Til bakaPrenta
Skipulags- og framkvæmdanefnd - 28

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
18.03.2025 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Kristinn Þór Jónasson varaformaður, Elís Pétur Elísson aðalmaður, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir aðalmaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður, Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Aron Leví Beck, Stjórnandi byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2503113 - Byggingarleyfi - Niðurrif Strandgata 6 - 740 Norðfjörður
Byggingarheimild - Niðurrif Strandgata 6 - 740 Norðfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarheimild þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
2. 2501005 - Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 26
Óv.dsk breyting á miðbæjarskipulagi Neskaupstaðar Egilsbraut 22 og Egilsbraut 26. Uppfærðir uppdrættir þar sem kvöð um gönguleið hefur verið bætt inn á. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir eigendum að Egilsbraut 12, 14, 19, 21, 23 og 25, Norðfirði og leggja niðurstöðu grenndarkynningar fyrir nefnd.
111780_Dsk óveruleg breyting miðbær Neskaupstaðar.pdf
Minnisblað vegna uppfærðra uppdrátta.pdf
3. 2411039 - Umsókn um breytingu á byggingarreit að Daltúni 7, 735
Tekið fyrir að nýju umsókn um breytingu á byggingarreit að Daltúni 7, 735. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingu á byggingarreit og kallar eftir að uppdráttur vegna óverulegrar breytingu á deiliskipulagi verði lagður fyrir fundinn að nýju.
Minnisblað Daltún 7 færsla á byggingarreit.pdf
4. 2503074 - Umsókn um lóð Búðarmelur 27
Umsókn um lóð Búðarmelur 27, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti úthlutun lóðarinnar og vísar erindinu í bæjarráð.
Borg, Iceland.pdf
Búðarmelur 27.pdf
Minnisblað vegna umsóknar um byggingarlóð að Búðarmel 27 og skil á lóð að Litlagerði 6.pdf
5. 2501189 - Umsókn um afnot af lóð skotíþróttasvæði Reyðarfjörður
Skotíþróttafélagið Dreki sækir um afnot af lóð samkv. deiliskipulagi aksturs- og skotíþróttasvæði vestan Bjarga. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að félagið hafi afnot af lóðinni og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráði.
730 Skotíþróttasvæði LB.pdf
Minnisblað vegna umsóknar um lóð fyrir skotíþróttasvæði Reyðarfirði.pdf
deiliskipulag.pdf
6. 2502245 - Framkvæmdaleyfi strengir Breiðamel Reyðarfirði
Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningar heimtauga, stofnstrengja, rör, götuskápa og háspennustreng í nýjar götur Reyðarfirði (Melgerði, Melbotn). Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
Breiðimelur.pdf
7. 2503050 - Framkvæmdaleyfi Plæging á tveimur Háspennustrengjum frá Melbrún á Reyðarfirði út að væntanlegu rofahúsi ofan Mjóeyrar.
Plæging á tveimur Háspennustrengjum frá Melbrún á Reyðarfirði út að væntanlegu rofahúsi ofan Mjóeyrar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
Reyðarfjörður-Mjóeyrarhöfn-Eskifjörður_umsögn_17102023.pdf
Mjóeyri Reyðarfjörður.pdf
8. 2411016 - Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð
Umsókn um að hafa klæddan gám á íbúðarhúsalóð. Lóðarhafi óskar eftir að hafa smáhýsið innan við 3 metra frá lóðarmörkum. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnar umsókninni á þeim forsendum að gámar eru ekki leyfðir í íbúðarbyggð, klæddir eða ekki. Einnig liggur fyrir að einingin rúmast ekki innan svæðisins án þess að brjóta í bága við byggingarreglugerð. Nefndin vísar umsækjanda á skipulagt gámasvæði í Neskaupstað.
Minnisblað vegna umsókn um leyfi til að hafa smáhýsi við lóðarmörk.pdf
9. 2503067 - Framkvæmdaleyfi tenging milli línuslóða Kollaleiruháls
Umsókn Skógræktarfélags Reyðarfjarðar um framkvæmdaleyfi vegna tengingu á slóða við Kollaleiruháls. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
Umsókn um framkvæmdaleyfi.pdf
Tenging milli línuslóða kollaleiruháls.pdf
10. 2009034 - Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður
Tillaga að fjölskyldusvæði á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að útbúa óverulega breytingu á deiliskipulagi og setja í auglýsingu.
