Til bakaPrenta
Bæjarráð - 788

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
13.03.2023 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2303078 - Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu leiguhúsnæðis
Framlögð til staðfestingar samstarfsyfirlýsing við leigufélagið Bríet varðandi íbúðauppbyggingu í Fjarðabyggð. Bríet byggir 4 íbúðir, tvær á Eskifirði og tvær á Reyðarfirði.
Bæjarráð staðfestir samstarfsyfirlýsinguna og fagnar framgangi í byggingu leiguhúsnæðis í Fjarðabyggð.
Undirritaður samningur við Bríet.pdf
2. 2303098 - Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð 2023
Framlagt minnisblað upplýsingafulltrúa þess efnis að hafin verði vinna við undirbúning að nýrri heimasíðu fyrir Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að hafinn verði undirbúningur að gerð nýrrar heimasíðu á grundvelli minnisblaðsins. Tillögur verði lagðar fyrir bæjarráð til staðfestingar.
Ný heimasíða fyrir Fjarðabyggð.pdf
3. 2203199 - Tjaldsvæði 2022
Framlagt minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra og umhverfis- og skipulagfulltrúa varðandi framtíð tjaldsvæða í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir að frá og með haustinu 2023 verði tjaldsvæði sveitarfélagsins boðin til sölu. Atvinnu- og þróunarstjóra falið að undirbúa tillögur að söluferli tjaldsvæðanna og leggja fyrir bæjarráð.
Minnisblað v. framtíð tjaldsvæða í Fjarðabyggð.pdf
4. 2206071 - Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Mikið tjón varð á safninu í óveðri haustið 2022 og eyðilögðust þá tveir braggar í eigu safnsins og aðalsýningarhús þess skemmdist verulega. Ekki verður hægt að endurbæta húsnæði fyrir sumarið 2023.
Vísað frá stjórn Menningarstofu og Safnastofnunar tillögu um að hafa Stríðsárasafnið lokað. Leggur stjórnin til við bæjarráð breytingar á starfsáætlun menningarmála. Jafnframt vísar stjórn málefnum stríðsárasafnsins til fjárhagsáætlunargerðar 2024 varðandi fjármögnun endurbóta húsnæðisins og að lokið verði við endurgerð á þeim bragga sem eftir stendur. Forstöðumanni safnastofnunar falið að skoða útfærslu á sýningu á Reyðarfirði sumarið 2023 og leggja tillögur fyrir stjórnina.
Bæjarráð staðfestir ákvörðun stjórnarinnar varðandi lokun safnsins og leggur jafnframt til að aðrir kostir verði skoðaðir með tilliti til niðurstöðu starfshóps.
5. 2303095 - Málefni fjölskyldusviðs
Farið yfir málefni fjölskyldusviðs.
 
Gestir
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 00:00
6. 2301106 - Búsetuúrræði-Trúnaðarmál
Vísað frá félagsmálanefnda til kynningar í bæjarráði stöðuskýrslu sviðsstjóra fjölskyldusviðs og stjórnanda stoð- og stuðningsþjónustu varðandi nýtt búsetuúrræði í Fjarðabyggð.
Lagt fram til kynningar.
 
Gestir
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 00:00
7. 2211046 - Notendaráð fatlaðs fólks
Vísað frá félagsmálanefnda minnisblaði stjórnanda stoð- og stuðningsþjónustu, auk tillögu að samþykktum fyrir samráðshóp um málefni fatlaðra í Fjarðabyggð. Í minnisblaðinu er lagt til að stofnaður verði opinn samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Fjarðabyggð, og auk þess lögð fram tillaga að samþykkt fyrir ráðið.
Bæjarráð samþykkir tillögu að samþykktum fyrir samráðshóp um málefni fatlaðra. Vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
Minnisblað.pdf
 
