Til bakaPrenta
Bæjarráð - 846

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
06.05.2024 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2212006 - Breiðablik
Farið yfir málefni Breiðabliks á Norðfirði og skilgreiningu þjónustu.
Bæjarráð ítrekar að ekki er verið að draga úr þjónustu og áfram verður veitt helgarþjónusta í Breiðabliki eftir þjónustuþörf. Sú þjónustuþörf getur verið meiri eða minni eftir atvikum.
 
Gestir
Forstöðumaður stuðningsþjónustu - 00:00
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 00:00
2. 2309181 - Starfshópur fræðslumála 2023
Farið yfir vinnu í fræðslumálum.
 
Gestir
Stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu - 00:00
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 00:00
3. 2404224 - Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2025
Farið yfir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2025.
Reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar.pdf
Dagsetningar í fjárhagsáætlunarferli vegna áætlunar ársins 2025.pdf
4. 2009034 - Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Framlögð tvö tilboð í gerð ofanflóðamannvirkja við Nes- og Bakkagil á Norðfirði. Lagt er til að tekið verði tilboði Reinforced Earth Company í grindur í styrkingakerfi og Héraðsverks í gerð 20 keilna og þvergarðs.
Bæjarráð samþykkir töku tilboðanna og felur bæjarstjóra undirritun verksamninga. Bæjarráð fagnar því að framkvæmdirnar séu að fara að hefjast.
633 1735_Tillaga að töku tilboðs_Reinforcement system for avalanche defenses Neskaupstaður FB.pdf
Tillaga að töku tilboðs í 22167.pdf
5. 2404200 - Málefni Sköpunarmiðstöðvar
Framlagt erindi Sköpunarmiðstöðvarinnar vegna skipulagsskrár félagsins og skipan stjórnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og bæjarritara að ræða við forsvarsmenn Sköpunarmiðstöðvarinnar. Tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
6. 2405006 - Kvörtun vegna stjórnsýslu sveitarfélags
Framlagt erindi innviðaráðuneytisins vegna erindis um stjórnsýslu sveitarfélagsins Fjarðabyggðar. Ráðuneytið óskar eftir gögnum og umsögnum um stjórnsýslu sveitarfélagsins á grundvelli 112. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 128/2011 varðandi aðdraganda og meðferð málsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindi ráðuneytisins.
7. 2405009 - Ársfundur Náttúruhamfaratryggingar Íslands 16.maí
Framlagt boð á ársfund Náttúruhamfaratrygginga sem haldinn verður 16. maí nk. Fundurinn er í boði á streymi.
Ársfundur 16.maí.pdf
8. 2404225 - Auglýsingasamningur við KFA 2024 - 2026
Framlögð drög að endurnýjuðum auglýsingasamning við Knattspyrnufélag Austfjarða (KFA) fyrir árin 2024 - 2026.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
Endurnýjun á auglýsingasamningi.pdf
9. 2405007 - Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands 2024
Framlagður ársreikningur 2023 fyrir Náttúrustofu Austurlands til kynningar.
Ársreikningur Náttúrustofa Austurlands - 31.12.2023SIGN_SENT.pdf
12. 2405011 - Evrópuverkefnið NATALIE
Kynning á verkefningu NATALIE þar sem er unnið að nýrri nálgun á náttúrumiðuðum aðferðum, NBS (e. Nature-based solutions) til að sporna við áhrifum verðurröskunar af völdum loftlagsbreytinga.
Bæjarráð samþykkir að tekið verði þátt í vinnustofum tengdum verkefninu.
 
Gestir
Anna Berg Samúelsdóttir - 00:00
Katrín Hulda Gunnarsdóttir - 00:00
Almenn mál - umsagnir og vísanir
10. 2405014 - Umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga mál nr. 899 og 900
Framlögð til kynningar umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um þingmál 899 og 900.
Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um mál 899 og 900 á 154. löggjafarþingi.pdf
Fundargerðir til kynningar
11. 2401142 - Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024
Framlögð til kynningar fundargerð 947. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 947.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30 

Til bakaPrenta