Til bakaPrenta
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 36

Haldinn í Molanum fundarherbergi 5,
10.10.2023 og hófst hann kl. 14:30
Fundinn sátu: Þuríður Lillý Sigurðardóttir formaður, Birkir Snær Guðjónsson aðalmaður, Kristinn Þór Jónasson aðalmaður, Heimir Snær Gylfason aðalmaður, Jóhanna Guðný Halldórsdóttir varamaður, Aron Leví Beck Rúnarsson embættismaður.
Fundargerð ritaði: Aron Leví Beck, Skipulags- og umhverfisfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2308005 - Deiliskipulag breyting Miðbær Nesk v. fótboltavöllur
Tekið fyrir eftir grenndarkynningu óveruleg breyting á deiliskipulagi miðbæjar Neskaupstaðar. Breytingin er tilkomin þar sem þörf er á að breikka fótboltavöllinn í samræmi við nýjar reglugerðir um stærð fótboltavalla. Við breikkun vallarins minnkar lóð Þórhólsgötu 1 og Þórhólsgötu 6. Samþykki fékkst frá eigendum að Þórhólsgötu 1 og Þórhólsgötu 6 og grenndarkynning þar með samþykkt. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan fái málsmeðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
A1656-001-U03 Miðbær Neskaupstaðar, deiliskipulagsbreyting.pdf
2. 2309257 - Umsókn um lóð Árdalur 15
Umsókn um lóð fyrir íbúðarhús að Árdal 15, Eskifirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.
3. 2309240 - Umsókn um lóð Hafnargata 27 Fásk
Umsókn um iðnaðarlóð fyrir skemmu að Hafnargötu 27, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar þar til lóðarblöð liggja fyrir.
4. 2310030 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bakkagerði 20
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Bakkagerði 20, Reyðarfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir að endurnýja lóðarleigusamninginn og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera nýjan lóðarleigusamning með breyttum lóðarmörkum.
5. 2310028 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 25
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Hafnargata 25, Fáskrúðsfirði. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar þar til lóðarblöð liggja fyrir.
6. 2308071 - Strandblakvöllur í Neskaupstað ný staðsetning
Strandblakvöllur í Neskaupstað ný staðsetning. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til aðra tillögu að staðsetningu fyrir strandblaksvöll fyrir ofan Starmýri og felur atvinnu- og þróunarstjóra að bera nýja tillögu undir stjórn Þróttar.
Tillaga að staðsetningu strandblaksvölls í Nesk.pdf
7. 2308072 - Hoppubelgur Neskaupstað ný staðsetning
Lögð til samþykktar ný staðsetning fyrir hoppubelg í Neskaupstað vegna framkvæmda ofanflóðavarna. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að skoða staðsetningu milli sundlaugar og lystigarðs nánar og felur atvinnu- og þróunarstjóra að ræða við hlutaðeigandiaðila.
Hoppubelgur Nesk.pdf
 
Gestir
Valgeir Ingólfsson - 15:15
8. 2309196 - Drög að hvítbók um skipulagsmál og umhverfismatsskýrsla
Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar umhverfis- og skipulagsnefndar tillögu innviðaráðherra að þingsályktun um landsskipulagsstefnu til 15 ára og aðgerðaáætlun til fimm ára. Drög hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 31.10.2023. Bæjarráð vísar drögum til umfjöllunar umhverfis- og skipulagsnefndar og umsagnar skipulags- og umhverfisfulltrúa. Umhverfis- og skipulagsnefnd felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að gera umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
UMÁ Landsskipulagsstefna_sept2023 - Drög til umsagnar.pdf
Hvítbók um skipulagsmál - Drög til umsagnar.pdf
9. 2309231 - Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti
Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti. Umhverfis- og skipulagsnefnd þakkar kynninguna og felur skipulags- og umhverfisfulltrúa að huga að staðsetningum innviða fyrir orkuskipti.
Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti.pdf
10. 2310004 - Ósk um undanþágu urðunargjalda og aðgangs að raftækjagámum
Ósk um undanþágu urðunargjalda og aðgangs að raftækjagámum. Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur vel í erindið og felur verkefnastjóra umhverfismála að útfæra afslátt af urðunargjaldi samkvæmt umræðum á fundinum. Sveitarfélagið mun leggja sig fram við að beina fólki í nytjagáminn en getur ekki veitt aðgang að raftækjum sem eigandi hefur kosið að setja í eyðingu.
Ósk um undanþágu á gjaldtöku.pdf
11. 2305072 - Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagsnefndar 2024
Farið yfir fjárhagsáætlun málaflokka nefndarinnar fyrir árið 2024. Umhverfis- og skipulagsnefnd frestar málinu til aukafundar.
 
Gestir
Snorri Styrkársson - 16:15
12. 2309164 - Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2024
Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 2024. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir uppfærða gjaldskrá með 5,8% hækkun og vísar erindinu í bæjarráð.
Gjaldskrá - Skipulags- og byggingarmál 2024.pdf
13. 2309156 - Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024
Gjaldskrá hunda- og kattahald 2024. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir gjaldskrána með fyrirvara um breytingar er varða niðurfellingu gjalda vegna þjónustuhunda. Nefndin felur verkefnastjóra umhverfismála að bæta inn sambærilegum texta og er í drögum um samþykkt í gjaldskrá vegna þjónustuhunda. Erindinu er vísað til bæjarráðs.
Gjaldskrá - Hunda og kattahald - 1.1.2024 rih draft.pdf
14. 2309162 - Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs
Gjaldskrá meðhöndlun úrgangs. Málinu er frestað þar til aukafundar.
15. 2203199 - Tjaldsvæði 2023
Lagt fram til samþykktar afmörkuð landssvæði fyrir tjaldsvæði til söluferlis í Fjarðabyggð. Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir staðsetningar á framlögðu minnisblaði og vísar málinu til umfjöllunar í mannvirkja- og veitunefnd.
Minnisblað.pdf
 
Gestir
Valgeir Ingólfsson - 15:20
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta