| |
1. 2303368 - Deiliskipulag Nes- og Bakkagil | Umsögnum á kynningartíma svarað vegna Deiliskipulags Nes- og bakkagils og skipulagið lagt fram til endanlegrar samþykktar. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir skipulagið og vísa því til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. | DU2302_Grg_sept2023.pdf | DU2302_Plott_deiliskipulag-plott A2-2500.pdf | Svör og viðbrögð við umsögnum.pdf | | |
|
2. 2307048 - Deiliskipulag Drangagil - endurskoðun | Tekið fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á deiliskipulagi fyrir svæði 1 fyrir snjóflóðavarnir í Neskaupstað, Drangagilssvæði. Breytingin gengur breytt skipulagsmörk til samræmis við nýtt aðliggjandi deiliskipulag. Grenndarkynning var auglýst með athugasemdafresti til 30. ágúst 2023. Fyrir liggja umsagnir frá Minjastofnun Íslands og Veðurstofu Íslands sem gerðu ekki athugasemdir við breytingartillöguna. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | DU2304_br. Deiliskipulag - Drangagil.pdf | | |
|
3. 2308105 - Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024 | Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2024. Atvinnu- og þróunnarstjóri óskar eftir hugmyndum nefndarmanna um áfangastaði ferðamanna. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna. | auglysing-2024.pdf | | | Gestir | Valgeir Ingólfsson - 14:50 | |
|
4. 2309134 - Nesk Rútustæði Sólbakka | Beiðni um færslu á rútustæði við Sólbakka, Neskaupstað vegna framkvæmda. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir tilfærslu á bílastæði fyrir stærri ökutæki frá Sólbakka að Eyrargötu. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að upplýsa hlutaðeigandi aðila um nýja staðsetningu. | Nesk Rútustæði Sólbakka.pdf | | |
|
5. 2309162 - Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs | Gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs 2024 lögð fram til umfjöllunar. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar til áframhaldandi umræðu og felur verkefnastjóra umhverfismála að uppfæra gjaldskrá í samræmi við umræður á fundinum. | Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð 2023.pdf | | |
|
6. 2309156 - Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024 | Gjaldskrá hunda- og kattahalds 2024 lögð fram til umfjöllunar. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar til áframhaldandi umræðu og felur verkefnastjóra umhverfismála að uppfæra gjaldskrá í samræmi við umræður á fundinum. | Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 2023.pdf | | |
|
|
8. 2309120 - Umsókn um stöðuleyfi | Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20ft gám við N1 Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafnar umsókn um 20ft gám við N1. Í 7.gr deiliskipulagi miðbæjar, Reyðarfjarðar segir "óheimilt er að geyma gáma, báta, óskráð ökutæki, eða annað rusl á lóðum. Byggingarfulltrúi getur látið fjarlægja slíkt með eins mánaðar fyrirvara og án frekari tilkynninga". | lóð 2.pdf | | |
|
9. 2309104 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Gilsbakki 1 | Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi að Gilsbakka 1. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út nýjan lóðarleigusamning í samræmi við nýtt lóðarblað.
Heimir Snær Gylfasson vék af fundi undir þessum lið. | | |
|
10. 2309019 - Erindi vegna gámasvæðis á Reyðarfirði | Erindi vegna gámasvæðis á Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar erindin og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að svara þeim spurningum sem fram komu í erindinu.
Heimir Snær Gylfasson og Ingunn Eir Andrésardóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma að nefndin geti ekki staðið við upphaflega áætlun um gámasvæði á Reyðarfiðri við Hjallaleiru 10.
| | |
|
12. 2309210 - Umsókn um lóð Árdalur 13 | Umsókn um lóð fyrir íbúðarhús að Árdal 13, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. | | |
|
13. 2309214 - Tilkynning um kæru 111/2023, stjórnvald | Tilkynning um kæru 111/2023, stjórnvald. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að svara erindinu í samráði við lögmann sveitarfélagssins. | | |
|
15. 2203199 - Tjaldsvæði 2023 | Tillögur vegna staðsetninga lagt fram vegna sölu tjaldsvæða í Fjarðabyggð til kynningar. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa og atvinnu- og þróunarstjóra að uppfæra minnisblað í samræmi við umræður á fundinum. | | | Gestir | Valgeir Ingólfsson - 14:30 | |
|
16. 2309222 - Búðarmelur 7a-c - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi | Búðarmelur 7a-c - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. | | |
|
| |
11. 2301174 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023 | 174. fundargerð heilbrigðisnefndar Austurlands. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakka kynninguna. | 174.fundargerðHeilbrigðisnefndarund.pdf | | |
|
14. 2309215 - Til umsagnar 3. mál frá nefnda- og greiningarsviði alþingis | Til umsagnar 3. mál frá nefnda- og greiningarsviði alþingis. Umhverfis- og skipulagsnefnd telur ekki þörf á að veita umsögn um málið. | Til umsagnar 3. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.pdf | | |
|