Til bakaPrenta
Bæjarráð - 822

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
13.11.2023 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Jón Björn Hákonarson varamaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2303071 - Rekstur málaflokka 2023 - TRÚNAÐARMÁL
Lagt fram sem trúnaðarmál yfirlit um rekstur og fjárfestingar janúar - september 2023 og yfirlit yfir skatttekjur og launakostnað janúar - október 2023.
2. 2309162 - Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs 2024
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs.
Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfismála að uppfæra gjaldskrá til samræmis við minnisblað sem fjallar um gjald fyrirtækja fyrir klippikort.
Gjaldskrá með breytingum er samþykkt og tekur hún gildi frá og með 1. janúar 2024.
Minniblað - Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð 2024.pdf
 
Gestir
Verkefnastjóri umhverfismála - 00:00
3. 2309055 - Gjaldskrá fasteignagjalda 2024
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu um breytingu á sorphirðu- og sorpeyðingarargjaldi sem er frávik frá samþykkt bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir með tveim atkvæðum fyrir sitt leyti tillögu að breytingu á sorphirðu- og sorpeyðingargjaldi í gjaldskrá fasteignagjalda og vísar breytingu til staðfestingar bæjarstjórnar.
Ragnar Sigurðsson greiðir atkvæði gegn tillögu um gjaldskrá fasteignagjalda.
Breytingar á gjaldskrá fasteignagjalda 10.11.2024.pdf
4. 2310115 - Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 2024
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs tilögu að gjaldskrá gatnagerðargjalda.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá gatnagerðargjalda sem tekur gildi 1. janúar 2024.
Minnisblað v. breytingar á gjaldskrá fyrir gatnagerðargjöld Fjarðabyggðar 2024.pdf
 
Gestir
Verkefnastjóri umhverfismála - 00:00
5. 2305072 - Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun málaflokka nefndarinnar fyrir árið 2024.
Bæjarráð felur umhverfisfulltrúa að vinna greinargerð um skipulag úrgangsmála og tillögur sem teknar verða til umfjöllunar á sameiginlegum fundi bæjarráðs og umhverfis- og skipulagsnefndar.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
6. 2304177 - Kjarasamningar 2023 - áhrif nýrra kjarasamninga
Framlagt minnisblað um áhrif kjarasamninga á launaútgjöld og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar á árinu 2023.
Bæjarráð vísar minnisblaði til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2023.
7. 2310127 - Upplýsingatækni - starfrænt pósthólf
Framlagt til kynningar minnisblað um innleiðingu og notkun á stafrænu pósthólfi á island.is fyrir launaseðla og launamiða starfsmanna ásamt frekari miðlun gagna.
Bæjarráð tekur undir tillöguna og markmið um lækkun kostnaðar og minni sóun pappírs.
Minnisblað um innleiðingu á stafrænu pósthólfi.pdf
8. 2310062 - Vaktakerfi slökkviliðs
Framlagt minnisblað um vaktakerfi slökkviliðs Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir að framlengja tímabundið núverandi fyrirkomulag vaktakerfis slökkviðliðs Fjarðabyggðar til 1. apríl 2024 eða til þess tíma að samningsaðilar hafi lokið samningum.
Vaktkerfi slökkviliðs Fjarðabyggðar.pdf
9. 2211090 - Húsnæðismál félags eldri borgara á Eskifirði endurbætur Melbæ
Framlagt erindi félags eldriborgara á Eskfirði varðandi endurbætur á húsnæði félagsins í Melbæ.
Bæjarráð harmar að erindum hafi ekki verið svarað með formlegum hætti og felur bæjarstjóra að svara bréfritara. Jafnframt verði farið í viðhald innan ramma fjárhagsáætlunar 2024 og felur bæjarráð sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs að fylgja því eftir.
FEB Bréf frá 01.11.23.pdf
10. 2311065 - Samráð við Byggðaráð Múlaþings
Framlögð til kynningar fundargerð samráðsfundar bæjarráðs Fjarðabyggð og byggðaráðs Múlaþings.
Framlagt og kynnt.
Sameiginlegur fundur bæjarráðs Fjarðabyggðar og byggðaráðs Múlaþings.pdf
11. 2303153 - Lenging Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði
Þriðjudaginn 24. október voru opnuð tilboð í verkið "Fjarðabyggðarhafnir: Lenging Strandarbryggju. Steypt staurabryggja". Hafnarstjórn hefur samþykkt tilboð og það nú lagt fyrir bæjarráð til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir töku tilboðsins og felur bæjarstjóra undirritun verksamnings.
Opnununarfundagerð Fjarðabyggð LS.pdf
12. 2311092 - Styrkur til garnaveikibólusetningar í Fjarðabyggð
Umræða um styrki vegna garnaveikibólusetningar í sauðfé.
Bæjarráð samþykkir að greiða fyrir þjónustu dýralækna vegna bólusetningar gegn garnaveiki í allri Fjarðabyggð. Bændur leggja til bóluefni. Bæjarritara falið að ræða við dýralækna um þjónustu.

