Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 281

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
26.07.2022 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir formaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Eydís Ásbjörnsdóttir varamaður, Marinó Stefánsson embættismaður, Gunnar Jónsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Marinó Stefánsson, Sviðstjóri framkvæmdasviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2206114 - Styrkumsókn - Útsæði - 2022
Bæjarhátíðin Útsæði sem haldin er á Eskifirði óskar eftir styrk. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja bæjarhátíðina Útsæði.
2. 2207064 - Bátaafgreiðsla Fáskrúðsfirði
N1 ehf sækir um leyfi til að færa olíuafgreiðslu frá núverandi stað yfir á nýjan stað við Hafnargötu 29 á bryggjuna, einnig er óskað eftir því að setja upp 10m3 geymi í stað 6m3.
Hafnarstjórn samþykkir umsóknina.
3. 2207063 - Bátaafgreiðsla Eskifjörður
N1 ehf sækir um leyfi til að færa olíuafgreiðslu frá núverandi stað yfir á nýjan stað við nýju bryggjuna.
Hafnarstjórn samþykkir umsóknina.
4. 2202086 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022
Lögð fram til kynningar fundargerð 444. fundar stjórnar Hafnarsambands Íslands.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta