Til bakaPrenta
Mannvirkja- og veitunefnd - 1

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
29.06.2022 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Elís Pétur Elísson varaformaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir varamaður, Ívar Dan Arnarson varamaður, Marinó Stefánsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Marinó Stefánsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2205297 - Erindisbréf mannvirkja- og veitunefndar
Framlagt erindisbréf mannvirkja- og veitunefndar til kynningar fyrir nefndina.
2. 2204123 - Framkvæmdasvið verkefni 2022
Lagt fram minnisblað um framkvæmdir ársins 2022 til kynningar. Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðstjóra að fara yfir fjárhagslega stöðu byggingu íþróttahússins á Reyðarfirði við lok verkefnisins og leggja fyrir bæjarráð.
3. 2001140 - Fjarðabyggðarhöll - ástand og aðgerðir
Lagt fram til kynningar minnisblað Mannvits vegna burðarvirkis stálgrindar í þaki Fjarðabyggðarhallarinnar, dagsett 21. október 2021. Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum og leggja málið fyrir nefndina að nýju þegar skýrslan er tilbúin.
4. 1810205 - Opin leiksvæði í Fjarðabyggð
Lögð fram til kynningar skýrsla um leiksvæði í Fjarðabyggð.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til bakaPrenta