| |
| 1. 2104121 - Áfangastaðir Ferðamálastofa 2021 | | Mannvirkja- og veitunefnd þakkar atvinnu- og þróunnarstjóra fyrir kynninguna. Sviðstjóra framkvæmdasviðs og atvinnu- og þróunnarstjóra falið að vinna verkefnið áfram og leggja fyrir að nýju. | | |
|
| 2. 2301057 - Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði | | Vísað frá bæjarráði til mannvirkja- og veitunefndar kostnaðaráætlun fyrir skólahúsnæði að Lambeyrarbraut 14 á Eskifirði. Framlagt og kynnt. | | |
|
| 3. 2307074 - Bréf til Bæjarráðs | | Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar mannvirkja- og veitunefndar bréfi frá Íbúsamtökum Stöðvarfjarðar um viðhalds- og endurbótaverkefni sem óskað er eftir að hugað verði að við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024. Mannvirkja- og veitunefnd þakkar fyrir erindið og vísar því til fjárhagsáætlunargerðar 2024. Sviðstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. Punktar 1 og 5 | | Bréf frá Íbúsamtökum Stöðvarfjarðar sem þarf að berast til bæjarráðs..pdf | | |
|
| 4. 2308159 - Síkkun á dælu í ES-2 Eskifirði | | Lögð fram tölvupóst samskipti við HD varðandi kostnað vegna síkkunar á ES-2. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir tillögur sviðstjóra að auka rekstraöryggi hitaveitunar Eskifjarðar og felur honum að vinna málið áfram. | | |
|
| 5. 2303230 - Framkvæmdasvið verkefni 2023 | | Farið yfir stöðu framkvæmda í Fjarðabyggð. Mannvirkja- og veitunefnd þakkar fyrir kynninguna. Málið lagt fyrir að nýju á næsta fundi. | | |
|
| 6. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL | | Lagt fram frá fjármálastjóra yfirlit yfir rekstur málaflokka fyrstu 6 mánuði ársins 2023. Sviðsstjóra falið að rýna yfirlitið með fjármálastjóra og leggja málið fyrir að nýju. | | |
|