Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 23

Haldinn að Búðareyri 2, fundarherbergi 1,
18.04.2023 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Esther Ösp Gunnarsdóttir varaformaður, Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Ingunn Eir Andrésdóttir varamaður, Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Aron Leví Beck, umhverfis- og skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2302213 - Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar
Samningur við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar. Kynning frá formanni Skógræktarfélags Reyðarfjarðar. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að uppfæra teikningu og samning og leggja fyrir að nýju.
2. 2304049 - Strandgata 98B - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Strandgata 98B, Eskifirði - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir umsókn um byggingarleyfi og felur byggingarfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
3. 2304056 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Smiðjustígur 4
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Smiðjustíg 4, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
4. 2304045 - Umsókn um lóð Litlagerði 6
Umsókn um lóð fyrir einbýlishús að Litlagerði 6, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Nefndin áréttar að samkvæmt gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið er gert ráð fyrir húsi á einni hæð á lóðinni.
5. 2304051 - Framkvæmdaleyfi Fell skógrækt
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á jörðinni Fell í Breiðdal. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir úthlutun á framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á jörðinni Fell í Breiðdal að undanskyldu svæði neðan vegar, PT 12-17, vegna skilmála landnotkunarflokks um landbúnaðarsvæði: Skógrækt er þó ekki heimil á góðu akuryrkjulandi, nema um skjólbelti sé að ræða, í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2020-2040. Nefndin felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út leyfi er öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
Screenshot_20230411_094249_Document Reader.pdf
6. 2304061 - Tilkynning um kæru v Hafnargötu 36 FÁSK
Tilkynning um kæru v Hafnargötu 36 FÁSK. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að fella byggingarleyfi er varðar hljóðmön við Hafnargötu 36 úr gildi og fara með málið grenndarkynningu.
kæra skönnuð.pdf
Fylgiskjal 1 - Ljósmynd.pdf
Fylgiskjal 2 Byggingaleyfi.pdf
Fylgiskjal 4 Svar við grendarkynningu.pdf
Fylgiskjal 5 Efla mælingar.pdf
Fylgiskjal 6 Umsögn eigna ogskipulagsnefndar.pdf
Fylgiskjal 7 Kæra til úrskurðarnefndar.pdf
Fylgiskjal 8 úrskurður.pdf
Fylgiskjal 10 Yfirlýsing Kolbeinn.pdf
Fylgiskjal 12 221223 hljóðmælingar skýrsla mannvit.pdf
Fylgiskjal 13 3427-007-02-min-001-v01-nidurstodurmaelinga.pdf
Fylgiskjal 13 3427-007-02-min-004-v01-nidurstodurmaelinga (002).pdf
Fylgiskjal 13 3427-007-02-min-005-v01_umhverfishávadi.pdf
Fylgiskjal 14 Aðaluppdráttur af hljóðmön við Hafnargata 36.pdf
Fylgiskjal 15 3427-007-02-min-006-v1_motvargisadgerdir.pdf
Fylgiskjal 16 Svbr.byggingaleyfi lítið.pdf
7. 2304069 - Númerslausir bílar 2023
Kynning á verkefni er snýr að númerslausum bílum í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna.
8. 2303368 - Deiliskipulag Nes- og Bakkagil
Framlagt tilboð frá Landmótun ehf. vegna vinnu við nýtt deiliskipulag að Nes- og Bakkagili Norðfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir framlagt tilboð og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að fylgja málinu fast eftir.
Verð í skipulag fyrir Nes- og Bakkagil.pdf
9. 2304097 - Umferðaröryggi milli leikskóla og Heiðavegs 7 Reyðarfirði
Umferðaröryggi milli leikskóla og Heiðavegs 7 Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að vinna málið áfram í samráði við bæjarverkstjóra.
Minnisblað.pdf
10. 2208107 - Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt
Framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt Eyri, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
11. 2304103 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Melagata 13
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi varðandi Melagötu 13, Neskaupstað. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til bakaPrenta