Til bakaPrenta
Bæjarráð - 843

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
15.04.2024 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Ragnar Sigurðsson formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Stefán Þór Eysteinsson aðalmaður, Jóna Árný Þórðardóttir bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2403158 - Rekstur málaflokka 2024
Lagt fram yfirlit fjármálastjóra um rekstur og fjárfestingar fyrir janúar - febrúar auk yfirlits yfir launakostnað og skattekjur fyrir janúar - mars 2024.
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
2. 2402279 - Tilboð í tjaldstæði Fjarðabyggðar
Lagðir fram samningar við Ferðaþjónustuna Fossárdal ehf. um kaup á 4 tjaldsvæðum og leigu á 2 tjaldsvæðum í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir samningana og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
3. 2403005 - Umsókn um stofnframlög á árinu 2024
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fer fram á staðfestingu Fjarðabyggðar á stofnframlagi sveitarfélagsins vegna tveggja umsókna um stofnframlög til íbúðaverkefna á Reyðarfirði og Eskifirði.
Bæjarráð staðfestir úthlutun á stofnframlögum til verkefnanna. Vísað til gerðar viðauka þegar fjárhæðir liggja fyrir.
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
4. 2404065 - Ársfundur Lífeyrissjóðs Stapa 2.maí 2024
Framlagt boð á aðalfund Stapa lífeyrissjóðs sem haldinn verður 2. maí nk. á Akureyri. Tilnefna þarf fulltrúa Fjarðabyggðar í fulltrúaráð.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að mæta fyrir hönd Fjarðabyggðar og er jafnframt tilnefndur til setu í fulltrúaráði.
Fundarboð Ársfundur Lífeyrissjóðs Stapa 2.maí 2024
.pdf
 
Gestir
Fjármálastjóri - 00:00
5. 2310034 - Beiðni um uppsetningu hraðhleðslustöðva
Framlögð drög að samningum um uppsetningu hraðhleðslustöðva í Fjarðabyggð.
Bæjarráð samþykkir samninga um rafhleðslustöðvar og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.
6. 2404059 - Málefni Auturbrúar - Eyglóarverkefni
Kynning á starfsemi Austurbrúar og Eyglóarverkefninu sem er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Austurlandi, Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis, Landsvirkjunar og Austurbrúar.
 
Gestir
Eva Mjöll Júlíusdóttir framkvæmdastjóri Eyglóar - 00:00
Dagmar Ýr Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Austubrúar - 00:00
7. 2404060 - Samtal um nátturustofu
Framlagt erindi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis sem boðar til fundar um málefni náttúrustofa 22. maí.
Bæjarráð samþykkir að bæjarráð ásamt bæjarstjóra mæti á fundinn.
Samtal um Nátturustofu.pdf
8. 2403229 - Aðstoðuleysi í Oddskarði
Framlagt bréf frá stjórn Brettafélags Fjarðabyggðar um aðstöðu til íþróttaiðkunar fyrir börn í Oddskarði.
Bæjarráð felur formanni bæjarráðs að ræða við forsvarsmenn félagsins og stjórnanda íþrótta- og frístundamála.
9. 2404044 - Skólafrístund
Minnisblað um tilhögun yfirfærslu frístundar grunnskólabarna lagt fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og vísar erindi til fjölskyldunefndar til frekari úrvinnslu.
Skólafrístund Fjarðabyggðar samkv tillögum á fundi fjölsknfnd..pdf
10. 2211108 - Verkefnið Sterkur Stöðvarfjörður
Skipun fulltrúa frá Fjarðabyggð í verkefnastjórn Sterks Stöðvarfjarðar, Brothættar byggðir.
Bæjarráð samþykkir að fela Haraldi L. Haraldssyni upplýsingafulltrúa að taka sæti í verkefnastjórninni.
11. 2402163 - Þjóðlendumál kröfur óbyggðanefndar eyjar og sker
Framlagt erindi Óbyggðanefndar vegna endurskoðunar fjármála- og efnahagsráðherra á kröfum um þjóðlendur.
Framlagt og kynnt.
Svæði 12 - svar ÓBN við bréfi FJR um endurskoðun kröfugerðar ríkisins 10.04.24.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
12. 2404008F - Fjölskyldunefnd - 2
Fundargerð fjölskyldunefndar lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
12.1. 2404044 - Skólafrístund
12.2. 2004159 - Fjölþætt heilsuefling fyrir eldri aldurshópa
12.3. 2306119 - Gott að eldast-samþætting þjónustu Fjarðabyggð og HSA
12.4. 2312054 - Erindisbréf fjölskyldunefndar
12.5. 2301106 - Búsetukjarni og skammtímavistun
13. 2404004F - Stjórn menningarstofu - 3
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 8. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
13.1. 2402252 - Umsókn um leigu ( Skrúður )
13.2. 2403209 - Styrktarsjóður EBÍ 2024
13.3. 2403042 - 80 ára afmæli lýðveldisins
13.4. 2206071 - Framtíð Íslenska Stríðsárasafnsins
13.5. 2402237 - Starfsemi og þjónusta safna Fjarðabyggðar sumarið 2024
13.6. 2401039 - Verkefni menningarstofu 2024
13.7. 2404023 - 17. júní 2024
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til bakaPrenta