Til bakaPrenta
Bæjarráð - 852

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
10.06.2024 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2403005 - Umsókn um stofnframlög á árinu 2024
HMS hefur samþykkt umsókn Fjarðabyggðar um stofnframlag vegna kaupa á tveimur íbúðum á Eskifirði fyrir tekju- og eignalága á vinnumarkaði.
Bæjarráð samþykkir að framvísa stofnframlögum vegna kaupa íbúðanna til Brákar íbúðafélags hses.
11. Niðurstöðubréf - Fjarðabyggð - Kaup í Fjarðabyggð - umsókn 2024 -1.pdf
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
2. 2406008 - Fasteignamat 2025
Framlögð samantekt fjármálastjóra um breytingar á fasteignamati í Fjarðabyggð á milli áranna 2024 og 2025. Einnig lögð fram til glöggvunar skýrsla Byggðastofnunar á samanburði á fasteignagjöldum milli sveitarfélaga á árinu 2024 og birt var í mars s.l.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2025.
Um fasteignamat í Fjarðabyggð árið 2025.pdf
Byggðastofnun fasteignagjold-2024.pdf
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
3. 2108027 - Þróun hafnarsvæða
Farið yfir þróunarmál hafnarstarfsemi.
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
4. 2404177 - Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð
Tekið fyrir að nýju hugmyndir að rafrænni útfærslu á umhaldi og fyrirkomulagi við þjónustu í úrgangsmálum.
Tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.
 
Gestir
Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs - 00:00
Íngólfur Steingrímsson - 00:00
Marinó Stefánsson - 00:00
5. 2311135 - Opnunartími Móttökustöðva
Tekin umræða um opnunartíma móttökustöðva í Fjarðabyggð.
Bæjarráð tekur málið fyrir nýju á næsta fundi sínum.
 
Gestir
Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs - 00:00
6. 2403234 - Skipulags- og framkvæmdasvið verkefni 2024
Farið yfir skipulag og starfsemi skipulags- og framkvæmdasviðs.
Bæjarráð felur sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs að vinna áfram að málefnum þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar. Málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði.
 
Gestir
Sviðsstjóri skipulags- og framkvæmdasviðs - 00:00
7. 2306063 - Beiðni um smölun ágangsfjár í Óseyri Stöðvarfirði
Framlagt erindi frá landeigendum Óseyrar í Stöðvarfirði vegna ágangs sauðfjár.
Bæjarráð felur bæjarritara að leggja fyrir drög að svari á næsta fundi bæjarráðs.
Reglur um viðbrögð við ágangi bújfár erindi.pdf
8. 2406036 - Beiðni um sameiginlega tilnefningu sveitarfélaga í hreindýraráð 2024 -2028
Framlagt erindi umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis um skipun sameiginlegs fulltrúa sveitarfélaganna Fjarðabyggðar, Fljótsdalshrepps, Múlaþings, Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Vopnafjarðarhreppurs í hreindýraráð.
Bæjarráð óskar eftir að Samband sveitarfélaga á Austurlandi hafi skipun sameiginlegs fulltrúa sveitarfélaganna óbreytta.
4e55d2e5-99d2-4618-a532-60ae1db1aad4-Beiðni um tilnefningu í hreindýraráð_sveitarfélög.pdf
9. 2309181 - Starfs - og rýnihópar í fræðslumálum
Framlögð drög að erindisbréfum fyrir starfs- og rýnihópa ásamt tillögu að tilnefningu aðila í starfshópinn.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf starfs- og rýnihópa. Hóparnir verða skipaðir fulltrúum bæjarráðs, bæjarstjóra, skólastjórum stofnana, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og stjórnanda fræðslumála- og skólaþjónustu. Fyrsti fundar hópanna verður á næstu dögum.
Erindisbréf starfshóps leikskólar.pdf
Erindisbréf rýnihóps grunnskólar.pdf
10. 2406046 - Farsældarráð Austurlands
Framlögð gögn vegna farsældarráðs Austurlands, skipulag þess og starfsemi.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjölskyldunefndar til umfjöllunar.
Samhæfð svæðaskipan - næstu skref 30.04.24_SI.pdf
11. 2406057 - Ósk um kaup á Strandgötu 62, 740 Neskaupstað
Framlögð ósk Heimis Snæs Gylfasonar um kaup á Strandgötu 62 á Norðfirði.
Strandgata 62 var keypt til niðurrifs vegna breytinga á skipulagi í tengslum við uppbyggingu ofanflóðavarna. Því getur bæjarráð ekki orðið við erindinu en þakkar sýndan áhuga.
12. 2406011 - Íslendingadagar 27. -30. sept. 2024
Framlagt boð frá Gravelines vinabæ Fjarðabyggðar um þátttöku í Íslandsdögum 27. til 30. september nk.
Vísað til forseta bæjarstjórnar til vinnslu. Lagt fram í bæjarráði að nýju.
Letter of invitation fête des Islandais.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
13. 2405029F - Fjölskyldunefnd - 9.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 3. júní tekin til umfjöllunar og afgreiðslu
13.1. 2404222 - Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2025
13.2. 2405169 - Umbótaáætlanir vegna foreldrakönnunar Skólavoginnar
13.3. 2404044 - Skólafrístund
13.4. 2405174 - Boð um þátttöku í samráði Hvítbók í málefnum innflytjenda
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:05 

Til bakaPrenta