Til bakaPrenta
Bæjarráð - 768

Haldinn í Molanum fundarherbergi 3,
10.10.2022 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Stefán Þór Eysteinsson formaður, Þuríður Lillý Sigurðardóttir varaformaður, Ragnar Sigurðsson aðalmaður, Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri, Gunnar Jónsson embættismaður, Þórður Vilberg Guðmundsson embættismaður, Snorri Styrkársson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Gunnar Jónsson, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2208080 - Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2023
Formaður og sviðsstjóri ásamt stjórnanda stoðþjónustu gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.
 
Gestir
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 00:00
Formaður félagsmálanefndar - 00:00
Stjórnandi stoð- og stuðningsþjónustu - 00:00
2. 2208078 - Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2023
Formaður og sviðsstjóri ásamt deildarstjóra og forstöðumaður gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.
 
Gestir
Deildarstjóri skíðasvæðis, íþróttamannvirkja og íþróttamála - 00:00
Formaður íþrótta- og tómstundanefndar - 00:00
Forstöðumaður frístunda- og tómstundastarfs - 00:00
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 00:00
3. 2208077 - Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2023
Formaður og sviðsstjóri ásamt verkefnastjóra gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.
 
Gestir
Verkefnastjóri hafna - 00:00
Formaður hafnarstjórnar - 00:00
Sviðsstjóri framkvæmdasviðs - 00:00
4. 2208083 - Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2023
Formaður umhverfis- og skipulagsnefndar og bæjarstjóri ásamt fjármálastjóra gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.
5. 2208081 - Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023
Formaður stjórnar og bæjarritari gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.
 
Gestir
Formaður stjórnar menningarstofu og safnastofnunar - 00:00
6. 2205097 - Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2023
Formaður, fræðslustjóri og sviðsstjóri gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.
 
Gestir
Fræðslustjóri - 00:00
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - 00:00
Formaður fræðslunefndar - 00:00
7. 2208082 - Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023
Formaður mannvirkja- og veitunefndar og sviðsstjóri gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun 2023.
 
Gestir
Sviðsstjóri framkvæmdasviðs - 00:00
8. 2208079 - Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2023
Bæjarritari, mannauðsstjóri, fjármálastjóri og slökkviliðsstjóri gerðu grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2023.
 
Gestir
Slökkviliðsstjóri - 00:00
Mannauðsstjóri - 00:00
9. 2210049 - Styrkur frá Alcoa Foundation 2023
Gerð grein fyrir styrk frá Alcoa Foundation að upphæð 25.000 dollara (3,6 milljónir króna). Styrkurinn er ætlaður til verkefna tengdum enduruppbyggingu vegna óveðursins í september.
Bæjarráð þakkar fyrir veglegan styrk sem kemur sér mjög vel en hluti af tjónum sveitarfélagsins er ekki bætt og nýtist styrkurinn til að bæta þau. Bæjarstjóra falið að útfæra nýtingu á styrknum í samráði við Alcoa.
10. 2210037 - Málefni KFF 2023 - Trúnaðarmál
Framlagt sem trúnaðarmál minnisblað deildarstjóra íþróttamála vegna málefna Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar (KFF).
Bæjaráð felur deildarstjóra íþróttamála að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundi.
11. 2210032 - Erindi frá íbúum í Breiðablik
Framlagt erindi frá íbúum í Breiðablik í Neskaupstað um aðstöðu þeirra í húsnæðinu og ráðstöfun þess.
Erindi vísað til félagsmálanefndar til umfjöllunar.
12. 2210030 - Beiðni Skíðafélags Fjarðabyggðar um fund með bæjastjórn
Lögð fram beiðni frá Skíðafélagi Fjarðabyggðar um fund með bæjarráði vegna málefna félagsins.
Bæjarráð samþykkir að fá forsvarsmenn félagsins til fundar.
13. 2210016 - Erindi til bæjarráðs og bæjarstjórnar vegna frágangs á Haga og Teigagerði á Reyðarfirði
Framlagður tölvupóstur frá Agnari Bóassyni frá 3. október þar sem lögð fram fyrirspurn um frágáng á vinnubúðunum á Haga og svæðinu við Teigagerði.
Vísað til skipulags- og umhverfisfulltrúa til afgreiðslu.
Tölvupóstur Agnar Bóasson 3. október 2022.pdf
14. 2210017 - Umsögn frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 1232010 (uppbygging innviða), 144. mál.
Framlagður tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis þar sem óskað er umsagnar Fjarðabyggðar um frumvarp til laga um breytingar á skipulagslögum nr.123/210 (Uppbygging innviða) 144.mál.
Vísað til kynningar í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Beiðni um umsögn um frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123 2010 (Uppbygging innviða), 144. mál.pdf
15. 2210055 - Opinn samráðsvettvangur
Innviðaráðuneytið boðar til opinna samráðsfunda í öllum landshlutum undir yfirskriftinni, Vörðum leiðina saman. Íbúum í öllum landshlutum er boðið til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. Fjarfundur fyrir Austurland verður haldinn 18. október nk.
Opinn samráðsvettvangur.pdf
16. 2201106 - Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2022
Fundargerð 913. fundar stjórnar sambandsins lögð fram til kynningar
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 913.pdf
Fundargerðir til staðfestingar
17. 2209033F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 106
Fundargerð 106. fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 3. október tekin til afgreiðslu
17.1. 2209208 - Launaáætlun íþróttamannvirkja og frístundaþjónustu2023
18. 2209010F - Fjallskilanefnd - 2
Fundargerð fjallskilanefndar frá 14. september lögð fram til afgreiðslu.
18.1. 2208084 - Starfs- og fjárhagsáætlun fjallskilanefndar 2023
18.2. 2208175 - Fjallskilasamþykkt SSA
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 1545 

Til bakaPrenta