Til bakaPrenta
Félagsmálanefnd - 155

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
09.08.2022 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir formaður, Ásmundur Páll Hjaltason varamaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Barbara Izabela Kubielas aðalmaður, Tinna Hrönn Smáradóttir aðalmaður, Laufey Þórðardóttir embættismaður, Óskar Sturluson embættismaður, Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir .
Fundargerð ritaði: Óskar Sturluson, Stjórnandi barnaverndar og félagsþjónustu


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2205172 - Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2022 - 2026
Formaður félagsmálanefndar kynnir skipan fulltrúa í Öldungaráðs Fjarðabyggðar fyrir nefndinni.
2. 2205195 - Ársfundur Starfsendurhæfingar Austurlands 2022
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs kynnir ársskýrslu og ársreikning Starfa fyrir árið 2021.
undirritaður ársreikningur 2021.pdf
Árskýrsla 2021.pdf
3. 2208009 - Tímabundinn styrkur til sveitarfélaga vegna tómstunda- og menntunarúrræða barna á flótta Síðari úthlutun
Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir tölvubréf Mennta- og barnamálaráðuneytisins, dags. 2. ágúst 2022, þar sem vakin er athygli sveitarfélaga á að sveitarfélög geti sótt um stuðning vegna móttöku barna á flótta.
4. 2208002 - Félag heyrnarlausra óskar eftir styrk
Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar kynnir tölvubréf Félags heyrnalausra þar sem óskað eftir að styrk vegna þátttöku heyrnalausra ungmenna og leiðbeinanda á vegum félagsins á Norðurlandamót og Evrópumót ungmenna á aldrinum 8-15 ára. Félagsmálanefnd þakkar fyrirspurnina en telur sér því miður ekki fært að verða við styrkbeiðninni að þessu sinni. Stjórnanda félagsþjónustu er falið að svara beiðninni fyrir hönd nefndarinnar.
5. 2207054 - Íslenska æskulýðsrannsóknin - Fjarðabyggð
Málinu er frestað til næsta fundar nefndarinnar. Lagt er fyrir sviðststjóra að taka saman stutta kynningu fyrir nefndina um helstu niðurstöður.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:45 

Til bakaPrenta