Gestir
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 00:00
8. 2303069 - Erindi varðandi ágangi búfjár við Óseyri Stöðvarfirði
Framlagt til kynningar erindi Ívars Ingimarssonar varðandi ágang búfjár við Óseyri í Stöðvarfirði.
Erindi fram lagt og kynnt og vísað til landbúnaðarnefndar.
Erindi til bæjarstjóra og bæjarstjórnar.pdf
Andmæli við minnisblað Samb. ísl. sveitarfélaga um ágang búfjár.pdf
9. 2302212 - Stækkun á lóðinni Búðareyri 8 Reyðarfjörður
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd umsókn um stækkun á lóð að Búðareyri 8, Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti stækkun lóðar en vísar erindi til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi.
10. 2212134 - Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði HAUST
Vísað frá umhverfis- opg skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að sameiginlegri samþykkt fyrir sveitarfélög á starfssvæði HAUST sem kemur í stað sérstakrar samþykktar um umgengni og þrifnað utanhúss.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samþykkktina og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Samthykkt_um_umgengni_og_thrifnad_utanhuss_2010.pdf
11. 2303089 - Fræðsluferð - Vindorka í Noregi
Framlagt erindi frá Grænvangi vegna fræðsluferðar til Noregs vegna Vindorku. Sendiráð Íslands í Noregi í samstarfi við Grænvang auk fjölda samstarfsaðila í Noregi standa saman að skipulagningu vettvangs- og fræðsluferðar til Noregs um hagnýtingu vindorku dagana 25. til 29. apríl næstkomandi.
Bæjarráð samþykkir að formaður umhverfis- og skipulagsnefndar fari í fræðsluferð. Ragnar Sigurðsson situr hjá.
Fræðsluferð - vindorka í Noregi 25-29 apríl 2023 _9.3.2023.pdf
12. 2302204 - Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2022 til 2023
Framlagðir til kynningar vinnslusamningar vegna byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2022 - 2023.
Bæjarráð samþykkir vinnslusamninga fyrir sitt leyti.
 
Gestir
Atvinnu- og þróunarstjóri - 00:00
13. 2303083 - Tillaga Sjálfstæðisflokksins um úttekt á stjórnsýslu Fjarðabyggðar
Framlögð tillaga frá Sjálfstæðisflokknum þess efnis að framkvæmd verði stjórnsýsluútekt hjá Fjarðabyggð.
1. Úttekt á stjórnsýslu Fjarðabyggðar
Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að framkvæmd verði stjórnsýsluúttekt hjá Fjarðabyggð. Fenginn verði óháður aðili til að framkvæma úttektina sem skal fara fram án tafar og í samvinnu og samráði við bæjarráð. Í verkefninu verður sérstaklega horft til þess hvernig auka megi skilvirkni og hagræðingu í rekstri og starfsemi sveitarfélagsins. Þá verði sérstaklega horft til starfsumhverfis á bæjarskrifstofu sveitarfélagsins með það fyrir augum að skapa öflugt starfsumhverfi, auka starfsánægju og draga úr starfsmannaveltu.

Eftirfarandi markmið skulu lögð til grundvallar:
- Vinna greiningu og leggja mat á styrkleika og veikleika í þjónustu, verkaskiptingu og samstarfi.
- Koma með tillögur að aukinni skilvirkni og hagræðingu í stjórnkerfi og rekstri sveitarfélagsins.
- Gera úrbótaáætlun á starfsumhverfi bæjarskrifstofu.

Tryggja skal aðkomu starfsfólks, íbúa og annarra hagsmunaðila með viðtölum og vinnustofu. Samhliða verkefninu er gert er ráð fyrir því að opnað verði fyrir ábendingagátt fyrir íbúa þar sem hægt er að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum sem falla að meginmarkmiðum úttektarinnar. Við lok verksins skal liggja fyrir forgangsröðuð úrbótaáætlun fyrir sveitarfélagið.

