Til bakaPrenta
Fræðslunefnd - 114

Haldinn í Molanum fundarherbergi 4,
07.09.2022 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Birgir Jónsson formaður, Salóme Rut Harðardóttir varaformaður, Jónas Eggert Ólafsson aðalmaður, Jóhanna Sigfúsdóttir aðalmaður, Ingi Steinn Freysteinsson aðalmaður, Þóroddur Helgason embættismaður, Ásta Ásgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi, Laufey Þórðardóttir embættismaður.
Fundargerð ritaði: Þóroddur Helgason, Fræðslustjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2205097 - Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023
Lagður fram rammi bæjarráðs að fjárhagsáætlun ársins 2023 í fræðslumálum ásamt reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2023. Fjármálastjóri mætti til fundarins og gerði grein fyrir áætlunargerðinni. Umræður um ramma fræðslunefndar fyrir fjárhagsárið 2023. Frekari umræðu frestað til næsta fundar.
2. 2209008 - Reglur 2022
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnti til samþykktar drög að nýjum reglum varðandi samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Fræðslunefnd samþykkir drögin.
3. 2104131 - Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2022
Fræðslustjóri gerði grein fyrir 6 mánaða yfirliti í rekstri fræðslumála. Lagt fram til kynningar.
4. 1808078 - Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
Til umræðu var skipan starfshóps um gerð aðgerðaráætlunar í fræðslu- og frístundamálum fyrir árin 2023-2025. Áður rætt undir máli 2205097, starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að Arndís Bára Pétursdóttir, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir og Sigurjón Rúnarsson taki þátt í starfshópnum fyrir hönd íþrótta- og tómstundanefndar ásamt starfsmönnum nefndarinnar Eyrún Ingu Gunnarsdóttur og Magnúsi Árna Gunnarssyni. Fræðslunefnd fagnar áhuga fulltrúa íþrótta- og tómstundanefndar fyrir að starfa í starfshópnum og leggur til að starfshópurinn verði skipaður formönnum fræðslunefndar og íþrótta- og tómstundanefndar ásamt tveimur öðrum fulltrúum úr báðum nefndum auk þess sem starfsmenn nefndanna starfi með starfshópnum. Frá fræðslunefnd sitja Birgir Jónsson, Jóhanna Sigfúsdóttir og Jónas Eggert Ólafsson og starfsmaðurinn Þóroddur Helgason. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs er falið að útbúa erindisbréf fyrir starfshópinn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30 

Til bakaPrenta