Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 289

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
09.01.2023 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Arnfríður Eide Hafþórsdóttir formaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Einar Hafþór Heiðarsson aðalmaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Birgitta Rúnarsdóttir embættismaður, Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri, Marinó Stefánsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2108124 - Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Bæjarstjórn samþykkti lóðarleigusamning Fjarðabyggðar og CI ETF I Fjarðarorku HoldCo ehf. á 344.fundi sínum þann 28.desember síðastliðinn. Þann 5.janúar var samningurinn undirritaður fyrir hönd Fjarðabyggðar.
Lóðarleigusamningur lagður fram sem trúnaðarmál til kynningar.
2. 1908100 - Verkefni hafnarsjóðs
Lagt fram til kynningar innra minnisblað um framkvæmdir ársins 2022.
Fundargerðir til kynningar
3. 2202086 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022
Lögð fram til kynningar fundargerð 448. fundar Hafnasambands Íslands
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30 

Til bakaPrenta