Til bakaPrenta
Bæjarráð - 766

Haldinn í Molanum fundarherbergi 3,
26.09.2022 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Þórður Vilberg Guðmundsson, Forstöðumaður stjórnsýslu- og upplýsingamála


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2209168 - Drög að upplýsingastefnu stjórnvalda
Lögð fram til kynningar "Drög að upplýsingastefnu stjórnvalda". Umsagnarfrestur er til og með 09.10.2022.
Upplýsingastefna stjórnvalda_drög.pdf
2. 2209175 - Erindi leikskólastjóranna um vinnutíma
Framlagt bréf leikskólastjóra í Fjarðabyggð um um opnunartíma leikskóla í Fjarðabyggð. Erindinu er vísað til fræðslunefndar til umfjöllunar.
3. 2204177 - Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2022
Framlögð til kynningar fundargerð stjórnar Náttúrustofu Austurlands frá 1. september sl.
4. 2203070 - Umsókn um stofnframlag á árinu 2022
Brák íbúðafélag hses hefur verið stofnað og flytja þarf úthlutun stofnframlaga vegna tveggja verkefna frá Fjarðabyggð til Brákar. Bæjarráð samþykkir að flytja áður úthlutuðum stofnframlögum Fjarðabyggðar og HMS með formlegum hætti til Brákar vegna Hafnarbrautar í Neskaupstað og Árdals á Eskifirði.
5. 2112130 - Úthlutun stofnframlaga ríkisins 2021
Brák íbúðafélag hses hefur verið stofnað og flytja þarf úthlutun stofnframlaga vegna tveggja verkefna frá Fjarðabyggð til Brákar. Bæjarráð samþykkir að flytja áður úthlutuðum stofnframlögum Fjarðabyggðar og HMS með formlegum hætti til Brákar vegna Búðarmels á Reyðarfirði. Jafnframt samþykkir bæjarráð yfirtöku Brákar á kaupsamningi Fjarðabyggðar við Nýjatún ehf um Búðarmel.
6. 2209132 - Umsókn um lóð Sæbakki 17
Lögð fram lóðarumsókn Róberts Óskars Sigurvaldasonar um lóð að Sæbakka 17 í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
7. 2209144 - Umsókn um lóð Bakkabakki 2b
Lögð fram lóðarumsókn Vilhjálms Skúlasonar um lóð að Bakkabakka 2b, í Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
Fundargerðir til staðfestingar
8. 2209021F - Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 3
Fundargerð menningar- og safnastofnunar frá 20. september lögð fram til afgreiðslu
8.1. 2208081 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023
8.2. 2209114 - Gjaldskrá safna í Fjarðabyggð 2023
8.3. 2209055 - Skapandi sumarstörf 2022
8.4. 2111170 - Aðalfundur Héraðsskjalasafn Austfirðinga bs. 2021 - staðfesting stofnsamnings
8.5. 2209173 - Innkaup bóka til almennings- og skólabókasafna
9. 2209020F - Hafnarstjórn - 284
Fundargerð hafnarstjórnar frá 19. september lögð fram til afgreiðslu
9.1. 2208077 - Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2023
9.2. 2208102 - Hafnarsvæðið á Fáskrúðsfirði
9.3. 2209127 - Sjávarútvegsráðstefnan 2022
10. 2209016F - Umhverfis- og skipulagsnefnd - 7
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 20. september tekin til afgreiðslu
10.1. 2208083 - Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2023
10.2. 2109139 - Fyrirspurn um framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í Björgunum í Reyðarfirði
10.3. 2209049 - Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
10.4. 2209049 - Hafnarbraut 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
10.5. 2209050 - Skólavegur 57 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
10.6. 2209103 - Strandgata 58 - 735 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
10.7. 2209132 - Umsókn um lóð Sæbakki 17
10.8. 2209144 - Umsókn um lóð Bakkabakki 2b
10.9. 2209107 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Holtagata 5
10.10. 2208016 - Umsókn um stöðuleyfi
10.11. 2102084 - Svæðisskipulag Austurlands - fundargerðir ofl.
10.12. 2208175 - Fjallskilasamþykkt SSA
10.13. 2209064 - Tilnefning fulltrúa í stýrihóp sjálfbærniverkefnis
10.14. 2102084 - Svæðisskipulag Austurlands - fundargerðir ofl.
10.15. 2209155 - Fundaáætlun USK fyrir síðari hluta ársins 2022
Ofsaveðrið sem gekk yfir Austurland í gær olli umtalsverðu tjóni víða í Fjarðabyggð, en einna verst virðist staðan vera á Reyðarfirði. Veðrið gengur ekki að fullu niður fyrr en síðar í dag og þá hefst vinna við hreinsunarstarf og að meta það tjón sem veðrið hefur valdið.

Íbúar sveitarfélagsins brugðust vel við yfirvofandi hættu vegna veðursins og tryggðu lausamuni og minnkuðu þannig talsvert það tjón sem hefði getað orðið vegna þeirra. Bæjarráð vill koma á sérstöku þakklæti til björgunarsveita í Fjarðabyggð sem og til íbúa, starfsmanna Fjarðabyggðar, og annarra þeirra sem komu að því


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta