Til bakaPrenta
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 51

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
11.02.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Kristinn Þór Jónasson varaformaður, Elís Pétur Elísson aðalmaður, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður, Svanur Freyr Árnason embættismaður, Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Aron Leví Beck, Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2507014 - Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2
Um umsögn Vegagerðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í ábendingu Vegagerðarinnar og vísar erindinu til umsagnar í hafnarstjórn.
Minnisblað v. Sævarendi - umsögn Vegagerðarinnar.pdf
2. 2302213 - Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
114091-TEI-001-V01 Skógræktarsvæði Reyðarfirði.pdf
3. 2601220 - Umsókn um stækkun lóðar Heiðarvegur 29, 730 Reyðarfirði
Umsókn um stækkun lóðar Heiðarvegur 29, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stækkun á lóð. Stækkunin er ekki talin hafa grenndaráhrif. Málinu er vísað til afgreiðslu í bæjarráði.
4. 2410177 - Framkvæmdaleyfi vegna strenglaganar milli Hesteyrar og Selhellu í Mjóafirði
Endurnýju á framkvæmdaleyfi. Ekki var farið í verkið á síðasta ári vegna ófyrirséðs kostnaðar í öðrum verkum. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir endurnýjun á framkvæmdaleyfi.
Útg.framkvæmdaleyfi vegna strenglaganar milli Hesteyrar og Selhellu í Mjóafirði.pdf
6. 2601178 - Fiskeldissjóður - umsóknir 2026
Tillaga að umsóknum í fiskeldissjóð 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögurnar og felur sviðstjóra að senda inn umsókn.
7. 2601008 - Strandgata 39, 735 Eskifirði breytt notkun
Beiðni Búðinga ehf. að breyta notkun Strangötu 39, 735 Eskifirði í starfsmannahús til tveggja ára. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir breytta notkun að Strandgötu 39, 735 Eskifirði til 1. júlí 2027 og felur byggingarfulltrúa að fara í úttekt á mannvirkinu.
8. 2309068 - Öryggi við hesthúsahverfi í Reyðarfirði
Öryggi við hesthúsahverfi í Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillöguna og felur skipulagsfulltrúa að vera í sambandi við Vegagerðina.
Hesthúsahverfi RFJ 1.pdf
Almenn mál - umsagnir og vísanir
5. 2601258 - Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Frumvarp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.
Drög að frumvarpi vegna flutnings eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15 

Til bakaPrenta