Til bakaPrenta
Fræðslunefnd - 131

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
10.10.2023 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Birgir Jónsson formaður, Salóme Rut Harðardóttir varaformaður, Jónas Eggert Ólafsson aðalmaður, Sigurjón Rúnarsson aðalmaður, Bryngeir Ágúst Margeirsson varamaður, Lísa Lotta Björnsdóttir áheyrnarfulltrúi, Gerður Ósk Oddsdóttir áheyrnarfulltrúi, Laufey Þórðardóttir embættismaður, Anna Marín Þórarinsdóttir embættismaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Anna Marín Þórarinsdóttir, Stjórnandi fræðsumála og skólaþjónustur


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2309160 - Gjaldskrá leikskóla 2024
Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að vinna úr útfærsluatriðum á gjaldskrá og leggja fram tillögu fyrir næsta fund
2. 2305048 - Starfs- og fjárhagsáætlun í fræðslumálum 2024
Til umfjöllunar er starfs- og fjárhagsáætlun 2024 í fræðslumálum. Formaður fræðslunefndar greindi frá fundi með bæjarráði þar sem farið var yfir vinnu starfsmanna fræðslusviðs við fjárhagsáætlun. Stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu falið að taka saman helstu áherslur í minnisblaði sem munu fylgja starfs- og fjárhagsáætlun.
3. 2309153 - Gjaldskrá frístundaheimila
Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá frístundaheimila fyrir árið 2024. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
4. 2309166 - Gjaldskrá tónlistarskóla 2024
Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá tónlistarskóla fyrir árið 2024. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
5. 2309157 - Gjaldskrá húsnæðis grunnskóla
Fyrir liggur tillaga að gjaldskrá húsnæðis grunnskóla fyrir árið 2024. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá og vísar til bæjarráðs.
6. 2309181 - Starfshópur fræðslumála 2023
Fyrir liggur minnisblað þar sem farið er yfir hugmyndir um stofnun starfshóps til að skoða rekstur og skipulag innan leik-, grunn- og tónlistarskólanna. Fræðslunefnd samþykkir stofnun starfshóps og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs og stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu að vinna málið áfram.

7. 2306090 - Verðfyrirspurn vegna íþróttaakstur Eskifjarðarskóla í Íþróttamistöð Reyðarfjarðar
Fyrirliggur tillaga stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu um akstur nemenda Eskifjarðarskóla í íþróttir á Reyðarfirði haustið 2024.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30 

Til bakaPrenta