13. 2310164 - Umsókn um lóð Gilsholt 6-16
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn Búðinga ehf. um lóðina að Gilsholti 6- 16 á Fáskrúðsfirði fyrir 5 íbúða fjölbýli.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
750 Gilsholt 6-16 LB.pdf
14. 2311046 - Umsókn um lóð Búðarmelur 5
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðaumsókn Búðinga ehf. um lóðina að Búðarmel 5 a til c á Reyðarfirði fyrir þriggja íbúða fjölbýli.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
Búðarmelur 5a-c 730 LB.pdf
15. 2309240 - Umsókn um lóð Hafnargata 27 Fásk
Vísað frá umhverfis- og skipulagsnefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn Fiskeldis Austfjarða hf. um lóðina Hafnargötu 27 á Fáskrúðsfirði.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.
750 Hafnargata 27 LB.pdf
16. 2310027 - Umsögn vegna uppbyggingar og umgjörð lagareldis stefna til ársins 2040
Framlögð til kynningar umsögn Fjarðabyggðar um stefnu Matvælaráðuneytisins vegna lagareldis til ársins 2040.
Umsögn_lagareldi_09112023.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
17. 2311004F - Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 14
Fundargerð 14. fundar stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
17.1. 2305067 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2024
17.2. 2310047 - Erindi varðandi niðurfellingu fasteignagjalda
17.3. 2310119 - Bréf varðandi Egilsbúð
17.4. 2211009 - Menningarmót í Fjarðabyggð
18. 2311003F - Fræðslunefnd - 133
Fundargerð fræðslunefndar frá 7. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
18.1. 2310142 - Starfsáætlanir og skólanámskrár 2023-2024
18.2. 2311038 - Sumarlokun leikskóla 2024
18.3. 2311039 - Starfshópur um verkefnið Brúum bilið
18.4. 2311040 - Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu
19. 2310027F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 38
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 7. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
19.1. 2309162 - Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs
19.2. 2305072 - Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024
19.3. 2310115 - Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Fjarðabyggð 2024
19.4. 2310164 - Umsókn um lóð Gilsholt 6, Fáskrúðsfirði
19.5. 2310156 - Gilsholt 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
19.6. 2302173 - Hafnargata 36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
19.7. 2309240 - Umsókn um lóð Hafnargata 27 Fásk
19.8. 2310034 - Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva

Niðurstaða þessa fundar
Bæjarráð vísar til umhverfis- og skipulagsnefndar að marka stefnu um uppsetningu rafhleðslustöðva í Fjarðabyggð og gjaldtöku fyrir staðsetningu þeirra.
19.9. 2310174 - Framkvæmdaleyfi fyrir lagningu rafstrengs í jörð
19.10. 2310097 - Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Búðarárfoss
19.11. 2310113 - Framkvæmdaleyfi áfangastaðurinn Streitishvarf
19.12. 2310186 - Framkvæmdaleyfi til að breyta vatnsrás vegna ofanflóðavarna Nes- og Bakkagil
19.13. 2311028 - Framkvæmdaleyfi fyrir stækkun á gerfigrasvelli í Neskaupstað
19.14. 2311012 - Framkvæmdaleyfi stækkun á bílastæði við franska grafreitinn í Fáskrúðsfirði
19.15. 2311049 - Framkvæmdaleyfi endurnýjun á fráveitulögnum
19.16. 1908047 - 740 Svarthamrar - Óleyfisbyggingar
19.17. 2310028 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 25
19.18. 2311013 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Helluvegur 2
19.19. 2310124 - Umsókn um stöðuleyfi
19.20. 2310135 - Niðurfelling gjalda á móttökustöð
19.21. 2310118 - Til umsagnar 314. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
19.22. 2311046 - Umsókn um lóð Búðarmelur 5
19.23. 2311056 - Umsókn um stöðuleyfi
19.24. 2311061 - Búðarmelur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
19.25. 2301174 - Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2023
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl.  

Til bakaPrenta