| |
1. 2302173 - Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi | Farið yfir stöðu byggingarleyfis vegna hljóðveggs við Hafnargötu 36 á Fáskrúðsfirði. Farið yfir gögn sem borist hafa vegna grenndarkynningar vegna byggingarleyfis hljóðveggs. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að ljúka úrvinnslu athugasemda sem borist hafa vegna grenndarkynningar og leggja fyrir nefndina. Jafnframt óskar nefndin greinargerðar lögmanns sveitarfélagsins um stöðu málsins. Vegna sumarleyfa hefur ekki náðst að ljúka úrvinnslu málsins en því verður hraðað eins og kostur er að afloknu sumarleyfi. | | |
|
2. 2302030 - Göngustígur utan við fótboltavöll, Stöðvarfirði | Framlögð beiðni um styrk vegna framkvæmdaleyfis. Nefndin hefur ekki á forræði sínu styrkveitingar en vísar beiðni til bæjarráðs. | Göngustíg.pdf | | |
|
3. 2107013 - Uppsetning á útiæfingatækjum | Framlagt að nýju erindi Guðrúnar S. Guðmundsdóttur og Guðrúnar Smáradóttur um uppsetningu útiæfingatækja á Norðfirði. Skipulags- og umhverfisfulltrúa er falið að finna hentugt svæði undir tækin í samráði við gefendur og garðyrkjustjóra og leggja fyrir nefndina.
| Erindi til bæjarráðs 2021.pdf | | |
|
4. 2306147 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hlíðargata 18 | Tekin fyrir að nýju umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi fyrir Hlíðargötu 18 og stækkun lóðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning. Nefndin bendir á að brunahani er staðsettur á horni lóðar við bílastæði og taka þurfti tillit til þess vegna skipulags bílastæðis. | Hlíðargata 18 LB.pdf | | |
|
5. 2307026 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Lundargata 4 | Framlögð beiðni um endurnýjun lóðarleigusamnings um Lundargötu 4 á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
| 730 Lundargata 4 LB.pdf | | |
|
6. 2306205 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi | Framlögð umsókn Samvinnufélags útgerðarmanna Neskaupstað um hugmyndir um breikkun knattspyrnuvallar og stækkun lóðar undir knattspyrnuvöll. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að gera breytingu á deiliskipulagi miðbæjar á Norðfirði þar sem gert er ráð fyrir stækkun knattspyrnuvallarins í samræmi við tillögu sem lögð er fram. Skipulags- og umhverfisfulltrúa falið að leggja fyrir nefndina breytt deiliskipulag til afgreiðslu. | Norðfjarðarvöllur - bryggja.pdf | | |
|
7. 2303368 - Deiliskipulag Nes- og Bakkagil | Framlögð drög að deiliskipulagi fyrir Nes- og Bakkagil á Norðfirði ásamt greinargerð skipulags. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs. | DU2302_Grg_Nes- og Bakkagil.pdf | DU2302_Deiliskipulag Nes- og Bakkagil A2-2500.pdf | Lýsing fyrir tillögu að deiliskipulag ofanflóðavarna á Norðfirði.pdf | | |
|
8. 1606100 - 740 deiliskipulag fólkvangs Neskaupstaðar | Framlagðar tillögur að breytingu á deiliskipulagi Fólkavangur Neskaupstaðar en lagðar eru til breytingar á afmörkun deiliskipulags við aðkomu að svæðinu vegna Stóralækjar vegna samræmingar við nýtt deiliskipulag fyrir Nes- og Bakkagil. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs. | 1860-077-12-TEK-V01_DSK-BR Fólkvangur Nes Útivistarsv.pdf | | |
|
9. 2307048 - Deiliskipulag Drangagil - endurskoðun | Framlögð tillaga að breytingu deiliskipulags Svæðis 1 fyrir snjóflóðavarnir í Neskaupstað, Drangagilssvæðið en lagðar eru til breytingar á afmörkun deiliskipulags vegna samræmingar við nýtt deiliskipulag fyrir Nes- og Bakkagil. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagið og vísar til afgreiðslu bæjarráðs. | DU2304_br. Deiliskipulag - Drangagil.pdf | | |
|
10. 2112033 - Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2022 | Lagðar eru fram tillögur til kynningar frá Eflu, vegna umsóknar til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða við Búðarárfoss. Um er að ræða fyrsta hluta framkvæmdar sem er göngustígur frá vatnssöfnunartanki og áleiðis inn að Búðarárfossi. Umhverfis- og skipulagsnefnd lýst vel á framlagðar tillögur.
| Áfangastaðurinn Búðarárfoss - Hugmyndir - Drög.pdf | | |
|