Til bakaPrenta
Bæjarráð - 888

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
24.03.2025 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2501185 - Uppbygging miðbæjarkjarna á Reyðarfirði
Framlagt erindi R101 ehf. um uppbyggingu miðbæjarkjarna á Reyðarfirði og viljayfirlýsingu vegna uppbyggingarinnar.
Bæjarráð fagnar áformum um uppbyggingu miðbæjarkjarna á Reyðarfirði og samþykkir að veita viljayfirlýsingu um mögulega leigu á einni hæð í fyrirhuguðu húsnæði nýs miðbæjarkjarna undir bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Skilyrði fyrir viljayfirlýsingunni er að rýmið geti hýst alla starfsemi bæjarskrifstofu sveitarfélagsins á einum stað, þannig að hægt verði að sameina skrifstofuhald. Bæjarráð felur bæjarstjóra að eiga frekara samráð við R101.
2. 2108124 - Grænn orkugarður á Reyðarfirði
Bæjarstjóri fór yfir undirbúning fyrir fund sem haldinn verður 1. apríl í Reykjavík um grænan orkugarð á Reyðarfirði með þingmönnum og hagaðilum.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í fundinum ásamt formanni hafnarstjórnar og skipulags- og framkvæmdanefndar og felur bæjarstjóra undirbúning hans ásamt starfsmönnum.
3. 2412103 - Flýting vegtengingar Suðurfjarðavegar
Fjallað um áform um flýtiframkvæmdir í vegakerfinu og ástand Suðurfjarðavegar.
Bæjarráð Fjarðabyggðar fagnar þeim áformum innviðaráðherra sem fram komu á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga um að hefja strax uppbyggingu samgöngukerfisins, sér í lagi gagnvart viðhaldi. Mikilvægt er að þessi áform leiði til tafarlausra aðgerða eins og að er stefnt, enda er ástand lykilvegakerfa á Austurlandi óviðunandi og hefur veruleg áhrif á öryggi vegfarenda og atvinnulíf.

Bæjarráð ítrekar fyrri bókanir sínar um brýna þörf á endurbótum Suðurfjarðavegar, hluta Þjóðvegar 1, sem er ein mikilvægasta samgönguæð Austurlands. Vegurinn er afar slitinn, þolir illa það mikla og þunga umferðarálag sem um hann fer og skapar hættu fyrir ökumenn. Ástand vegarins hefur ítrekað valdið tjóni á farartækjum og falið í sér aukna slysahættu, sérstaklega yfir vetrarmánuðina.

Jafnframt vill bæjarráð árétta að brýrnar yfir Sléttuá á Reyðarfirði og Stöðvará í Stöðvarfirði eru löngu úreltar og uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru til nútíma samgöngumannvirkja. Brýn þörf er á nýjum brúm, enda þolir núverandi ástand ekki frekari bið. Stór vinnutæki þurfa að fara yfir Slettuá á vaði með sem er óásættanlegt með tilliti til öryggis og óhagræðis.

Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur því ríka áherslu á að bæði Suðurfjarðavegur og brýrnar yfir Sléttuá í Reyðarfirði og Stöðvará í Stöðvarfirði verði sett í forgang í þeirri áætlun stjórnvalda sem nú er unnið að. Báðar þessar brýr eru á þjóðvegi 1 og er brúin yfir Sléttuá umferðarþyngsta einbreiða brú á þjóðvegi 1 á Austurlandi.

Tryggja þarf öruggar og traustar samgöngur á Austurlandi í takt við þarfir samfélagsins og atvinnulífsins, enda er bætt vegakerfi forsenda fyrir öflugri byggðaþróun og efnahagslegum vexti svæðisins.
4. 2503187 - Málstefna
Framlögð drög að málstefnu sveitarfélagsins til umfjöllunar.
Bæjarráð vísar málstefnu fyrir Fjarðabyggðar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Minnisblað um málstefnu Fjarðabyggðar.pdf
5. 2503138 - Niðurfelling á fasteignagjöldum Karlsstaðir
Framlögð ósk Ferðafélags fjarðamanna um niðurfellingu á fasteignagjöldum á gistiskálanum í Vöðlavík.
Bæjarráð samþykkir með vísan til reglna Fjarðabyggðar um styrk til greiðslu fasteignagjalda að veita styrk til Ferðafélags fjarðamanna.
6. 2502027 - Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Reyðarfirði Ægisgata 6
Tekið fyrir að nýju deiliskipulag miðbæjarins á Reyðarfirði og lóða við Bræðslureit.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að vinna málið áfram.
 
