Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 240

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
30.03.2020 og hófst hann kl. 11:30
Fundinn sátu: Jón Björn Hákonarson formaður, Eydís Ásbjörnsdóttir varaformaður, Sævar Guðjónsson aðalmaður, Rúnar Már Gunnarsson aðalmaður, Kristinn Grétar Rögnvarsson aðalmaður, Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri, Marinó Stefánsson embættismaður, Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður.
Fundargerð ritaði: Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2003077 - COVID-19 - Leiðbeiningar og viðbragðsáætlanir hafna
Til að bregðast við þeim aðstæðum sem uppi eru þessa stundina þá hefur starfsemi hafnanna verið skipt upp til að lágmarka þann skaða ef upp kæmi smit hjá starfsmanni. Hafnarstjórn samþykkir viðbragðsáætlun Fjarðabyggðarhafna.
2. 2003126 - Siglingavernd fréttabréf 2020
Fyrsta fréttabréf siglingaverndar 2020 lagt fram til kynningar.
3. 2001204 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2020
Fundargerð 421.fundar Hafnasambands Íslands frá 20.mars síðastliðnum lögð fram til kynningar.
4. 2003121 - Upplýsingar frá Landhelgisgæslu Íslands
Kynntar upplýsingar frá Landhelgisgæslu Íslands varðandi heimild erlendra skipa í ríkiseign til komu í íslenskar hafnir. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að koma upplýsingum til starfsmanna hafna.
5. 2003143 - Reglugerð um takmarkanir fyrir ferðamenn utan Schengen
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Samgöngustofu er varðar breytingu á reglugerð um för yfir landamæri. Verkefnastjóra hafna er falið að koma upplýsingum til starfsmanna hafna.
6. 2002032 - Hafnarrafmagn á athafnasvæði Eskju - Eskifirði
Lagt fram til kynningar bréf frá Eskju varðandi áform þeirra um landtengingu skipa við landanir í höfnum. Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið en vill fá frekari gögn um staðsetningu og tengimöguleika fyrir aðra notendur. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs er falið að halda utan um málið.
7. 2003127 - Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu Samskip Hoffell
Erindi frá Samskip dags. 19. mars 2020 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Reyðarfjarðarhöfn fyrir skipstjóra á MS Samskip Hoffelli. Hafnarstjórn samþykkir undanþáguna.
8. 2002025 - Framkvæmdir hafnarsjóðs 2020
Yfirferð á framkvæmdum hafnarsjóðs árið 2020. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að fara yfir framkvæmdalista hafnanna og tekjur hafnarsjóðs og leggja fyrir að nýju.
9. 1909177 - Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2020
Lagðar til breytingar á gjaldskrá hafnarsjóðs Fjarðabyggðar. Hafnarstjórn samþykkir breytingar á gjaldskrá og felur verkefnastjóra hafna frágang hennar.
10. 2002081 - Erindi frá Eimskip - Gjaldskrá
Lagt fram sem trúnaðarmál erindi frá Eimskip varðandi gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar.
11. 2003150 - Áform Royal Arctic Line A/S
Lagður fram sem trúnaðarmál tölvupóstur frá Royal Arctic Line A/S.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:00 

Til bakaPrenta