Til bakaPrenta
Stjórn menningarstofu og safnastofnunar - 8

Haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
09.05.2023 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Pálína Margeirsdóttir formaður, Margrét Sigfúsdóttir varamaður, Bjarki Ingason aðalmaður, Guðbjörg Sandra Óðinsd. Hjelm aðalmaður, Benedikt Jónsson aðalmaður, Gunnar Jónsson embættismaður, Jóhann Ágúst Jóhannsson embættismaður, Pétur Þór Sörensson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2305067 - Starfs- og fjárhagsáætlun í menningarmálum 2024
Farið yfir undirbúning og vinnu við gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2024. Verður tekið fyrir á næsta fundi stjórnar.
Reglur um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar.pdf
Dagsetningar í fjárhagsáætlunarferli fyrir áætlun ársins 2024.pdf
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
2. 2303163 - Erindi Tanna Travel til stjórnar menningarstofu og safnastofnunar 2023
Framlagt erindi til stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar frá Tanna Travel um verðskrá safna vegna lokunar Stríðsárasafns.
Stjórn getur ekki orðið við erindi. Forstöðumanni Safnastofnunar falið að svara bréfritara.
3. 2206071 - Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
Vísað frá bæjarráði drögum að kostnaðaráætlun vegna uppbyggingar bragga á safnasvæði Íslenska stríðsárasafnsins ásamt minnisblöðum um uppsetningu sýningar fyrir sumarið 2023 og forvörslu muna safnsins til óákveðins tíma.
Stjórn samþykkir fyrir sitt leyti tillögur þær sem fram eru lagðar um húsaleigu vegna forvörslu muna Stríðsárasafnsins og sýningu þess sumarið 2023 við Ægisgötu á Reyðarfirði. Stjórn vísar til bæjarráðs kostnaðarþáttum þar sem málaflokkurinn hefur ekki fjármagn til ráðstafana sem lagðar eru fram í tillögum.
Minnisblað - Íslenska stríðsárasafnið 2023.pdf
Minnisblað_Ljósmynda- og sögusýning_Stríðsárasafn 2023.pdf
4. 2304117 - Framlag til reksturs
Stjórn samþykkir að veita styrk til reksturs og endurbóta húsnæðis Sköpunarmiðstöðvarinnar að fjárhæð 2 milljónir kr. samkvæmt fjárhagsáætlun ársins.
5. 2305022 - Egilsbúð - búnaður hússins
Framlagður tölvupóstur frá Guðjóni Birgi um ástand á búnaði í Egilsbúð á Norðfirði.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2024.
6. 2303266 - Saga Norðfjarðar frá 1929 - 1998
Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar í stjórn menningarstofu- og safnastofnunar erindi Samvinnufélags útgerðamanna á Norðfirði vegna ritunar á Sögu Norðfjarðar. Samvinnufélagið leggur til að félagið standi straum af kostnaði við framhald ritunar sögu Norðfjarðar frá 1929 til 1998 og sveitarfélagið annist útgáfu bókarinnar.
Stjórnin þakkar samvinnufélaginu fyrir veglegt framlag til söguritunar og samþykkir að standa straum af kostnaði við útgáfu bókarinnar.
Bréf til bæjarráðs 23-03-2023 (undirritað).pdf
7. 2304217 - Í framhaldi af snjóflóðum 2023 - Skjalasafn Norðfjarðar - saga bæjarins.
Vísað frá bæjarráði til stjórnar Menningarstofu- og Safnastofnunar erindi Áslaugar Lárusdóttur vegna Skjalasafns Norðfjarðar. Á fjárfestingaráætlun ársins er gert ráð fyrir lokaáfanga byggingar skjalasafnsins að Þiljuvöllum á Norðfirði og hillir undir flutning skjalasafnsins í varanlegt húsnæði. Fram lagt og kynnt.
Í framhaldi af snjóflóðum 2023.pdf
8. 2303230 - Framkvæmdasvið verkefni 2023 - bókasafnið á Eskifirði
Skýrsla frá Eflu verkfræðistofu var lögð fyrir bæjarráð þar sem kynntar voru mælingar og niðurstöður úr sýnatökum í bókasafninu á Eskifirði og grunnskólanum. Farið yfir stöðu bókasafnsins. Almenningsbókasafni hefur verið lokað en skólabókasafnið þjónar grunnskólanum á annarri hæð skólans.
Forstöðumaður Safnastofnunar fór yfir ráðstafanir sem gerðar hafa verið vegna lokunar safnsins og forvörslu safnmuna.
9. 2012097 - BRAS - skýrslur og samningar
Forstöðumaður Menningarstofu kynnti skýrslu um BRAS 2022.
Lokaskýrsla.BRAS.2022_menningarmiðstöðvar.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45 

Til bakaPrenta