Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 304

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
20.11.2023 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir formaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Einar Hafþór Heiðarsson aðalmaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2307125 - Leyfi fyrir viðbótar hafnarkrana við Mjóeyrarhöfn - Eimskip
Lagt fram minnisblað Mannvits um mat vesturhluta hafnarkants Mjóeyrarhafnar og erindi Eimskips fyrir auknum afköstum viðbótar krana á Mjóeyrarhöfn. Pétur F. Jónsson, svæðisstjóri Eimskips á Austurlandi, mætti á fundinn. Hafnarstjórn heimilar notkun á viðbótarkrana á Mjóeyrarhöfn.
2. 2206100 - Öryggismál hafna
Lagt fram til kynningar. Öryggisstjórnun ehf. mun vinna úttekt á öryggisstjórnun hafnarsvæða í Fjarðabyggð þar sem gerð verður stöðugreining og komið með tillögur að bættri öryggisstjórnun á hafnarsvæðum Fjarðabyggðar.
3. 2108124 - Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Þriðjudaginn 14.nóvember síðastliðinn voru haldnir fundir um Grænan orkugarð með sveitarstjórnarfólki á Austurlandi, fyrirtækjum á svæðinu og íbúum. Farið var yfir það sem fram kom á fundunum.
4. 2310027 - Umsögn vegna uppbyggingar og umgjörð lagareldis stefna til ársins 2040
Lögð fram til kynningar umsögn Fjarðabyggðar um stefnu Matvælaráðuneytisins vegna lagareldis til ársins 2040.
Fundargerðir til kynningar
5. 2301196 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
Lögð fram til kynningar fundargerð 457. fundar Hafnasambands Íslands
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15 

Til bakaPrenta