Gestir
Stjórnandi skipulags-, byggingar- og umhverfismála - 00:00
7. 2503074 - Umsókn um lóð Búðarmelur 27
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd tillögu um skipti á lóðinni Búðarmelur 27 á og Litlagerði 6 á Reyðarfirði.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar Búðarmels 27 á Reyðarfirði.
8. 2501189 - Umsókn um lóð fyrir skotíþróttasvæði á Reyðarfirði
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd umsókn Skotíþróttafélagsins Dreka um lóð samkvæmt deiliskipulagi akstursíþrótta- og skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við Skotíþróttafélagið Dreka um umsókn þeirra um lóðina og framtíðaráform félagsins.
730 Skotíþróttasvæði LB.pdf
deiliskipulag.pdf
9. 2503201 - Hagsmunaskráning kjörinn fulltrúa
Framlögð tillaga Fjarðalistans um að innleidd verði hagsmunaskráning kjörinna fulltrúa hjá Fjarðabyggð.
Bæjarráð felur bæjarritara að skoða útfærslur og leggja fyrir bæjarráð minnisblað um málið.
Tillaga Fjarðalistans um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa.pdf
10. 2503179 - Til umsagnar 158. mál - Borgarstefna.
Framlögð til kynningar 158. mál, þingsályktunartillag um borgarstefnu.
Bæjarráð felur bæjarritara að senda umsögn.
Til umsagnar 158. mál - Borgarstefna.pdf
11. 2503093 - Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2025
Framlagt aðalfundarboð Fiskmarkaðs Austurlands en aðalfundur verður haldinn 24. mars.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri og fjármálastjóri verði aðalmenn í stjórn og verkefnastjóri hafna verði varamaður þeirra.
12. 2503176 - Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um strandveiðar
Lögð fram til kynningar umsögn um drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um strandveiðar.
Umsögn um drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um strandveiðar, mál 58/2025.pdf
13. 2503196 - Fundarboð fulltrúaráðs Stapa lífeyrissjóður 15.apríl 2025
Framlagt til kynningar fundarboð fulltrúaráðs Stapa lífeyrissjóður en fundur verður haldinn 15.apríl 2025.
Vísað til skoðunar hjá fjármálastjóra.
Fundarboð fulltrúaráðs Stapa lífeyrissjóður .pdf
14. 2502038 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Fundargerð 972. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 972.pdf
15. 2501007 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2025
Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 81 lögð fram til kynningar.
stjórn Samtaka orkusveitarfélaga - 81.pdf
16. 2002092 - Ofanflóðavarnir á Eskifirði - Grjótá
Farið yfir hönnun ofanflóðavarna í og við Grjótá á Eskifirði með fulltrúum Framkvæmdasýslu ríkisins og Ofanflóðasjóðs ásamt hönnuðum varnanna.
Opinn kynningarfundur verður haldinn á Eskifirði kl. 20:00 í kvöld þar sem gerð verður grein fyrir hönnuninn og framkvæmdaáætlun.

 
Gestir
Fulltrúi Ofanflóðasjóðs - 00:00
Hönnuðir framkvæmdar frá Landmótun og Eflu - 00:00
Fulltrúi Framkvæmdasýslu - 00:00
Fundargerðir til staðfestingar
17. 2503013F - Fjölskyldunefnd - 29
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 17. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
17.1. 2503118 - Víkingurinn 2025 - Umsókn um íþróttastyrk
17.2. 2503119 - Lengri opnun sundlauga yfir páska
17.3. 2503091 - Sumarfrístund 2025
17.4. 2310110 - Sterkur Stöðvarfjörður - beiðni um lengingu opnunartíma sundlaug Stöðvarfjarðar
17.5. 2411092 - Umgengnisreglur sundlauga Fjarðabyggðar
17.6. 2411044 - Umengnisreglur íþróttahúsa Fjarðabyggðar
18. 2503011F - Skipulags- og framkvæmdanefnd - 28
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 18. mars lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
18.1. 2503113 - Byggingarleyfi - Niðurrif Strandgata 6 - 740 Norðfjörður
18.2. 2501005 - Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 26
18.3. 2411039 - Umsókn um breytingu á byggingarreit að Daltúni 7, 735
18.4. 2503074 - Umsókn um lóð Búðarmelur 27
18.5. 2501189 - Umsókn um afnot af lóð skotíþróttasvæði Reyðarfjörður
18.6. 2502245 - Framkvæmdaleyfi strengir Breiðamel Reyðarfirði
18.7. 2503050 - Framkvæmdaleyfi Plæging á tveimur Háspennustrengjum frá Melbrún á Reyðarfirði út að væntanlegu rofahúsi ofan Mjóeyrar.
18.8. 2411016 - Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð

Niðurstaða þessa fundar
Afgreiðslu máls frestað.
Bæjarráð vísar dagskrárlið til skoðunar hjá bæjarritara út frá stjórnsýslu málsins og frestar afgreiðslu þess. Málið tekið fyrir að nýju í bæjarráði þegar málið hefur verið skoðað.
18.9. 2503067 - Framkvæmdaleyfi tenging milli línuslóða Kollaleiruháls
18.10. 2009034 - Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
18.11. 2503090 - Umsókn um undanþágu frá aðalskipulag
18.12. 2502007 - Ungmennaráð - Söndun gatna
18.13. 2503014 - Ungmennaráð - fjöldi og staðsetning ruslatunna í gönguleiðum og við ljósastaura
18.14. 2503120 - Naustahvammur vinnusvæði
18.15. 2503122 - Vor í Fjarðabyggð
18.16. 2503018 - Ofanflóð 2025- málþing um snjóflóð og samfélög
18.17. 2302213 - Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
18.18. 2503100 - Úrgangsmál - textíll
18.19. 2503127 - Umsókn um stöðuleyfi
18.20. 2209007 - Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs ný áætlun 2025
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30 

Til bakaPrenta