Bæjarráð er ásátt um eftirfarandi tillögu.
Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir að framkvæmd verði stöðugreining á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Fenginn verði óháður aðili til að framkvæma greininguna í samvinnu og samráði við bæjarráð. Í verkefninu verður sérstaklega horft til þess hvernig auka megi skilvirkni og árangur í rekstri og stjórnsýslu sveitarfélagsins. Þar verði sérstaklega horft til starfsumhverfis á bæjarskrifstofu sveitarfélagsins með það fyrir augum að skapa öflugt starfsumhverfi, auka starfsánægju og draga úr starfsmannaveltu.
Eftirfarandi verkþættir skulu vera hluti af verkefninu:
- Vinna greiningu og leggja mat á styrkleika og veikleika í þjónustu, verkskiptingu og samstarfi innan stjórnsýslu Fjarðabyggðar
- Koma með tillögur að aukinni skilvirkni, árangri og hagræðingu í stjórnkerfi og rekstri sveitarfélagsins
-Koma með tillögur að úrbótaráætlun á starfsumhverfi starfsmanna á bæjarskrifstofu.
- Við lok verksins verði lögð fram forgangsröðun úrbótaverkefna.
Tryggja skal aðkomu starfsfólks og annarra hagaðila að greiningarferlinu í samráði við bæjarráð. Mikilvægt er á þessum tímapunkti að ná vel utan um núverandi stöðu svo úrbætur verði markvissar, skilvirkar og til þess fallnar að efla samfélagið til framtíðar.
Bæjarstjóra falið að afla tilboð í verkefnið og leggja fyrir bæjarráð niðurstöður þeirra.
Fundargerðir til staðfestingar
14. 2303005F - Fræðslunefnd - 122
Fundargerð fræðslunefndar frá 8. mars lögð fram til afgreiðslu.
14.1. 2301073 - Skóladagatöl 2023-2024
14.2. 2302067 - Úthlutunarreglur grunnskóla í Fjarðabyggð
14.3. 2109174 - Barnvænt sveitarfélag 2021-2022
15. 2302021F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 114
Fundargerð 114. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 6. mars 2023 lögð fram til afgreiðslu.
15.1. 2302218 - Undanþága Dreka fyrir reglum rekstrar- og uppbyggingarstyrkja
15.2. 2109174 - Barnvænt sveitarfélag 2021-2022
15.3. 2303018 - Stýrihópur vegna stefnumótun íþróttamannvirkja
15.4. 2303019 - Tímaúthlutarnir og notkunarmöguleikar íþróttahúss Reyðarfjarðar
16. 2302016F - Félagsmálanefnd - 163
Fundargerð 163. fundar félagsmálanefndar frá 6. mars 2023 lögð fram til afgreiðslu.
16.1. 2211046 - Notendaráð fatlaðs fólks
16.2. 2301106 - Búsetuúrræði-Trúnaðarmál
16.3. 2303035 - Kynning á starfi á fjölskyldusviði
17. 2302018F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 20
Fundargerð 20. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. mars lögð fram til afdgreiðslu.
17.2. 2302173 - Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
17.3. 2303004 - Sólvellir 23 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
17.4. 2302182 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bleiksárhlíð 19
17.5. 2302212 - Stækkun á lóðinni Búðareyri 8 Reyðarfjörður
17.6. 2302200 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Brekkugata 3
17.7. 2302155 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðagata 32
17.8. 2302175 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 59a
17.9. 2302172 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Austurvegur 59b
17.10. 2302148 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Blómsturvellir 47
17.11. 2302166 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Þórhólsgata 6
17.12. 2302135 - Reglur um lóðarúthlutanir
17.13. 2201007 - Refa- og minkaveiði 2021-2022
17.14. 2302037 - Erindi til sveitarstjórna vegna ágangs búfjár - minnisblað sambandsins
17.15. 2303020 - Deiliskipulag Fagridalur - Eskifirði - íbúðasvæði
17.16. 2212134 - Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á starfssvæði HAUST
17.16. 2303028 - Tjaldsvæði á Stöðvarfirði
17.17. 2302213 - Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
18. 2303004F - Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 7
Fundargerð 7. fundar stjórnar menningarstofu og safnastofnunar frá 7. febrúar lögð fram til afgreiðslu.
18.1. 2206071 - Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
18.2. 2301064 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.3. 2301136 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.4. 2301157 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.5. 2301167 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.6. 2302024 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.7. 2303064 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.8. 2302035 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.9. 2207019 - Konur, draumar og brauð
18.10. 2302061 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.11. 2302064 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.12. 2302068 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.13. 2302069 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.14. 2302070 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.15. 2302071 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.16. 2302072 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.17. 2302073 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.18. 2302074 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.19. 2302075 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.20. 2302076 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.21. 2302077 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.22. 2302078 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.23. 2302079 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.24. 2302080 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.25. 2302081 - Umsókn um styrki til menningarmála
18.26. 2302082 - Umsókn um styrki til menningarmála
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:15 

Til bakaPrenta