HV2002_Athugun-Fjolskyldusvaedi_A2-500_2024-11-05.pdf
11. 2503090 - Umsókn um undanþágu frá aðalskipulag
Umsókn um undanþágu frá aðalskipulagi. Trúnaðarmál. Lagt fram bréf umsækjanda ásamt minnisblaði stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar. Skipulags- og framkvæmdanefnd veitir ekki undanþágu frá aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040. Ekki stendur til að breyta reglum varðandi gististaði í íbúðabyggð. Nefndin felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að svara umsækjanda.
12. 2502007 - Ungmennaráð - Söndun gatna
Ungmennaráð Fjarðabyggðar vill vekja athygli á mikilvægi tímabærs sandburðar á götum og göngustígum sveitarfélagsins. Í dag er sandburður oft framkvæmdur of seint, sem skapar hættu fyrir gangandi vegfarendur, sérstaklega börn á leið í skóla. Með betra skipulagi og fyrirbyggjandi aðgerðum væri hægt að tryggja öruggari aðstæður og draga úr slysahættu. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar erindið og vísar til úrvinnslu hjá sviðsstjóra.
Minnisblað - Ungmennaráð um söndun gatna og göngustíga.pdf
13. 2503014 - Ungmennaráð - fjöldi og staðsetning ruslatunna í gönguleiðum og við ljósastaura
Ungmennaráð hvetur Skipulags- og framkvæmdanefnd til að endurskoða fjölda og staðsetningu ruslatunna í sveitarfélaginu, með sérstakri áherslu á göngustíga, almenningssvæði og vinsælar útivistarleiðir. Skipulags- og framkvæmdanefn tekur vel í erindið og felur stjórnanda þjónustu- og framkvæmdarmiðstöðvar að koma með tillögu að úrbótum og leggja fyrir nefndina að nýju.
Fjöldi ruslatunna í gönguleiðum Fjarðabyggðar.pdf
14. 2503120 - Naustahvammur vinnusvæði
Lögð fram tillaga verkefnastjóra hafna og stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar um aukið öryggi á hafnarsvæði Norðfjarðarhafnar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar erindinu til hafnarstjórnar.
Minnisblað v. Naustahvammur vinnusvæði.pdf
15. 2503122 - Vor í Fjarðabyggð
Umræða um verkefnið Vor í Fjarðabyggð. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur starfsmönnum sviðsins að leggja drög að útfærslu á verkefninu og leggja fyrir nefnd að nýju.
16. 2503018 - Ofanflóð 2025- málþing um snjóflóð og samfélög
Samband íslenskra sveitarfélaga vekur athygli framkvæmdastjóra og sveitarstjórnar á ráðstefnu sem verður haldinn á Ísafirði 5-6 maí 2025. Skipuleggjendur málþingsins eru ofanflóðasjóður, Veðurstofa Íslands, Vegagerðin, Almannavarnir, Samband íslenskra sveitarfélaga, Byggðastofnun, Verkfræðingafélag Íslands og Snjóflóðasamtök Íslands. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar gott boð.
17. 2302213 - Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Lögð fram drög að samningi við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu til næsta fundar.
18. 2503100 - Úrgangsmál - textíll
Lagt fram minnisblað stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar varðandi textílsöfnun, málm og gler. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfismála að koma með útfærslu á ílátum.
Minnisblað v. textíl m. rauði krossinn.pdf
19. 2503127 - Umsókn um stöðuleyfi
Umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á gámasvæði Mjóeyrahöfn. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir stöðuleyfið og felur skipulagsfulltrúa að gera nýjan leigusamning.
20. 2209007 - Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs ný áætlun 2025
Framlögð drög að endurskoðaðri svæðisáætlun Austurlands ásamt aðgerðaráætlun um úrgangsmál á Austurlandi en vinna er nú á lokametrunum. Kynningarfundur var fimmtudaginn 13.mars með Stefáni Gíslasyni frá Environice. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og fagnar vinnu við nýja svæðisáætlun.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30 

Til bakaPrenta