættismaður, Pétur Þór Sörensson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2208081 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023
Framlögð drög að áætlun sem rædd var á síðasta fundi og farið yfir rekstrarþætti sem skoðaðir verða betur.
Stjórn menningar- og safnastofnunar felur sviðsstjóra að vinna áfram að áætlunargerð og leggja fyrir nefndina að nýju 11. október n.k. Stjórnin vísar til mannvirkja- og veitunefndar að kanna með hagræðingu orkukaupa vegna reksturs húsnæðis í málaflokknum.

Reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2023.pdf
2. 2209114 - Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2023
Framlögð drög að gjaldskrám minjasafna og bókasafna til umfjöllunar.
Jafnframt lögð fram tillaga forstöðumanna bókasafna um endurskoðun gjaldskrá fyrir bókasöfn.
Stjórnin vísar afgreiðslu gjaldskráa í málaflokknum til næsta fundar og felur sviðsstjóra að meta tillögur að einföldun á gjaldskrá bókasafna.
3. 2209055 - Skapandi sumarstörf 2022
Lögð fram til kynningar skýrsla um skapandi sumarstörf árið 2022.
Stjórnin lýsir ánægju sinni með árangursríkt starf.
Lokaskýrsla - skapandi sumarstarfa 2022.pdf
4. 2111170 - Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021 - staðfesting stofnsamnings
Framlagður til kynningar staðfestur stofnsamningur fyrir Héraðsskjalasafn Austfirðinga.
Stofnsamningur Héraðsskjalasafns - lagður fyrir aðalfund 2021. (hreint).pdf
5. 2209173 - Innkaup bóka til almennings- og skólabókasafna
Framlagt bréf frá forstöðumönnum bókasafna um innkaup á bókum til safnanna. Jafnframt lögð fram drög að innkaupaáætlun.
Stjórn samþykkir að fela forstöðumannni safnastofnunar að leita leiða ásamt forstöðumönnum safnanna og innkaupafulltrúa Fjarðabyggðar til að nýta sem best það fjármagn sem til ráðstöfunar verður til bókakaupa á árinu 2023.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:05 

Til bakaPrenta