Til bakaPrenta
Bæjarráð - 871

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
11.11.2024 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari
Stefán Þór Eysteinsson og Jón Björn Hákonarson tóku þátt í fundi í gegnum fjarfundabúnað.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2306119 - Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs drögum að samningi HSA og Fjarðabyggðar um samþættingu þjónustu heimahjúkrunar og heimastuðnings. Farið yfir verkefnið gott að eldast og efni samningsins með fulltrúum frá heilbrigðisráðuneytinu.
Bæjarráð þakkar kynningu á samningi og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs, stjórnanda stoð- og stuðningsþjónustu og bæjarstjóra að vinna áfram að frágangi samnings með hlutaðeigandi aðilum og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
Drög að samningi HSA og Fjarðabyggðar Gott að eldast.pdf
 
Gestir
Stjórnandi stoð- og stuðningsþjónustu - 00:00
Berglind Magnúsdóttir heilbrigðisráðuneytinu - 00:00
Þura Björk Hreinsdóttir - 00:00
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 00:00
2. 2409131 - Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2025
Vísað frá hafnarstjórn til afgreiðslu bæjarráðs gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2025.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætlunargerðar 2025 og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2025.
Minnisblað.pdf
3. 2409159 - Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2025
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd tillögu að gjaldskrá skipulags- og byggingarmála fyrir árið 2025.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána sem byggir á forsendum fjárhagsáætunargerðar 2025 og tekur ný gjaldskrá gildi 1. janúar 2025.
Minnisblað v. gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2025.pdf
4. 2411042 - Kæra frá Úrskurðarnefnd um upplýsingamál
Framlagt erindi frá úrskurðarnefndar um upplýsingamál um kæru frá Ívari Ingimarssyni og Hrefnu Arnardóttur vegna ákvörðunar Fjarðabyggðar að synja beiðni um aðgang að gögnum.
Bæjarráð felur bæjarritara að svara erindi úrskurðarnefndar.
5. 2410169 - Samskiptastefna FJB - Aton
Framlögð drög að samskiptastefnu fyrir Fjarðabyggð sem ráðgjafafyrirtækið Aton var fengið til að hanna og fylgdu fulltrúar fyrirtækisins henni úr hlaði.
Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa að vinna með málið áfram og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
 
Gestir
Svanhildur G Kristjánsdóttir Aton - 00:00
Upplýsingafulltrúi - 00:00
Ásdís Sigurbergsdóttir Aton - 00:00
6. 2409081 - Rýni- og starfshópar í grunn- og leikskólum
Á fundum starfs- og rýnihópa leik- og grunnskóla hefur verið samþykkt að fresta störfum hópanna þar til kjarasamningar við Kennarasamband Íslands hafa verið gerðir. Í ljósi þess að kjarasamningar hafa ekki enn náðst er óvissa um samningsbundna skilmála og umgjörð skólastarfsins. Stefnt er að því að taka upp þráðinn á nýju ári og vinna að niðurstöðum í hópunum í tíma fyrir skólaárið 2025-2026. Þó verður tekið mið af breytingum á gjaldskrá leikskóla, sem stefnt er að innleiða um komandi áramót, þar sem lögð er áhersla á að efla starfsumhverfi skólanna. Bæjarráð mun halda áfram að fylgjast með þróun mála og tryggja að starfshóparnir fái viðeigandi stuðning til að ná fram umbótum í samræmi við nýja kjarasamninga og markmið sveitarfélagsins um öflugt og faglegt skólastarf.
7. 2411022 - Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2024
Framlagðar til kynningar fundargerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 82 og 83. ásamt aðalfundargerð samtakanna.
Fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga - nr. 83.pdf
Fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga - nr. 82.pdf
Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.pdf
8. 2401142 - Fundargerðir stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga 2024
Fundargerð 954. fundar stjórnar Sambandsins lögð fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 954.pdf
9. 2403087 - Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2024
Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 77 og 78. ásamt aðalfundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga -nr. 77.pdf
Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 78.pdf
Adalfundur-Samtaka-orkusveitarfelaga-2024.pdf
Samtök orkusveitarfélaga - stefnumörkun og starfsáætlun 2024-2026.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
10. 2411003F - Skipulags- og framkvæmdanefnd - 21
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 6. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
10.1. 2301057 - Eignarsjóður 735 Grunnskólinn Eskifirði
10.2. 2402026 - Kirkjubólseyri 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
10.3. 2411001 - Byggingarleyfi breytingar inni Egilsbraut 22
10.4. 2410182 - Byggingarleyfi Búðareyri 25 - breytt notkun
10.5. 2410129 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Sæbakki 28
10.6. 2409211 - Framkvæmdir á eignarlóð að Strandgötu 94,735
10.7. 2410168 - Umsókn um auka lóð Strandgata 58 Esk
10.8. 2410177 - Framkvæmdaleyfi vegna strenglagningar milli Hesteyrar og Selhellu í Mjóafirði
10.9. 2410211 - Umsókn um stöðuleyfi Vinnubúðir Héraðsverks v. ofanflóðavarnir Neskaupstað
10.10. 2411017 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Óseyri 1
10.11. 2409229 - Fjölskyldusvæði við Starmýri
10.12. 2404177 - Skipulag úrgangsmála 2024 í Fjarðabyggð
10.13. 2409159 - Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2025
11. 2410029F - Fjölskyldunefnd - 16
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 4. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
11.1. 2306119 - Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
11.2. 2410176 - Starfsáætlanir og skólanámskrár 2024-2025
11.3. 2411004 - Stytting vinnuvikunnar - Bókasöfn Fjarðabyggðar
12. 2411002F - Hafnarstjórn - 319
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
12.1. 2409131 - Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2025
12.2. 1710016 - Endurnýjun stálþilja vegna tæringar
12.3. 2410166 - Mat á stöðu innviða - Hafnir
12.4. 2410218 - Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands 2024
12.5. 2402027 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2024
13. 2411007F - Starfshópur um breytingar í leikskólum - 6
Fundargerð starfshóps um breytingar í leikskólum frá 7. nóvember tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
14. 2411008F - Rýnihópur um breytingar í grunnskólum - 5
Fundargerð rýnihóps um breytingar í grunnskólum frá 7. nóvember 2024 lögð fram til afgreiðslu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:50 

Til bakaPrenta